08.05.1923
Sameinað þing: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í D-deild Alþingistíðinda. (3332)

111. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Flm. (Jón Baldvinsson):

Eftir þeim undirtektum, sem till. þessi hefir fengið hjá hæstv. stjórn, og eftir að hafa fengið yfirlýsingu hennar um, að bankinn muni taka til starfa um næsta nýár, sje jeg enga ástæðu til að láta till. mína koma undir atkvæði, og tek hana hjer með aftur. (BK: Jeg taka hana upp).

Viðvíkjandi launum þessa bankastjóra, sem hjer er um að ræða, er það að segja, að þau eru miðuð við laun bankastjóranna við Landsbankann, eins og þau voru 1921, og út frá því verður vitanlega að ganga. Jeg veit ekki, hvort búið er að skipa í þessa stöðu, en mjer heyrðist hæstv. ráðherra (KIJ) tala um einhvern ákveðinn mann.