11.04.1923
Efri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í D-deild Alþingistíðinda. (3249)
129. mál, húsmæðraskóli á Staðarfelli
Halldór Steinsson:
Jeg vil þakka hæstv. atvrh. (KIJ), hversu vel og sanngjarnlega hann tók í þetta mál. Heyrðist mjer hann vera sömu skoðunar og jeg, að ekki væri enn kominn tími til að starfrækja skólann.
Jeg þarf litlu að svara hv. 5. landsk. þm. (JJ). Hann sagði, að jeg vildi bara tefja málið, en það er ekki rjett. Hagur ríkissjóðs er ekki svo góður, að á hann megi demba fjárframlögum, að órannsökuðu máli.
Jeg vil alls ekki tefja þetta mál meira en þörf er á, og þegar sá tími kemur, að fært er að leggja út í stofnun skólans, mun jeg ekki verða því mótfallinn. Ekki hræðist jeg kjósendur mína í þessu efni, enda mun jeg greiða atkv. í þessum sal eftir minni eigin sannfæringu, án þess að láta skoðanir kjósenda minna hafa nokkur áhrif á það. Hv. 5. landsk. þm. (JJ) sagði enn fremur, að það kæmi ekkert þessu máli við, hvort Staðarfell hafi verið gjöf eða ekki.. En í þáltill. er það nefnt „gjöf“, og fanst mjer því, að mætti minnast á það.
Annars erum við að mestu sammála, en greinir bara á um tímann til framkvæmda.