11.05.1923
Sameinað þing: 6. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í D-deild Alþingistíðinda. (3221)
160. mál, vantraust á núverandi stjórn
Flm. (Eiríkur Einarsson):
Þegar þáltill. um strandvarnar- og björgunarskip var hjer til umræðu á þriðjudaginn var, bar jeg fram rökstudda dagskrá, sem ekki kom til atkvæða, samkv. úrskurði hæstv. forsetans; en hún gaf að nokkru leyti tilefni til þáltill. þeirrar, sem hjer liggur fyrir. Er jeg flutti dagskrána, þá skýrði jeg, hvað fyrir mjer vakti, og hið sama vakir fyrir mjer nú með þessari þáltill. Jeg tel nauðsynlegt fyrir hæstv. stjórn og Alþingi og alþjóð manna, að það fáist yfirlýsing um það á hverju Alþingi, hver er afstaða þingsins til stjórnarinnar og hvers trausts stjórnin nýtur þar. Að jeg kem svona seint með þessa tillögu, stafar af því, að jeg bjóst við, að stjórnin sjálf eða aðrir þm., sem stendur það nær en mjer, leituðu slíks álits hjá þinginu. En þegar jeg sá, að þessi von brást og ganga mátti að því sem vísu, að þingi yrði slitið án þess, að þessarar yfirlýsingar væri leitað, þá hófst jeg handa, til þess að bregðast ekki þeirri nauðsyn, sem var á því, að þetta kæmi fram, og hugsaði, að betra væri seint en aldrei. Í raun og veru get jeg lagt þáltill. þessa í hendur Alþingis með þessum formála einum. Jeg sje enga nauðsyn á því að svo stöddu að ræða gerðir stjórnarinnar, og vil ekki gefa tilefni til þess, að farið sje út í þá sálma. Ef farið verður að ræða gerðir stjórnarinnar, má búast við því, að umræður verði langar, og ætla jeg að leggja það á vald annara. Jeg býst við, að þáltill. þessi liggi eins skýrt fyrir til atkvæða, þótt það verði ekki gert. Umræður um þesskonar verða oftast meir að kappsmáli en að þær styrki sannfæringu manna eða skýri málefnið. En ef farið verður að dæma gerðir stjórnarinnar, þá áskil jeg mjer rjett síðar til að taka þátt í því. Með þessum orðum get jeg svo látið máli mínu lokið í þetta sinn.