08.05.1923
Sameinað þing: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í D-deild Alþingistíðinda. (3295)

133. mál, strandvarðar og björgunarskip

Eiríkur Einarsson:

Jeg þakka hæstv. forsrh. (SE) fyrir, að hann skuli vilja að dagskráin komi til atkv., en hins vegar skil jeg ekki ástæður hæstv. forseta fyrir hans blákalda úrskurði um dagskrána, sem jeg veit ekki betur en að sje fyllilega lögformlega fram komin, og þess vegna krefst jeg skýringar á úrskurði hans.