09.05.1923
Neðri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í D-deild Alþingistíðinda. (3272)
156. mál, atkvæðagreiðsla alþingiskjósenda um útsölustaði áfengisverslunarinnar og vínveitingaleyfi
Magnús Jónsson:
Jeg og hv. þm. Borgf. (PO) bárum á öndverðu þingi fram frv. um sölu og veitingu vína, í líkingu við lögin frá 1889, sem fór í svipaða átt að sumu leyti og þessi till. Málinu var vísað til nefndar og hefir sofnað þar. Jeg er nú persónulega á þeirri skoðun, að ekki væru rofnir samningarnir við Spán með þessu. En þegar stjórnarvöldin, sem með þetta fara og eru því kunnugust, leggja áherslu á þetta og telja það viðurhlutamikið, treysti jeg mjer ekki til þess að halda minni skoðun til streitu að óreyndu, en verð að treysta stjórninni til að ráða fram úr þessu eins vel og hægt er. Jeg sje því að sjálfsögðu ekki meiri ástæðu til þess að samþykkja þessa till. hv. 2. þm. Reykv. (JB) heldur en mitt eigið frv., sem jeg hefi ekki rekið svo mikið eftir og annars, ef jeg hefði ekki, fyrir yfirlýsingar stjórnarinnar, verið þeirrar skoðunar, sem jeg hefi nú lýst. Jeg verð því að fylgja till. um það að vísa þessu til stjórnarinnar, í samræmi við yfirlýsingu sjálfrar hennar og í trausti þess, að hún ráði vel fram úr þessu á sína eigin ábyrgð, og án þess að jeg hafi í nokkru breytt skoðun á þessu máli frá því, sem jeg hefi ætíð haft.