11.05.1923
Sameinað þing: 6. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í D-deild Alþingistíðinda. (3238)

160. mál, vantraust á núverandi stjórn

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Hæstv. forsrh. (SE) mótmælti því, að hann hefði gefið það loforð um verkaskiftingu ráðherranna, sem jeg hermdi upp á hann. Þetta hefir þó margsannanlega farið fram á fundi framsóknarmanna og ráðherraefnanna, þar á meðal forsætisráðherra, uppi á Hlaðbúð hjer í þinghúsinu, og er furðuleg bíræfni af forsrh. að mótmæla þessu. (Forsrh. SE: Hrein og bein ósannindi). Og þetta var brotið á þann hátt, að málin voru dregin úr höndum þess manns, sem samkvæmt loforðinu átti að fara með þau. Hins vegar geri jeg ráð fyrir því, að hv. þm. Dala. (BJ) hafi rjett fyrir sjer í því, sem hann sagði, af þeirri einföldu ástæðu, að hans flokkur, sjálfstæðið, hafi ekki sett nein slík skilyrði, sem jeg hefi eigi heldur haldið fram, og þurfi þess vegna ekki að kvarta um það, að þau hafi verið brotin.

Hæstv. forsrh. (SE) var það víst líka, er sagði sem svo, að ef þessi völd hefðu ranglega verið dregin úr höndum Magnúsar Jónssonar, hefði hann auðvitað átt að biðja um lausn. Jeg er alveg sammála þessu, og jeg ámæli Magnúsi Jónssyni fyrir að hafa ekki sagt af sjer undir eins. En þar hefir komið fram að kenning af því sama, sem náð hefir stundum hámarki sínu hjá hæstv. forsrh. (SE) sjálfum, að vilja sitja, bara sitja. Og það er víst að sannast í dag.

Hæstv. ráðherra (SE) sagði það um ákúrur mínar út af setningu bankastjóranna í Íslandsbanka, að hr. Eggert Claessen hefði beðið sig að skipa ekki í stöðumar fyr en hann kæmi aftur úr utanför sinni. Þetta er merkileg upplýsing, og er þó ekki sagt til þess að ámæla E. Claessen, þeim dugnaðarmanni. Hann á að gæta rjettar hluthafanna, hinir bankastjórarnir eiga að gæta rjettar þjóðarinnar, og til þess rjettar á stjórnin fyrst og fremst að taka tillit. En með þessari yfirlýsingu hefir hæstv. ráðherra sýnt það, að það eru hagsmunir hluthafanna, sem hann vildi fyrst og fremst taka tillit til; hin vanræktu fyrirmæli þingsins giltu minna. Það er ekki verið að hallmæla mönnunum, sem settir hafa verið, með þessum ummælum, en það er verið að hallmæla stjórninni fyrir það, að hún skuli láta mennina vera aðeins setta, þar sem það bæði gerir aðstöðu þeirra óhægri til að gera bindandi ráðstafanir og er óforsvaranlegt yfirleitt, að hafa óskipað í svona þýðingarmikil embætti í langan tíma. Þetta er vert þess að ítrekast og þjóðin þarf að krefjast reikningsskapar slíkrar ráðsmensku ráðherranna.

Hinu þarf jeg ekki að svara, að jeg hafi gert mjer vonir um stöðuna, því ekki var jeg í hópi umsækjendanna að minsta kosti. En hæstv. forsrh. (SE) þekkir svo vel leyndar embætta- og vegtylluvonir úr lífssögu sinni, að von er að hann ætli öðrum svipaðan hugsunarhátt.

Hæstv. ráðherra (SE) fór að blanda bankaeftirlitsmanni inn í þetta. Hann um það. En jeg stend við alt, sem jeg hefi sagt um það mál, og það mun sýna sig, að það er rjett. En engin þörf er á því að vera að endurtaka það hjer. Bitlingsembætti á ábyrgð forsætisráðherra er eina svarið, sem við á.

Þá var verið að dylgja eitthvað um afstöðu mína til sparisjóðsins á Eyrarbakka og sagt, að jeg hefði í því máli verið til ills eins; jeg man ekki orðin. (JÞ: Verið eiturbyrlarinn, var sagt). Jæja, jeg get óhræddur skotið því undir kunnugra dóm, hvort það hafi verið eitur, sem jeg hefi lagt til þess máls. (JÞ: Það kemur þeim öllum saman um). Nei, þeir austur frá hafa oft kallað mig afsíðis og tjáð mjer vandkvæði sín um þetta mál, og jeg hefi sagt þar það, sem jeg vissi best og sannast, og gætt hlutleysis míns. þar get jeg leitt Flóabændur sem vitni gegn framkvæmdarstjóra áveitunnar þeirra og gegn sparisjóðsformanninum, Jóhanni og öllu því heimafólki.

Jeg skal svo fara að ljúka máli mínu. En vil þó, út af því, sem hv. 1. þm.Skagf. (MG) sagði, að hann hefði átt kost á því að vera í stjórn í fyrra áfram, lýsa því yfir, að þótt svo hafi verið, sem jeg veit ekki til, þá var jeg sannarlega ekki í tölu þeirra, er gáfu honum kost á slíku. Skyldi jeg þá ekki eiga kollgátuna um, að þetta sje alt draumur fyrir honum, sprottinn af daglegri umhugsun og löngun mannsins.

Jeg þarf litlu að svara hæstv. atvrh. (KIJ). Hann segir, að sparisjóðsformaðurinn hafi átt tal við fyrverandi fjrh. (MagnJ), en hann átti líka tal við hæstv. forsrh. (SE), og auk þess voru banka- og sparisjóðsmálin þá komin í hendur allrar stjórnarinnar. Var Landsbankinn ekki fráhverfur því að hlaupa undir bagga með sparisjóðnum, en vildi rannsaka hann áður, en það vildi sparisjóðsformaðurinn ekki, og stjórnin sýndi þann skörungsskap, samkv. yfirlýsingu forsrh. (SE), að láta þar við sitja.

Ef nú þessi rökstudda dagskrá verður samþykt, þá óska jeg stjórninni til hamingju með hálmstráið, sem hún ætlar að fljóta á frá þessu þingi til hins næsta. Verður það að líkindum lengsta stráið, sem vex hjerlendis á þessu sumri, eftir útlitinu að dæma. Er þessi vantrauststill. mín fram komin meðfram vegna þess, að hæstv. forsrh. (SE) sagðist kalla mig bleyðu, ef jeg þyrði ekki að koma fram með hana. Jeg hefi nú hrakið af mjer bleyðiorðið, en nú getur hann spurt sína eigin samvisku um það, hver hetja hann er þarna á hálmstráinu. — Og skal jeg svo láta máli mínu lokið.