20.04.1923
Neðri deild: 46. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í D-deild Alþingistíðinda. (3131)
130. mál, tryggingar fyrir enska láninu
Magnús Kristjánsson:
Jeg get verið mjög stuttorður, því að í rauninni þarf jeg engu að svara, sem fram hefir komið síðan jeg talaði síðast. Því mun vera þannig varið með mig og hv. þm. Dala (BJ), að við erum báðir nokkuð bráðlyndir og bersöglir, en hvorugur neitt sjerlegt fúlmenni, og býst jeg við, að við höfum nú samið nokkurskonar vopnahlje um þetta mál í bráðina. Annars er jeg ánægður yfir þessum umræðum; það hefir töluvert upplýst með þeim. T. d. hefir hæstv. forsrh. (SE) upplýst það, að stjórn Íslandsbanka hafi lýst yfir því, að ekki þyrfti að búast við meira tapi, og að bankinn væri fær um að sjá um sig sjálfur framvegis. Þetta er hið mesta gleðiefni.
Þá var mjer ekki síður ánægjuefni ræða hv. 1. þm. Skagf. (MG). Hann stóð upp til að færa varnir fyrir stjórnina og lýsti yfir, að hann og hans flokkur væri sammála öllum gerðum stjórnarinnar í þessu máli. Hjer hefir stjórninni því bæst nýtt fylgi, og er það vel farið, því að fylgi hennar hefir ekki verið svo öflugt, sem skyldi. Af því, sem fram er komið, ætti að mega vænta þess, að hv. 1. þm. Skagf. (MG) og hans nánasta fylgilið veiti hæstv. stjórn þann stuðning, sem með þarf, til þess að hún geti haldist við völdin fyrst um sinn þá má segja, að sagan um Heródes og Pílatus endurtakist. Nú er stjórnin þá væntanlega komin yfir örðugasta hjallann.
Viðvíkjandi hæstv. forsrh. (SE), þá hefir hann fullkomlega kannast við, að jeg hafi skýrt rjett frá (Forsrh. SE: Nei), er jeg segi, að stjórnin hafi oft verið beðin um upplýsingar, bæði munnlega og skriflega, en hann ekki haft svo mikið við þá menn, sem það gerðu, að virða þá svars. (Forsrh. SE: Jeg hefi hvorki verið beðinn munnlega nje skriflega). Jæja; þá verð jeg að segja, að hæstv. forsrh. (SE) er of mikill „diplomat“, því hvorki hann nje aðrir skilja, hvað hann fer, þegar hann hvað eftir annað neitar staðreyndum.