11.04.1923
Efri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í D-deild Alþingistíðinda. (3251)
129. mál, húsmæðraskóli á Staðarfelli
Jón Magnússon:
Hv. 5. landsk. þm. (JJ) hefir víst dottið í hug, er hann sá, að jeg ætlaði að taka til máls, þessi gamli málsháttur: „Timeo danaos, et dona ferentes“. En jeg vildi nú styðja mál hv. flm. (JJ), en ekki þó á þann hátt, er málshátturinn segir. Jeg held samt, að þetta mál þurfi betri athugunar við.
Hvað snertir ágreininginn um gjöf eða ekki gjöf, þá talaði hv. flm. (JJ) um það, að saka eigi þáverandi stjórn og þáverandi þing fyrir það, að taka við Staðarfelli, ef sök er, þá er jeg samdóma honum um það. En jeg er samdóma hv. þm. Snæf. (HSt) um það, að þetta varð minni gjöf en Magnús Friðriksson ætlaðist upphaflega til, því fjvn. Nd. varð svo ríf á fjárveitingunni, og rífari en farið hafði verið fram á. Samt verð jeg að telja, að hjer sje um gjöf að ræða.
Þá er það ekki rjett, að fyrv. stjórn hafi sett þann leigumála, er nú gildir, að öllu leyti. Núverandi stjórn mun hafa gert þá breytingu, að nokkurn hluta eftirgjaldsins mætti greiða með jarðabótum.
Það þing, sem tók á móti jörðinni, gerði að vísu ráð fyrir því, að þar yrði skólasetur. Jeg held nú einmitt, að Staðarfell sje hentugra til skólaseturs en hv. þm. Snæf. (HSt) gerði ráð fyrir. En máske er þetta þó ekki svo bundið, að ekki megi breyta því. Þá mun og gjafabrjef frú Herdísar Benedictsen, eins og það er orðað, vera til fyrirstöðu því, að fyrir sjóðinn verði reistur húsmæðraskóli. Það gerir beinlínis ráð fyrir kvennaskóla. En það gæti komið til úrskurðar stjórnarinnar, hvort þessu ákvæði mætti breyta. Tímarnir geta máske talist svo breyttir, að það megi telja leyfilegt.
Ef farið verður að stofna skóla þarna nú þegar, þá er fram komið það, sem sumir þingmenn óttuðust, er þeir tóku við Staðarfellinu, að það yrði til þess, að farið yrði að reisa þarna skóla áður en sjóðurinn væri fær um að halda honum uppi.
Ekki hefir neitt komið fram um það, hvað þetta myndi kosta. En slíkt þarf að athuga nákvæmlega, og er því sjálfsagt, að það sje athugað í nefnd.
þótt jeg sje ekki á móti skólastofnun þessari, þá hygg jeg, að ef ætti að fara að veita til skóla af landsfje, þá yrði fyrst að koma upp húsmæðraskóli á Norðurlandi. Þeim skóla er búið að marglofa, og fjárveiting til hans yrði því að ganga á undan öðrum fjárveitingum til samskonar skóla.
Jeg skal þá ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en jeg skil ekki, að hv. flm. (JJ) sje á móti því, að það sje athugað í nefnd.