05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í D-deild Alþingistíðinda. (3197)
155. mál, atvinnuleysisskýrslur og atvinnubætur
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Þessi till., sem hjer liggur fyrir, er í 3 liðum, og hefi jeg ekkert sjerstakt að athuga við 1. liðinn. Það er ekki neinn sjerlegur ábætir fyrir stjórnina, þótt hún eigi að útvega þessar skýrslur. Annað mál er það, hvort bæjar- og einkum sveitarfjelög verði við þessum tilmælum, að gefa skýrslurnar; þó geri jeg ráð fyrir, að svo verði. Mundi helst vera þörf á þessum skýrslum úr bæjunum, því atvinnuleysi er síður í sveitum. Jeg er fyrir mitt leyti fús til þess að annast um þetta, ef till. verður samþykt, og jeg hefi heldur ekkert á móti því að leita tillagna Alþýðusambandsins í þessu máli.
Um 2. lið er það að segja, að jeg skil ekki, hvaða stoð stjórnin geti veitt sveitar- og bæjarfjelögum með atvinnubætur, meðan engin heimild er til fyrir hana að veita eða lána fje til þess. Það væri þá helst með því móti, að stjórnin samþykti lán, sem sveitar- eða bæjarfjelögin kynnu nauðsynlega að þurfa að taka, vegna atvinnubrests eða af yfirvofandi neyð; en stjórnin mun aldrei hafa neitað um slíkt samþykki, svo að því leyti er till. óþörf. En jeg get ekki sjeð, að meðan stjórnin hefir enga almenna heimild til fjár- eða lánveitinga í þessu skyni, geti hún styrkt þetta á annan hátt.
Þá er 3. liðurinn, um að stjórnin láti framkvæma heimiluð mannvirki. Jeg get lýst því yfir, að stjórnin hefir ákveðið, þrátt fyrir peningavandræðin, að bygð verði viðbótarbyggingin við Klepp í sumar, en þó ekki gert meira en það, að kostnaðurinn fari ekki fram úr 350000 krónum.
Það hefir verið samþykt þáltill. í hv. Ed., um að skora á stjórnina að byrja sem fyrst á landsspítalanum. Sennilega verður þó ekki hægt að byrja á þessu ári, og líklega ekki því næsta heldur. En á því verki mun byrjað svo fljótt, sem mögulegt er. Er það líka hægara, þar sem fyrirkomulag verður þannig, að byggja má í viðbót smátt og smátt.
Hv. flm. (JB) gat þess, að jeg hefði lýst því yfir í fyrra í þinginu, að stjórnin mundi hlaupa undir bagga með bæjar- og sveitarfjelögum, ef á þyrfti að halda. Þetta er alveg rjett, enda er það blátt áfram skylda stjórnarinnar, ef hallæri ber að höndum, að reyna að forða frá því, eftir því sem hægt er. Mundi hver stjórn telja sjer það skylt.
Hv. flm. (JB) tók það líka fram, að stöðva þyrfti aðflutning í bæina. Jeg er honum algerlega samdóma í þessu, einkum er kemur til Reykjavíkur. En til þess er engin lagaheimild. Sá rjettur, er sveitarstjórnir höfðu áður fyr til þess að meina mönnum að setjast að í hreppnum eða bænum, hefir verið feldur í burtu, og það mundi vafalaust verða mjög óvinsælt, ef slíkar hömlur yrðu teknar upp á ný. Og þó væri alveg nauðsynlegt að hafa einhvern slíkan hemil. Hjer í Reykjavík eru alls engin takmörk fyrir því, hvað flyst í bæinn af fólki. Það er vitanlegt öllum mönnum, að atvinnuleysi er hjer mjög mikið og húsnæði hvergi nærri nægilegt fyrir bæjarmenn sjálfa, en þó kemur ekkert skip hingað utan af landi, sem ekki er fult af fólki, er flytur til bæjarins. Þetta fólk á mjög erfitt með að fá inni; verður ef til vill að hola sjer niður í einhverjar kjallarakompur, fyrir góðvild manna, aðeins til bráðabirgða, en þessi góðvild er oft launuð með því, að þotið er í blöðin og kvartað um það, hve þetta húsnæði sje ljelegt og óviðunandi siðuðum mönnum. Jeg verð að líta svo á, að meðan sveitar- og bæjarstjórnum er óheimilt að leggja hömlur á aðflutning fólks, beri þeim engin skylda til þess að sjá þessum mönnum fyrir atvinnu. Þeim er skylt að sjá þeim mönnum fyrir atvinnu, sem dvalið hafa lengi í bænum eða hreppnum, en alls ekki þeim, er koma aðvífandi, og jeg sje ekki, að þeir menn hafi nokkra ástæðu til að kveina eða kvarta undan því.
Um ástæðuna til þess, að fólk drífur til kaupstaðanna, má lengi deila, en hvort sem því veldur skemtanafíkn eða atvinnuvonir, er það víst, að væru menn ekki eins góðfúsir á að ljá aðkomufólki húsnæði, eða ekki væri gengið eins ríkt eftir því að afla mönnum atvinnu, mundi margur maður hverfa heim aftur.
Um þetta mál má lengi ræða, en jeg sje ekki ástæðu til þess, fremur en hv. flm. (JB). Jeg get ekki sjeð neitt til fyrirstöðu því að samþykkja tillöguna. Tveir fyrstu liðirnir eru sjálfsagðir, með þeirri skýringu, sem jeg hefi gefið um 2. lið, og um 3. liðinn er það að segja, að jeg tel sjálfsagt, að stjórnin framkvæmi þau fyrirtæki, sem nauðsyn ber til og lög mæla fyrir um, þegar henni er það unt, en það verður ekki fyr en fjárhagurinn batnar svo, að nægilegt fje verði til þeirra framkvæmda.