20.04.1923
Neðri deild: 46. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (3126)
130. mál, tryggingar fyrir enska láninu
Magnús Kristjánsson:
Jeg skal ekki vera langorður, því engu hefir verið hnekt af því, sem jeg tók fram í fyrri ræðu minni. Umræðumar hafa nú líka af hálfu andmælenda tillögunnar leiðst út fyrir það, sem tala átti um. Það, sem fyrir lá, var einungis það, að úrskurða, hvort þingið ætti að fá vitneskju um, hvernig skuldaskiftum ríkisins og Íslandsbanka væri varið.
Jeg ætla þá fyrst að minnast lítið eitt á hv. þm. Dala. (BJ). Hann er sífelt að núa öðrum um nasir, að þeir misbrúki þinghelgina, þótt enginn gangi jafnlangt honum sjálfum í því. Okkur flm. þessarar till. kallar hann rógburðarsamábyrgðina. Er hægt að komast lengra í svívirðilegum ummælum ? Þetta er aðeins eitt dæmi. Þessi þm. (BJ) er mjög hreykinn af sjálfum sjer, þrátt fyrir sínar veiku hliðar. Hann sagði meðal annars, að þeir, sem vefengdu skýrslu hans, skyldu verða sjer til minkunar fyrir það. Enn fremur, að meðal flm. till. væri enginn, sem fær væri um að framkvæma rannsóknina. Þetta sannar, að hann lítur allstórt á sjálfan sig. Hann einn á að geta gefið ábyggilega skýrslu. Mjer dettur í hug um þessa framkomu hans, að hana megi skoða sem nokkurskonar brjálsemishroka. En það dettur máske einhverjum öðrum í hug eitthvað annað enn verra.
Þá sagði sami þm. (BJ), að í till. fælist vantraust á stjórnina. Ef till. getur á nokkurn hátt gefið tilefni til þess, þá er það því aðeins, að stjórnin hafi ekki gert skyldu sína. Annars er þetta sagt út í loftið, eins og fleira hjá þessum þm.
Þá eru örfá orð til hv. 3. þm. Reykv. (JÞ). Jeg skal játa, að þar gætti talsverðrar sanngirni, nú venju fremur, því hann dró svo úr ummælum þeim, er hann hafði um þetta mál síðast, að jeg var farinn að halda, að vel mætti við una, en ekki gat hann að sjer gert að óhreinka dálítið nytina sína.
Hann kom með áskorun til mín og hv. þm. V.-Sk. (LH) um að hann óskaði þess, að við reyndum hjer eftir að koma í veg fyrir Gróusögur um menn og stofnanir. þessi ummæli eru alveg óskiljanleg og ástæðulaus, nema þá því aðeins, að við værum grunaðir um að hafa fengist við slíkan söguburð. En jeg hygg, að enginn, sem þekkir okkur, og ekki einu sinni þessi hv. þm. (JÞ), muni þora að halda slíku fram í alvöru.
Það var nú reyndar fleira, sem hann sagði í þessa átt, sem jeg get ekki verið að tína til núna; nóg að það sjáist í ræðu hans. Yfirleitt var vilji hans sá sami og um daginn, þótt hann færi nú vægara í sakirnar.
Þá vík jeg lítið eitt að því, sem hæstv. forsrh. (SE) sagði. Mjer skildist á honum, að eiginlega væri það fjrh., sem hefði átt að svara til saka í þessu máli. En jeg lít öðruvísi á þetta. Forsrh. (SE) fanst það rjettast að taka í sínar hendur umráðarjettinn yfir bankanum. Á jeg þar við þá stjórnarframkvæmd, er sumir hafa nefnt valdarán. Álít jeg, að við þetta tækifæri hafi skyldan færst yfir á hæstv. forsrh. (SE), og þar sem hann auk þess er formaður bankaráðsins, er skyldan tvöföld.
Úr því, að farið er að ræða málið á þessum grundvelli, þá vil jeg taka það fram, að það eru ekki aðgerðir forsrh. (SE) eingöngu, heldur og aðgerðaleysi, sem sökin hefir hlotist af. Því það, sem jeg legg mesta áherslu á, er það, að stjórninni bar skylda til að hafa strangt eftirlit með því, að bankinn væri starfræktur á þann hátt, sem koma mætti þjóðinni að sem mestu gagni á þessum erfiðu tímum. En á því hefir orðið hinn mesti misbrestur.
Jeg kalla það til dæmis hörð vaxtakjör hjá Íslandsbanka, sem tekur nú alt að 11/2% hærri vexti en Landsbankinn, og tel skyldu stjórnarinnar að koma í veg fyrir það. Ef forsrh. (SE) hefði beitt áhrifum sínum, hefði honum verið það kleift með aðstoð bankaráðsins.
Annars er jeg sáróánægður yfir því, að bankaráðið skuli ekki hafa gleggri skilning á því, hve afarskaðlegar þessar síðustu gengissveiflur eru. Þær baka þjóðinni stórtjón. Jeg skal ekki fara að sýna fram á þetta með tölum, en þó mætti fara nærri um það. Og ef það er satt, sem jeg hefi heyrt fleygt, að auk hinna óviðunandi vaxtakjara, þar sem Íslandsbanki er feti framar, selji bankarnir nú þeim fáu, er enn halda höfðinu upp úr þessu fjármálakviksyndi, sterlingspund fyrir 11/2–2 kr. hærra verð en þeir hafa sjálfir gefið fyrir þau, þá er þetta sannarlega rannsóknarefni fyrir stjórnina, og hlutverk hennar að koma í veg fyrir það, ef satt skyldi vera. Það er gott, að bankastjórarnir skuli vera hjer viðstaddir og hlýða á orð mín, því jeg óska, að þetta komist þeim til eyrna. Það er rjett, að þetta komi líka fram, þar sem málið er komið út á svo breiðar brautir, en það er sök hæstv. forsrh. (SE) og fylgismanna hans.
Það er fleira, sem vert væri að minnast á, en jeg er sár á að eyða tíma þingsins að óþörfu, og fer því fljótt yfir sögu.
Hæstv. forsrh. (SE) bar það fram, að jeg hefði farið með ummæli, sem hefðu ekki átt við nein rök að styðjast, sem sje það, að fullkomlega hafi verið farið fram á það við stjórnina, að hún ljeti þingið eða þingnefnd í tje fullkomnar upplýsingar um þau atriði, er tillaga þessi fer fram á. Mjer þykir leiðinlegt að þurfa að tilgreina stað og stund, en það er sjálfsagt, fyrst hæstv. forsrh. (SE) mótmælir þessu. Í fyrsta lagi hefðu engin tilmæli um þetta átt að þurfa að koma fram; það var sjálfsögð skylda stjórnarinnar að gefa þessa skýrslu. En þau tilmæli komu samt fram, bæði beinlínis og óbeinlínis. Forsrh. (SE) mun hafa fengið brjef, er ritað var hjer á Alþingi 18. febrúar síðastliðinn, um að kalla saman einkafund um þetta mál. En hann hefir þó ekki sýnt þeim, er brjefið sendu, það lítillæti að svara því. Í öðru lagi var forsrh. (SE) á fundi með Framsóknarflokki um nú nýlega, og vil jeg halda því fram að þetta mál hafi verið fullkomlega rætt á þeim fundi, þó að hæstv. forsrh. (SE) hafi ekki sint því síðan. Jeg gæti tilgreint fleira, en sleppi því þó í bráðina.
Mjer hefir skilist, að hæstv. forsrh. (SE) vilji halda því fram, að bankaráðinu beri engin skylda til að gefa þinginu vitneskju um það, sem fer fram á fundum þess. Jeg er á annari skoðun í þessu efni. Jeg vil þó ekki fullyrða, að sú skoðun mín sje rjett, en jeg tel þetta rjettmæta og eðlilega kröfu.
Þá fór forsrh. (SE) mörgum orðum um, hve ákjósanlegt samkomulag væri nú á milli bankanna, og að þeir ynnu nú saman í mesta bróðerni. Jeg skil ekki að nokkur ástæða sje til að gefa slíka yfirlýsingu. Það hefir ekki verið á vitorði almennings, að ósamkomulag hafi verið áður á milli þeirra. Þetta samkomulag ætla jeg að liggi í því, að Landsbankinn hefir gengið inn á þá braut að afhenda Íslandsbanka mikinn hluta af fyrirliggjandi starfsfje sínu. Það er auðvitað engin ástæða fyrir Íslandsbanka að amast við þessu; þetta mun vera hagkvæmt fyrir hann, en jeg tel Landsbankanum vorkunnarlaust að vinna sjálfur með fje sitt, og virðist svo, sem hann hefði ekki þurft að leita aðstoðar hins bankans til þess.
Það má vel vera, að einhverjir glæpist á að trúa því, sem mjög hefir verið haldið á lofti, að óverjandi væri að tala um bankamál hjer í þinginu; af því stafaði svo mikil hætta út á við. Jeg get ekki skilið annað en að það hljóti að vera æskilegt að öllu leyti. Jeg skil ekki, hverskonar hrófatildur fjármálafyrirkomulag bankanna er, ef nokkur hætta getur stafað af því að ræða það opinberlega. Jeg mótmæli því algerlega þeim móðgandi aðdróttunum í garð Framsóknarflokksins, sem komið hafa fram í þessum umræðum, að flokkurinn sje vísvitandi að reyna að hnekkja bankanum og rægja hann. það hlýtur að liggja eitthvað óheilbrigt á bak við slíkar aðdróttanir til flokksins.
Forsrh. (SE) gerði sjer mikið far um að hreinsa sig af því, að hann hafi átt nokkurn þátt í hinum nýju viðskiftum milli bankanna. (Forsrh. SE: Jeg sagðist hafa samþykt þau). Þá var ástæðulaust af forsrh. (SE) að segja, að þessi samningur væri óviðkomandi stjórninni. Sannleikurinn í málinu er sá, að þessi viðskifti hefðu sennilega ekki tekist nema fyrir tilverknað stjórnarinnar, en þar fyrir vil jeg ekki leggja mjög þungan dóm á þetta. Jeg er ekki viðbúinn að dæma um það, en reynslan mun skera úr því síðar.
Jeg skal svo ekki fara lengra út í þessi atriði. Jeg hefði getað bætt við ýmislegu, en ætla að neita mjer um þá ánægju í bili. Hingað til hefi jeg verið að hrekja ámæli frá öðrum, og hefi því verið neyddur til að halda mjer á þeim þröngu götuslóðum.
Ákúrurnar, sem tillögumenn hafa fengið, og þau ómaklegu háðungarorð, stafa af því, að þeir hafa farið fram á, að athugað verði, hvort fjárhæð sú, sem Íslandsbanki hefir fengið frá landinu, beinlínis og óbeinlínis, sem nemur að mínu áliti um 20 miljónum króna, sje fullkomlega vel trygð. Þetta er höfuðsyndin, sem borin er á okkur. Jeg er mjög ánægður yfir því að hafa verið í þeim hóp, er flutti þessa tillögu, þrátt fyrir alvarlegar tilraunir til að kasta miklum skugga á okkur, ekki síst frá hv. 3. þm. Reykv. (JÞ). Jeg skal ekki taka upp ummæli hans, en jeg tel þau að minsta kosti miður viðeigandi.
Að lokum skal jeg geta þess, að það ei svo margt, sem knýr menn til alvarlegrar íhugunar um ástandið, sem nú er og blasir við fram undan. Jeg skal ekki nefna þá upphæð, er landið skuldar út á við, bæði ríkissjóður, bankar og einstakir menn. En jeg skal nefna annað, sem er næsta einkennilegt og eftirtektarvert, að af skuldum, er hjerlendir menn hafa stofnað til erlendis — hjer eru skuldir bankanna og ríkissjóðs ekki taldar með, og engar skýrslur eru um, hvernig þær skuldir skiftast —, koma 85% á þennan bæ, en einungis 15% á alt landið utan Reykjavíkur. Þetta gefur tilefni til að hugsa um, hvort alt þetta fje er fullkomlega trygt. það er meðal annars þetta, sem veldur því, að jeg álit ekki ótímabært, þótt minst sje á fjármálaástandið svona yfirleitt.