28.03.1923
Efri deild: 29. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (315)
29. mál, ritsíma og talsímakerfi
Atvinumálaráðherra (KIJ):
Jeg hefi ekkert að athuga við brtt. nefndarinnar við frv. og verð ekki á móti því, að línan sje lögð. Jeg hefi borið mig saman við landssímastjórann, og hefir honum ekkert fundist athugavert við frv. En jeg vil taka það sama fram hjer í deildinni, sem jeg tók fram í Nd. nýlega, að þótt frv. verði samþykt og gert að lögum frá þessu þingi, þá mega menn ekki búast við, að til framkvæmda komi þegar í stað. Því að, eins og menn vita, eru línur, sem liggur meira á, og allir hlutaðeigendur, t. d. sýslunefndir, hafa undirbúið framkvæmdirnar, svo sem þeim ber. Slíkar línur, t. d. línan milli Stykkishólms og Grundarfjarðar, verða að sitja í fyrirrúmi fyrir hinum, þar eð ekki stendur á öðru en fje því, sem lagt er fram, af landsins sjálfu. Sem sagt, menn skulu ekki láta sig verða fyrir vonbrigðum, þótt engar framkvæmdir verði á mesta ári eða jafnvel næstu tveim árum að því er þessa línu snertir.