10.03.1923
Efri deild: 14. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (326)
21. mál, ríkisskuldabréf
Fjármálaráðherra (MagnJ):
Jeg hefi fáu að bæta við ræðu háttv. frsm. (KE). enda er þetta ekki stórmál út af fyrir sig, en getur þó orðið til bóta að hafa lög um þetta, er stundir líða.
Brtt. nefndarinnar fer aðallega í þá átt að hækka rentuna, færa svigrúmið upp á við. Mun jeg ekki deila á nefndina vegna þeirrar breytingar, enda verður það auðvitað, að rentan verður á hverjum tíma að vera svo, að brjefin geti haldist nálægt „pari“. Þá er önnur brtt. frá nefndinni. um að vaxtagreiðslur af lánum þessum skuli fara fram tvisvar á ári. Um þetta var ekkert í frv., enda er það ekki aðalatriði.
Fyrir ríkissjóð, sem aðra, er það þó haganlegast, að greiðslur fari fram að haustinu. Í apríl er venjulega þrengst í búi. Þá er yfirleitt minni peningaumferð, og mundi það því ekki hafa mikla þýðingu fyrir lánveitendur að fá vexti þá. Annars er þetta fyrirkomulagsatriði, en jeg tel þó víst, að skuldabrjefin mundu seljast eins vel, þótt ekki væru greiddir vextir af þeim nema einu sinni á ári.