21.04.1923
Efri deild: 45. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (3145)
131. mál, tryggingar Íslandsbanka fyrir enska láninu
Jónas Jónsson:
Jeg býst ekki við að snúa mjer strax mikið að hinni merkilegu ræðu hv. 2. þm. S.-M. (SHK), þótt hún sje í sjálfu sjer alveg jafneinstök í sinni röð eins og höf. sjálfur. (Hlátur). Jeg hygg, að málið skýrist best með því að athuga bankann nokkuð frá sögulegu sjónarmiði. Þeir atburðir, sem nú eru að gerast í sambandi við Íslandsbanka, þar á meðal hin ofsalega og bræðiþrungna framganga hv. 2. þm. S.-M. (SHK), skýrist best í ljósi sögunnar. Í nálega aldarfjórðung hefir um það verið deilt hjer á landi, hversu samræma skyldi hagsmuni hluthafanna, sem áttu bankann, við hagsmuni íslensku þjóðarinnar.
Þá er fyrst að minnast á tillögu þá, sem hjer liggur fyrir til umræðu. Hún fer fram á, að athugað sje veðið fyrir enska láninu, og í viðbót við það, að athuguð sje aðstaða Íslandsbanka að öðru leyti til landsins. En hvers vegna er till. fram borin?
Í fyrsta lagi af því, að Íslandsbanki hefir verið stórlega lamaður um nokkur missiri, ekki getað sint ýmsum af þeim sjálfsögðu skyldum, sem hvíla á banka, en slík stöðvun grípur djúpt og hættulega inn í alt þjóðlifið. Einstakir menn eiga allmikið fje í bankanum. Og Landsbankinn, sem er eign þjóðarinnar allrar, hefir smátt og smátt eignast allháa innstæðu í Íslandsbanka, sem ekki hefir ætíð verið hægt að standa í skilum með og Íslandsbanki gæti ekki skilað nú, nema með því að stöðva allar greiðslur.
Jeg skal taka fram, að daginn eftir fullveldisdaginn í vetur sendi Landsbankinn ávísun yfir í hinn bankann, um 80 þús. kr., en hann gat ekki borgað hana, því að hann hafði ekki handbært nægilega mikið fje til þess. Í vertíðarbyrjun var það ljóst í bænum, að togararnir gátu ekki nema sumir farið út, því að sjávarútvegsbankinn, Íslandsbanki, hafði ekki handbært fje og gat ekki kostað þá, nema með hjálp frá Landsbankanum.
Þar sem hæstv. forsætisráðherra er í senn yfirmaður Íslandsbanka og formaður landsstjórnarinnar, geri jeg ráð fyrir, að í hans hlut hafi fallið ekki óverulegur þáttur í þeirri milligöngu, er varð þess valdandi, að Íslandsbanki fekk fje hjá Landsbankanum til að halda úti skipum sínum. Fyrir utan þessa innlendu hjálp hefir Íslandsbanki fengið bróðurpartinn af enska láninu, líklega eftir núgildandi peningagengi 6–7 miljónir króna. Það er því síst undrunarefni, þótt þjóðin vilji fá að vita um fjárhagsástæður hins stærsta skuldunauts, sem hún hefir nokkurn tíma átt við að skifta, því að ef hin beinu lán til bankans frá landsins hálfu og seðlafúlga hans eru lögð saman, verður það um 17 miljónir króna.
Mjer þykir sennilegt, að ef hv. 2. þm. S.-M. (SHK) hefði sjálfur lánað einhverjum 17 miljónir, þá þætti honum hart, ef lánardrottni væri svarað með skömmum og fúkyrðum, er hann vildi grenslast eftir, hvað liði fjárhag lánþiggjanda. (Hávaði). Jeg óska, að hæstv. forseti haldi hv. þm. (SHK) í skefjum. Það ætti að vera nægilegt fyrir þennan þm. (SHK) að geta opnað og tæmt sálarskjóðu sína þegar jeg hefi lokið máli mínu.
Viðvíkjandi aðstöðu bankans að öðru leyti er það að segja, að hann hefir mjög lítið lánstraust erlendis. Það vita allir, hversu lítill árangur varð af hinni margumtöluðu ferð Claessens til að afla bankanum láns. Eitt af dagblöðunum birti viðtal við bankastjórann, og var þar að sjá, að hann hefði fengið um 4 miljónir kr. að láni. En síðar hefir komið í ljós, að verulegur hluti af þessari upphæð, ef til vill alt að helmingur hennar, var aðeins framlenging á eldri skuldum. Sú hin erlenda hjálp hefir ekki náð langt til að hjálpa atvinnuvegum landsins. Má af þessu sjá tvent, að Íslandsbanki hefir mestalt sitt fje og lánstraust frá íslensku þjóðinni, en hlutfallslega lítinn stuðning frá útlöndum. Má því segja, að skörin færist upp í bekkinn, er fulltrúar þjóðarinnar verða fyrir heiftarþrungnum reiðiyrðum og staðlausum ókvæðisorðum fyrir að gera skyldu sína, að vilja sjá með eigin augum, hvernig fje landsins er trygt.
Þá ætla jeg að víkja örfáum orðum að því óttalega böli, sem hlotist hefir af vandræðum Íslandsbanka síðan 1920. Fyrst má telja gengismuninn. Við vitum, hvað íslenska krónan hefir verið lág í samanburði við dollarann, pundið og sænsku krónuna, sem eru nokkurn veginn í samræmi við gullgengi. Þar sem Íslendingar verða að skifta mjög mikið við aðrar þjóðir, sjerstaklega við England, skaðar þetta lága gengi landið um margar miljónir króna á ári. Fátæktin eykst, kaupgjald til embættismanna hækkar og jafnframt eiga atvinnurekendur erfitt með að standast kaupkröfur verkamanna. það er geysimikið tjón fyrir landið að standa straum af sínum erlendu skuldum og verða fyrir miklu verðfalli á hverri krónu, sem út úr landinu fer upp í vexti og afborganir. Síðar mun jeg koma að aðalþættinum í gengishruninu. Íslandsbanki hefir ekki annast greiðslur erlendis fyrir viðskiftamenn sína, nema að takmörkuðu leyti, síðan vorið 1920. Nú vita menn, að fyrverandi stjórn setti enska lánið í bankann og fekk í staðinn eitthvað af víxlum, líklega mest Reykjavíkurvíxla, en slíkir „pappírar“ eru yfirleitt ekki álitnir gulls ígildi, eða hafa ekki fengið það orð á sig síðustu árin. Það lítur annars helst út fyrir, að þetta eigi alt að vera á huldu framvegis, því að engin skýrsla hefir verið gefin eða þingmönnum boðið að kynna sjer hag þessa skuldunauts. (Forsrh. SE: Jeg hefi ekki verið beðinn um neina skýrslu, heldur fjármálaráðherra). Í skyndi hefir bankinn neyðst til að gefa mörgum af sínum stærstu viðskiftamönnum upp stórar upphæðir, margar miljónir. Einmitt þessa stóru víxla áleit hv. þm. Dala. (BJ) sjerstaklega vel trygða, eins og sjá má í hinni nafntoguðu skýrslu hans. Og með þá reynslu um verðmæti Reykjavíkurvíxla að baki sjer er engin furða, þótt þjóðin vilji vita, hvort þau skuldaskírteini, sem hún hefir að veði, eru miklu tryggari. Að órannsökuðu máli geta menn ekkert um þetta sagt; það getur verið, að víxlarnir sjeu góð trygging, en ef til vill eru þeir það ekki. Þess vegna eru þessi tvö mál nátengd, gengismálið og Íslandsbankamálið. Sjúkdómur gengisins og sjúkdómur bankans er í raun og veru sama meinið og sprottið af sömu orsök.
Hv. 2. þm. S.-M. (SHK) spyr, hvort rannsókn á Íslandsbanka myndi bæta gengið. Þetta atriði er raunar dálítið læknisfræðilegt, og mætti ætla, að fyrirspyrjandi bæri eitthvert skyn á slíka hluti. Aðrir læknar grípa ekki ósjaldan til uppskurðar til að lækna duldar meinsemdir líkamans. Uppskurðurinn bakar sjúklingnum stundaróþægindi og sársauka, en góðir læknar setja það ekki fyrir sig. Meta meira batavonina að uppskurðinum loknum. Sama gildir oft um fjárhagsleg fyrirtæki, sem fengið hafa stundarkrankleik. Rannsókn er byrjun að fullum bata.
Af því að þeir menn hjer á landi, sem mesta hafa ótrú á allri rannsókn á fjárhagsaðstöðu Íslandsbanka, eru að jeg hygg flestir mjög hrifnir af öllum dönskum fyrirmyndum, og það er þeim að vissu leyti til sóma, þá vil jeg víkja með fáeinum orðum að því merkilega fordæmi, sem Danir hafa gefið okkur einmitt á þessu sviði. Nú vill svo til, að hjá þessari frændþjóð okkar hefir atburður gerst, sem að sumu leyti minnir á vandræði okkar. Þar hefir einn stærsti bankinn, Landmandsbankinn, lent í vandræðum og orðið að fá hjálp hjá ríkinu. Þetta getur verið mjög fræðandi dæmi og til stuðnings í því máli, sem hjer liggur fyrir. Í Danmörku vildi til það sama og hjer, að margir kaupsýslumenn og hlutafjelög urðu gjaldþrota og bankamir töpuðu stórfje, einkum Landmandsbankinn. Danir hafa bankaendurskoðara einn, að nafni Green, valinn mann og glöggan í fjármálum, er nýtur fulls trausts manna. Samskonar embætti er að vísu ekki til hjer, en hliðstæðastur var sá starfi, sem þm. Dala. (BJ) hafði um eitt skeið við Íslandsbanka. Þessi danski bankaeftirlitsmaður var talinn manna færastur og samviskusamastur, en samt var fyrsta áætlun hans ekki nákvæmari en svo, að tap bankans er nú talið 12 sinnum meira en hann gerði ráð fyrir í fyrstu. En því meir sem á leið, óx óánægja almennings og hver rannsóknin rak aðra. Þar eins og hjer vildi stjórnin bera blak af bankanum. Prestur einn leyfði sjer að segja, að forsætisráðherrann danski færi með ósannindi í þinginu, til að bera í bætifláka fyrir óhepnu bankastjórnina. Risu út af þessu þrálát málaferli, og fylgdi mikill hluti almennings presti að málum. Þjóðbankinn danski og landið hlupu undir bagga með bankanum, og er það hliðstætt við það, sem gerst hefir hjá okkur. Loks var knúin fram meiri rannsókn. Ef hv. 2. þm. S.-M. (SHK) hefði lesið „Politiken“, „Social-Demokraten“ og önnur frjálslynd blöð í Danmörku þá dagana, þá hefði hann getað sjeð dögum oftar bitrari árásir á ráðsmensku bankastjórnarinnar en hann hefir órað fyrir í sínum tryltustu draumum gegnum hin lituðu Morgunblaðsgleraugu sín. Það getur verið, að minni sje ástæðan hjer, en óneitanlega er hliðstæðan lík. Almenningsálitið í Danmörku heimtar gagngerða rannsókn á bankanum. Hún er hafin og bankastjórarnir eru settir frá; formaður efri deildar, sem var í bankaráðinu, sagði af sjer virðingarstöðu sinni í þinginu undir eins og ólagið varð uppvíst. Eitt atriði sýnir drenglyndi þeirra dönsku manna, er ljetu af störfum sínum við bankann; þeir framseldu allar eignir sínar til að borga tap bankans. Þeir sögðu sem svo; Úr því að bankinn hefir tapað undir okkar stjórn, þá eru hjer allar eignir okkar til að bæta það, því að okkur dettur ekki í hug að skorast undan ábyrgð þeirri, sem við tókum okkur á herðar. Glückstadt taldi það heiðurssök að framselja allar sínar eignir, smáar og stórar, jafnvel málverkasafn sitt og innanstokksmuni.
Jeg er glaður yfir því, að hv. 2. þm. S.-M. (SHK) er íslenskur borgari, því að ef hann hefði verið í Danmörku sem danskur þegn um þessar mundir, þá hefði hann áreiðanlega mist heilsuna af að lesa frásagnir dönsku blaðanna um rjettarhöldin út af Landmandsbankanum. Í fyrstu vitnaðist aðeins, að bankinn hefði tapað mörgum miljónum. Síðar, við nánari rannsókn, komst upp, að ýmsir af forráðamönnum bankans höfðu misnotað þar stöðu sína í eiginhagsmunaskyni. Varð það þó ekki fyr uppvíst en rannsóknarnefndin fór að yfirheyra bankastjórana og bankaráðsmennina og kryfja til mergjar bækur og skjöl bankans. Endirinn varð sá, að einn góðan veðurdag snemma í vetur segir stjórnin þinginu, að bankanum verði lokað eftir sólarhring, nema þingið gangi inn á skilyrðislausa samábyrgð fyrir öllum skuldum bankans, eins og þær eru nú og kunna að verða næstu 5 ár. Socialistar og radikalir voru hikandi og heimtuðu meiri rannsókn. En stjórnin var varasöm líka í Danmörku, — það er gott fyrir hv. 2. þm. S.-M. (SHK) að hafa aðstoð þar og vera stjórnarmaður —, hún neitaði, að menn fengju meira að vita og barði samábyrgðina í gegn í þinginu með litlum meiri hluta.
Í Danmörku kom í ljós við hina ítarlegu rannsókn, sem gerð hefir verið, að ýmsir af forráðamönnum Landmandsbankans hafa orðið brotlegir við hin borgaralegu lög. Jeg vona, að svo sje eigi ástatt hjer, heldur aðeins, að um frámunalega klaufalega fjesýslu sje að ræða. Að vísu má segja með formlegum rjetti, að þegar Danir voru á sama stigi málsins og við nú, vissu þeir ekki, að neitt saknæmt væri á ferðum, heldur aðeins um mjög mikið skuldatap. En þótt ekki sje gert ráð fyrir nema skuldatapi hjer, og það vil jeg ekki gera að ófyrirsynju, þá eru nægar ástæður samt til þess að hefja þá rannsókn, sem þáltill. okkar fer fram á.
Þá get jeg ekki stilt mig um að benda á, hv. 2. þm. S.-M. (SHK) til leiðbeiningar, að í einu atriði er ástandið hjá okkur verra en það var í Danmörku. Í Landmandsbankanum hafa ekki komið fyrir „kassasvik“, sem því miður hafa átt sjer stað í Íslandsbanka. Þetta er eitt þeirra atvika, sem gera mál þetta því leiðinlegra, þegar þeirri aðferð er beitt, að leyna þingmenn ástandi bankans. Síðastliðinn vetur upplýstist nefnilega, að í kassa bankans vantaði 120 þús. kr. Fór þetta ekki í hámæli að vísu, og að því er jeg best veit, lauk máli þessu með því, að tekið var hús yfir eina fjölskyldu af einum starfsmanna bankans upp í sjóðþurðina. Að öðru leyti mun hafa verið farið með málið, eins og fleira viðvíkjandi Íslandsbanka, eins og „ríkisleyndarmál“.
Hv. þingdeild verður að vera ljóst, að hjer er um óvanalega hluti að ræða, og maður, sem kominn er á efri ár, hlýtur að vera orðinn barn aftur, til þess að geta talað með þeirri drýldni um jafnsjálfsagða kröfu eins og tillöguna um að rannsaka aðstöðu Íslandsbanka til landsins, eins og hv. 2. þm. S.-M. (SHK) leyfði sjer. Flestum mundi finnast sjálfsagt, að slíkt mál væri rannsakað til hlítar og komist fyrir, hvort einn eða fleiri starfsmanna ættu sök á sjóðþurð inni, en það var ekki gert.
Annars kastar þessi atburður ekki skemtilegu ljósi yfir dagleg störf eða eftirtekt bankastjóranna. Verð jeg að segja, að þeim bankastjórum, sem eigi sjá minna grand í mat sínum en 120 þús. kr. vöntun í sjóðinn, treysti jeg ekki sjerstaklega vel, hvorki sem borgari eða þingmaður, og vil ógjarnan trúa þeim fyrir mörgum miljónum af fje þjóðarinnar, án verulegs eftirlits. Að vísu mun enginn saka yfirmenn bankans um annað í þessu efni en frámunalega sleifarlegt eftirlit, en það er líka nægilega mikið. Jeg myndi ekki hafa minst á þetta atvik, nema fyrir það, að hv. 2. þm. S.-M. (SHK) talaði með slíkum myndugleika um, að bankarannsóknir væru jafnan fordæmanlegar. Fanst mjer sáluhjálplegt fyrir þm., að hann kynti sjer þetta dæmi um stjórnarhætti í Íslandsbanka, ef ske kynni, að hann sýndi framvegis meiri auðmýkt í umræðum um þessa sjálfsögðu tillögu en í síðustu ræðu sinni.
Jeg álít, að mál þetta sje stærsta þjóðmálið, sem nú er á döfinni. Mál, sem hefir gripið dýpst inn í hag ríkisins og einstaklinga þjóðarinnar. Í því er fólgin meinsemd, sem veldur mestu um lággengið, dýrtíðina og skuldabaslið, meinsemd, sem lækna þarf, og það sem fyrst.
Mönnum mun veitast auðveldara að skilja þetta til hlítar með því að láta hugann hvarfla nokkur ár aftur í tímann, til þeirrar tíðar, er hv. 2. þm. S.-M. (SHK) var ungur og sæmilega frjálslyndur maður.
Árið 1899 kom fram hjer á Alþingi frv. um að stofna stóran hlutabanka, sem danskir auðmenn stóðu á bak við. Buðust þeir til að láta landið fá nokkrar miljónir, ef þeir fengju í staðinn mikil fríðindi fyrir banka sinn, svo sem einkarjett til seðlaútgáfu í 90 ár, að Landsbankinn væri drepinn og seðlar hans brendir á báli, eins og Savonarola á hallartorginu í Florenz forðum. Fylgjendur þessa frv. komu fram gagnvart Landsbankanum eins og væri hann glæpastofnun og ásóttu hann á allar lundir, eins og ofsatrúarmenn miðaldanna ofsóttu „villutrúarmenn“. Landsbankann átti að leggja strax niður, og ætlaði nýi bankinn að innheimta útistandandi skuldir hans fyrir ekki neitt.
Ýmsar skringilegar röksemdir komu fram hjá þeim, sem fastast fylgdu frv. þessu. T. d. sagðist einn þeirra vona, að enginn vændi hann eða fjelaga hans um, að þeir vildu selja landið með húð og hári! Annar komst svo að orði, að ef bankinn eyðilegði landið, þá eyðilegði hann sjálfan sig um leið. Það er annars nógu gaman að þessari röksemd, því að hún hefir aftur verið hjer á ferðinni í dag. Annars er það vitanlegt, að banki getur þrifist, um stund að minsta kosti, þótt hann hafi óhagkvæmileg áhrif á fjárhag alls landsins. T. d. hefir Íslandsbanki grætt síðustu árin, enda þótt fjárhagur landsins í heild hafi farið versnandi. Jeg vil ekki nefna með nöfnum þá menn, sem báru fram þetta sorglega frumvarp 1899. En jeg vil minnast á fáeina af þeim mönnum, sem þá stóðu á verði fyrir sæmd þingsins og heill landsins. Einn af þeim var Jón sál. Jensson yfirdómari. Hann sá við þessari flugu og dró sundur í háði þá af vinum hlutabankans, „sem fyrir hálfum mánuði hefðu verið gallharðir andstæðingar frv., en hjeldu nú hrókaræður með því“. Þá sat og á þingi Björn Sigfússon á Kornsá. Hvatti hann til að efla Landsbankann og stækka, í stað þess að gína við þessum nýja banka. Guðjón á Ljúfustöðum, sem a. m. k. ýmsir af andstæðingum þáltill. okkar í þessari hv. deild viðurkenna sem vel viti borinn mann, sagði um dönsku auðmennina, sem að bankanum stóðu, að þó að þeir væru máske bankafræðingar, þá væru þeir engir mannþekkjarar, „þar sem þeir hafa tínt eins og gullkorn úr sorpi upp í sína þjónustu þá menn úr mannfjelaginu, sem farið hafa í loftköstulum gegnum lífið í eigin fjármálum, sem þó hafa verið miklu óbrotnari en þetta stóra bankamál“. Og Guðjón talar um útlenda og innlenda stuðningsmenn hluthafabankans, sem fari með óskaplegan róg um Landsbankann. Níðpjesar væru skrifaðir um bankann og jafnvel þýddir á erlend mál. Væri þessum ósóma meira að segja þrýst inn í þingsalinn.
Var maður einn þá sjerstaklega grunaður um þátttöku í þessari pjesagerð og rógi um bankann, sem síðar hefir verið staðinn að samskonar störfum og af jafngöfugmannlegum hvötum. Í stuttu máli: Alt var gert til að svívirða Landsbankann og kasta þessu fjöreggi landsins í hendur danskra gyðinga. Og þá var hálfur mánuður álitinn nógur tími til þess að ljúka af svo stórmerku máli. Frv. var samþykt í Nd. með 13:3 atkv., en dagaði uppi í Ed. — Þá barg Ed. sóma þingsins, og jeg er ekki vonlaus um, að svo geti farið enn. Að minsta kosti er jeg ekki eins vondaufur og hv. 6. landsk. þm. (IHB), sem tók sína till. aftur, til þess, að mjer skildist, að greiða annari lakari atkv.
Eftir þessi málalok sumarið 1899 kom heldur dauft hljóð í útlendu „grósserana“, sem fram að þessu höfðu látið alldólgslega og haft í hótunum að sópa peningunum aftur ofan í vasa sína og fara með þá heim.
Veturinn eftir leituðu forgangsmenn hlutabankans til stjórnarinnar, sem þá sat í Danmörku, og fóru fram á, að hún legði samskonar frv. fyrir næsta Alþingi. Stjórnin leitaði álits þjóðbankans danska, sem reyndist hollari þjóð vorri en sumir fulltrúar hennar höfðu reynst á þinginu áður og reynast enn, eftir að sól fullveldisins hefir þó skinið. Bankinn taldi hæfilegt, að seðlar í umferð næmu ca. 30 kr. á mann; 90 ára einkaleyfi til seðlaútgáfu áleit hann forsmán, sem hvergi þektist. Slík leyfi væru erlendis veitt til skamms tíma, 10 ára eða minna. Sjálfur Englandsbanki fengi t. d. leyfið frá ári til árs. Þá taldi Þjóðbankinn ótækt, að þessi fyrirhugaði banki hefði hjer sparisjóð, þar eð hann yrði seðlabanki, og 3/8 væri of lítil gulltrygging fyrir seðlafúlgunni.
Nú urðu auðmennimir dönsku auðmjúkir við stjórnina, en hún reyndist þjóðhollari en svo, að hún ljeti undan síga. En Íslendingar voru samir við sig. Málið kom fyrir Alþingi 1901 og var sett í 5 manna nefnd í Nd. Í þessari nefnd sat, sem einn áhrifamesti maðurinn, núverandi 2. þm. G.-K. (BK). Var hann í meiri hluta nefndarinnar, sem klofnaði, og voru þeir núverandi hæstarjettardómari L. H. Bjarnason og fyrv. bankastjóri Tryggvi sál. Gunnarsson í minni hluta. Meiri hlutinn taldi óhugsandi að efla hag Landsbankans. Ef lán væri tekið, hlyti landið að skaðast á því. Meðal annars reiknuðu þeir afborganir allar tapað fje, og þótt það væri vitanlega hrakið þá þegar, sýnir þetta vitsmuni meiri hluta nefndarinnar og óhlutdrægni. Reyndar bentu þeir á, að hægt væri að líkindum að útvega lán með því móti, að annaðhvort væri ríkissjóðstillagið (60000 kr.) eða tollar ríkissjóðs veðsettir. Þarna mun þessi gullvæga kenning fyrst hafa gert vart við sig. En meiri hlutinn vildi nú samt ekki nota sjer þetta, heldur koma valdinu yfir peningamálum landsins í hendur útlendinga. Hins vegar krafðist minni hlutinn eflingar Landsbankans, en kvartaði undan samstarfinu við meiri hlutann í nefndinni. Þetta sumar sagði einn þjóðkunnur maður, Hannes skjalavörður Þorsteinsson, í þingræðu, að það væru ótrúlegar blekkingar, sem sumir forvígismenn hlutabankans leyfðu sjer að hafa í frammi, t.d. að allir fengju nóga og ódýra peninga, ef bankinn kæmi o. s. frv. Væri þó sannanlegt, og enda þinglesið hjer á landi, að einn af helstu aðstandendum bankans, Warburg, hefði tekið 7–8% vexti, sem þótti mikið í þá daga. En öll andmæli þessara manna reyndust árangurslaus í Nd. Hún samþykti að slá Landsbankann af, en hleypa danska bankanum í fjármálahásætið. En enn þá bar Ed. gæfu til að bjarga málinu, þannig, að Landsbankinn hjeldi áfram, og má sjerstaklega þakka það landshöfðingjanum sál., Magnúsi Stephensen, og einum hinna konungkjörnu þm., Jónassen heitnum landlækni. Hann sagði m. a. um útlendu hluthafana: „Þetta eru útlendir gyðingar, sem ætla að fjefletta Íslendinga sem framast er unt og nota sjer það, að Íslendingar sjeu nógu grunnhygnir að gína við slíkri danskri flugu“.
Árið 1902 var svo strax kosið í bankaráð danska bankans. Þetta var fyrsta ráðstöfunin, sem gerð var, og sýnir hún, að þá þegar hefir verið sama ásóknin í fríðindi eins og síðar varð. En nokkru seinna varð nokkur óvissa um, að bankinn tæki til starfa, og lýsti Jónassen hinni mestu gleði yfir því, ef ekkert yrði úr bankanum. Bankinn komst samt á laggirnar og gerðist brátt aðsúgsmikill um aukin hlunnindi. Á þinginu 1907 lýsti hr. Lárus H. Bjarnason sigurför hluthafanna hin fyrstu ár. Þótti honum sem bankinn hefði verið nokkuð aðsúgsfrekur í kröfum um síaukin rjettindi. Fann hann að því með rjettu, að þingið kysi bankaráðsmenn, en bankinn launaði þeim. Taldi heppilegra, að þeir fengju svo sem 600 kr. hver úr landssjóði, og myndu þeir þá frekar skoða sig sem trúnaðarmenn landsins. Enn fremur lýsti hann því, hvernig bankinn hefði sótt á og fært sig upp á skaftið, barist fyrir eigin gróða, enda vitað við hverja hann átti. Bankinn hafi, þvert á móti tilgangi sínum og áliti Þjóðbankans danska, tekið að leggja undir sig sparisjóði, t. d. á Akureyri, Seyðisfirði og í Reykjavík, og farið að reka almenna sparisjóðsstarfsemi undir innlánsforminu. Þá gulltrygginguna færða úr 4/8 niður í 3/8. Loks hafi hann viljað fá að gefa út bankavaxtabrjef. Hafi 3 vinir bankans borið fram frv. um þetta á þingi 1905 og með frekju komist allir í nefnd, sem átti að athuga málið. Síðan geymdi nefndin frv. hjá sjer eina nótt. Síðan var það hamrað í gegnum þingið.
Árið 1909 var kreppuár, og veittist bankanum erfitt uppdráttar. Kom þá til mála, að landið keypti hluti í honum, en var felt í Ed. En af því að minni hv. 2. þm. S.-M. (SHK) virðist nokkuð bilað, vil jeg minnast á það hjer, að það ár var með miklum gauragangi sett nefnd til að rannsaka Landsbankann, og starfaði hún marga mánuði með miklum dugnaði. Ef ástæða hefir verið til þess að skipa rannsókn þessa 1909, er áreiðanlega engu minni ástæða nú að skipa rannsókn á Íslandsbanka, sem nýtur hjer svo gífurlegra hlunninda. Þessi hv. þm. (SHK) var 1909 ákaflega fylgjandi rannsókninni á Landsbankanum, og þætti mjer því ekki ósanngjarnt, að hann heimfærði á sjálfan sig eitthvað af öllum þeim bölbænum, er hann söng áðan yfir okkur, flm. þessarar till., og öllum þeim, sem gerðust svo djarfir að vilja láta rannsaka banka. Jeg er ekki að áfellast rannsóknina 1909. Til þess er jeg því máli ekki nógu kunnugur. En hv. 2. þm. S.-M. (SHK) mætti gjarnan vera dálítið hæverskari í dómum um slíkar aðgerðir. (SHK: Það er ósatt, að jeg hafi verið við þá rannsókn riðinn). Hv. þingmaðurinn var ákafur stuðningsmaður þeirrar stjórnar, sem ljet framkvæma rannsóknina. Annars gefst vonandi tækifæri til þess síðar og á öðrum stað að rifja upp, hvern þátt hann átti í því máli. (SHK: Jeg bíð þess óhræddur).
Jeg get nú farið fljótt yfir sögu. Má telja, að fyrsta tímabilið í sögu Íslandsbanka nái að árinu 1908. Þá er búið að veita honum ýms hlunnindi, þvert ofan í tillögur Þjóðbankans danska, minka gulltrygginguna, afhenda honum sparisjóði kaupstaðanna, geymslufje landsins, tímunum saman, rjett til að gefa út bankavaxtabrjef o. s. frv. Bankinn hafði eitthvert dularfult töfravald yfir þingi og stjórn. Talið er, að á hinum fyrstu árum hafi auðmenn þeir hinir útlendu, sem lögðu fram hlutafjeð, lagt mikla stund á að afla sjer bandamanna hjer á landi. Hafi heldri menn og broddborgarar fengið lán og góða aðstöðu í bankanum til að kaupa hlutabrjef bankans, í von um að græða á þeim.
Í þingræðu 1907 tekur hr. Lárus H. Bjarnason fram, að margir þingmenn sjeu orðnir hluthafar í bankanum.
Með árinu 1916 hefst nýtt tímabil í sögu bankans. Á því ári fóru fram kosningar til Alþingis í Reykjavík. Jeg átti þá kosningarrjett hjer í bænum, og spurði frambjóðendur nokkurra spurninga, sem snertu Íslandsbanka. Meðal annars spurði jeg þá, hvort þeir vildu gera alt, sem í þeirra valdi stæði, til þess, að landið keypti smám saman hlutabrjef bankans, þar til hann yrði landsins eign. Annar þeirra, sem kosningu náði, var hv. 4. landsk. þm. (JM). Hann fór hjá sjer við spurningu þessari og lofaði engu. En skömmu síðar vildi svo til, að þessi hv. þm. (JM) varð forsætisráðherra, og þar með æðsti maður Íslandsbanka. Gegndi hann því starfi í 4–6 sögulegustu árin, sem Íslandsbanki hefir starfað hjer. Kom og fljótt í ljós, að ráðherra hugsaði öðruvísi en jeg og skoðanabræður mínir um þetta bankamál, og hefir sá skoðanamunur síst minkað eftir því sem nær dró núverandi krepputíma. Jeg hefi talið það ósvinnu, að þetta stóra fyrirtæki, sem grípur svo mjög inn í hag einstaklinga og þjóðarinnar í heild, skuli rekið sem hlutafjelag einstakra útlendra fjáraflamanna, undir mjög slælegu eftirliti frá hálfu þjóðfjelagsins, en núverandi 4. landsk. þm. (JM) hefir víst altaf verið á annari skoðun. Í hans tíð sem forsætisráðherra gekk seðlapressan látlaust. Miljón á miljón ofan af Íslandsbankaseðlum var velt yfir peningamarkaðinn. Þá er önnur frændþjóð, Svíar. Þeir voru svo gæfusamir að hafa á stríðsárunum yfir peningamálum sínum hina lærðustu hagfræðinga, sem reyndu að halda niðri, svo sem unt var, fjárbraski í landinu. Að sama skapi var seðlaútgáfan takmörkuð. Og Svíum tókst þetta snildarlega, enda ber raunin best vitni. Sænska krónan er jafngild dollara og sterlingspundi, og stendur stundum betur. En hjer var öðru máli að gegna. Hluthafar Íslandsbanka voru húsbændur í landinu, eins og þeir höfðu byrjað 1899–1901. Hluthafarnir vildu færa út kvíarnar og ljetu gefa út fleiri og fleiri seðla. Allir hjeldu, að þeir væru stórauðugir. Strákar, sem ekkert áttu, gengu með 100 króna seðla í vösunum þannig var peningaflóðið í landinu (Forseti HSt: Jeg vil vekja athygli ræðumanns á því, að jeg slít fundi eftir 10 mínútur). það gerir ekkert, jeg held ræðunni þá áfram þegar umræðumar hefjast aftur.
Ástandið hjá okkur varð því að ýmsu leyti keimlíkt og í Danmörku. Ágóðahlutur bankastjóra og hluthafa varð býsna mikill, t. d. fekk einn bankastjóranna um 80 þús. króna tekjur á ári, og bankaráðsmenn 10 þúsund hver, einmitt þegar bankinn var að byrja að tapa. Og það stendur enn á svari hjá hæstv. stjórn við fyrirspurn frá mjer um það, hve þetta fje muni hafa verið mikið, sem bankinn varð að borga einstökum mönnum, einmitt er hann var að byrja sitt opinbera hnignunarskeið.
Veldisár Jóns Magnússonar, sem var æðsti maður bankans, liðu að þessu leyti eins og í sælum draumi fram á útmánuði 1920. Þá bað bankinn enn á ný um ívilnanir með seðlana, og hann fekk þær, með þeim skilyrðum, að hann tæki á sig yfirfærsluna fyrir Landsbankann og þar með að sjálfsögðu fyrir landið.
En „Adam var ekki lengi í paradís“. Úr yfirfærslunum varð aldrei neitt í það skifti. Seðlabylgjan var þá búin að ná hámarki sínu og hrunið byrjaði. Lánstraust landsins erlendis hvarf á stuttri stund, eins og mjöll bráðnar í vorsól. Hluthafarnir guldu hin nýfengnu rjettindi með hættulegri óorðheldni. Sama vorið fór einn af aðalbankastjórum Íslandsbanka til Danmerkur, til þess að reyna að semja við lánardrotna bankans. En honum varð lítið ágengt. Og Prívatbankinn, sem Íslandsbanki skuldaði einna mest, gekk svo hart eftir skuldum sínum, að Íslandsbanki varð að láta ganga til hans mest af því fje, er hann fekk inn þá um sumarið. Er það einna mest þjóðarógæfa, að meginið af framleiðsluvörum landsmanna hvarf það sumar og haust í þessa einu skuld í Danmörku. Fjöldamargar aðrar skuldir stóðu þá ógreiddar. Sökum þeirra komst óálit á alla fjármálamensku hjer á landi.
Landsbankinn átti aftur erfitt með að gera meira en halda uppi sínum viðskiftum. En þó varð hann sá vígði þráður, sem hjelt þjóðinni lifandi á þessum voðatímum. Og fyrir það hefir honum alls ekkert verið þakkað, heldur þvert á móti, af þeim hluta þjóðarinnar, sem stóð að hluthöfunum. En við þessa ráðstöfun, að einn danskur banki fekk nær því alla þá peninga, sem Íslandsbanki hafði yfir að ráða erlendis, skapaðist sú skoðun, að bankinn væri gjaldþrota, og þá jafnframt landið um leið. Því að hann bar nafn landsins, og útlendingar gátu ekki skilið, að banki, sem bar nafn landsins, væri annað en þjóðbanki þess. Fyrir erlenda viðskiftamenn var erfitt að átta sig á því, annað en að það land væri gjaldþrota, þar sem höfuðbankinn gat ekki svo missirum skifti annast greiðslur erlendis. Ef til vill er ekkert erfiðara að fyrirgefa þeim trúnaðarmönnum landsins, sem stóðu að hlutabankanum í upphafi, en að þeir skyldu ljá honum nafn landsins. Því að allar þær yfirsjónir, sem slíkt gróðafjelag kann að fremja, kasta vegna nafnsins skugga á þjóðina alla.
Nú líður fram á sumarið 1920. Þá ætlar landsstjórnin að senda 1 miljón króna til Danmerkur, og Íslandsbanki lofar stjórninni að yfirfæra upphæðina. En það gerði hann aldrei. Ávísunin mun hafa legið lengi í einskonar millibilsástandi niðri í Danmörku. Slíka óreiðu, að gefa út ávísanir yfir efni fram, leyfa engir sjer nema sjerstakir vandræðamenn í fjármálum. Og engin dæmi eru til, að nokkurt land hafi verið svo háðulega leikið eins og Ísland var í þetta sinn. Enda leið ekki á löngu áður en þjóðin fekk að kenna á því, er hún tók enska lánið, í hvert óefni búið var að koma lánstrausti hennar. Eftir alllanga bið sendi stjórn Jóns Magnússonar þáverandi fjármálaráðherra á eftir ávísuninni, og honum tekst að fá einhvern greiðslufrest á upphæðinni, og mun honum hafa tekist það að einhverju leyti, a. m. k. um stundarsakir. Í þessum vandræðum greip þáverandi landsstjórn til þess eina manndómsbragðs, sem eftir hana lá, og það var að hefta innflutning á ýmsu glingri. Hafði stjórnin til þess fullan stuðning Framsóknarflokksins. — En sú dýrð stóð ekki lengi. Brátt kom hljóð úr horni frá verslunarmannastjett landsins. Skelfdist stjórnin þá og ljet þessar ráðstafanir að engu verða. Og vörur, sem vel mátti komast af án, hauguðust inn í landið. Þessi ófarnaður, sem kaupmannastjettin og þrekleysi stjórnarinnar leiddu yfir landið, jók miklu við fjármálaóstandið. Íslandsbanki hafði byrjað, með skuldir útgerðarmanna. Nú bættust við skuldir kaupmannanna. þeir einu, sem sáu hvað að fór, voru samvinnumenn. Formaður og forstjóri Sambandsins, Pjetur heitinn Jónsson og Hallgrímur Kristinsson, sendu út ávarp til samherja sinna, um að takmarka sem mest eyðslu og innflutning.