11.05.1923
Sameinað þing: 6. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í D-deild Alþingistíðinda. (3222)
160. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forsætisráðherra (SE):
Jeg leyfi mjer að vænta þess, að hv. fhn. vantraustsins (EE) og hv. þingi komi það ekki á óvart, þótt stjórnin spyrji, á hvaða ástæðum vantraust þetta sje bygt. Hingað til hefir það þótt ósæmilegt að bera fram vantraust, nema það væri bygt á verulegum sökum og færð rök fyrir því. Því vil jeg skora á hv. flm. (EE) að koma fram með einhverjar sakir; að öðmm kosti hefi jeg ekkert hjer að segja.