07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (3103)
143. mál, húsmæðraskóli á Staðarfelli
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Hv. þm. Dala. (BJ) hjelt því fram í ræðu sinni, að jörðin hefði verið gefið með því skilyrði, að skólinn yrði settur þar, og að fyrv. stjórn hefði gengið inn á þetta um leið og hún tók við gjöfinni, og er þá því sjálfsagðara, að stjórnin taki því vel, enda þótt ekki sje útsjeð um, að skólinn verði reistur þar. Og hvort sem ei, mundi hún fús til þess að styðja 1. og 2. lið, en síður 3. og 4. lið, fyr en það kemur í ljós, hverju stjórnin. hefir loftið á sínum tíma og útsjeð er um það, að skólann eigi að setja þar.