20.04.1923
Neðri deild: 46. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í D-deild Alþingistíðinda. (3130)

130. mál, tryggingar fyrir enska láninu

Eiríkur Einarsson:

Það er aðeins stutt athugasemd út af ummælum hv. þm. Dala. (BJ). Hann hefir misskilið orð mín, er hann tók fram, að jeg hefð verið að afsaka, að jeg var meðflutningsmaður þessarar tillögu. Jeg var alls ekki að afsaka meðflutning minn, heldur gerði jeg grein fyrir því, hvers vegna jeg væri meðflytjandi. Hjer er gert mikið úr því, að það hafi verið blaðarógur, sem hleypt hafi tillögu þessari af stokkunum. En þetta er ofmælt. Jeg veit raunar, að einn þátturinn í því, að Íslandsbanki er tortrygður, eru ummæli blaðanna. Blöðin eru boðberar; eftir skýrslum þeirra og ummælum myndar þjóðin sjer skoðun á málinu. Jeg skal ekkert um það dæma, hvort skýrsla þeirra sje rjett; það er eitt af því, sem rannsaka á. Fyrsta ástæðan til þess, að bankinn varð tortryggilegur, er að ýmsu leyti rás viðburðanna. Stórkostleg gjaldþrot á síðustu tímum, sem orsakast af því, að lagt hefir verið í fyrirtæki, sem ekki gátu staðið straum af lánum sínum, vegna þess, hve tíminn er óstöðugur og alt í óvissu, og alt leikur á lausum kili, en það eru afleiðingar stríðsins, sem valda því. En þetta segir ekkert beint um það, hvort lánsstofnunin hefir farið óforsvaranlega að ráði sínu. þegar blöðin berast út til þjóðarinnar með skýrslur um töpin, þá er von, að henni gremjist, og það því fremur, er þungir dómar fylgja frásögninni. þeim dómum á nú með tillögunni að skjóta til sjerstakrar þingnefndar.

Þá hafði hv. þm. Dala. (BJ) það rjettilega eftir mjer, að það væri ekki auðhlaupið að því, að komast að sannvirði trygginganna. Jeg ítreka það hjer, að það er erfitt. Jeg get nefnt sem dæmi, ef bankinn hefir tryggingu í húsi í Reykjavík eða skipi. Hvers virði sú trygging er, er mikið komið undir framtíð bæjarins, hvort hjer er hallæri, góðæri, fiskirí eða aflaleysi. En er sami hv. þm. (BJ) segir, að jeg vilji ná niðurstöðu með rannsókninni, þótt jeg hafi áður sagt, að ómögulegt væri að ná henni, þá víkur hann við rjettu máli. Þótt ekki sje hægt að komast að fullri niðurstöðu, þá má þó komast að ýmsum mikilsverðum atriðum, sem varpa ljósi yfir hlutina. Það má fá hugboð um tryggingarnar og komast að því í stórum dráttum, hvernig bankinn ráðstafar fje sínu og hefir haldið á efnum sínum. Þetta getur og gefið þinginu hugmynd um, hvort bankinn muni ekki geta breytt vaxakjörum sínum, breytt starfrækslunni til batnaðar o. s. frv., svo sem jeg gat um í fyrri ræðu minni.

Þeir, sem halda því fram, að ekki megi hreyfa neitt þessum málum, hefðu átt að sjá um, að miklar umræður spynnust ekki út að þessari till. Þeir hefðu átt að geta komið sjer saman um að fella þetta eða samþykkja umræðulaust. Þessar umræður verða hljóðbærar, eigi síður en annað, sem um bankann er sagt. Skal jeg ekki verða til þess að hella olíu í eldinn, og get lokið máli mínu.