11.04.1923
Efri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í D-deild Alþingistíðinda. (3255)

129. mál, húsmæðraskóli á Staðarfelli

Ingibjörg H. Bjarnason:

Aðeins örfá orð. Jeg ætla að leiðrjetta það hjá hv. 2. landsk. þm. (SJ), er hann sagði, að kvennaskólinn hjer virtist helst vera gagnfræðaskóli. En svo er ekki, því að við báða kvennaskólana, bæði hjer og á Blönduósi, er veitt tilsögn í handavinnu og mörgum öðrum greinum, sem húsmæður þurfa að nema og ekkert eiga skylt við gagnfræðakunnáttu. Jeg skal taka það fram, í sambandi við það, sem hv. 5. landsk. þm. (JJ) hefir sagt, að þessi tvö hússtjórnarnámsskeið við kvennaskólann í Reykjavík standa yfir, hið fyrra frá 1. okt. til 1. mars, en hið síðara frá 1. mars til 1. júlí, og eru námsskeið þessi föst deild við skólann. Svo það fer alls ekki eftir því, hvernig blæs, hvort hússtjórnarkensla fer fram í kvennaskólanum eða ekki. Jeg neita því, að jeg vilji tefja fyrir þessu máli frekar en nauðsyn er til. Annars hefi jeg fulla von um, að þegar málið er komið til mentamálanefndar, þá muni okkur koma vel saman um margt, sem nú virðist bera á milli.