28.02.1923
Neðri deild: 8. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í D-deild Alþingistíðinda. (3344)
27. mál, verðgildi íslenskrar krónu
Jón Þorláksson:
Jeg vil byrja á því að taka undir það, sem hæstv. fjármálaráðherra (MagnJ) sagði um gengismuninn, að hann er einkenni, sem ber vott um, að fjármálaástandið í landinu er að einhverju leyti frábrugðið því, sem venjulegt er, eða sjúkt, sem kallað er. Nú er því svo háttað um flesta hluti, sem lúta náttúrulögmálum, að ef þeir haggast frá venjulegri braut eða sýkjast, þá hafa þeir í sjálfum sjer nokkra þá náttúru, sem beinir þeim að lokum aftur inn á venjulega braut, eða læknar sjúkdóminn, ef hann stendur nægilega lengi til þess. Alt í náttúrunni leitar jafnvægis.
Gengisbreytingarnar eru eitt af þeim fyrirbrigðum, sem fjármálalífið notar til að lækna sjálft sig með.
Það hefir ekki nóg verið vikið að þessu í ræðum þeim, sem haldnar hafa verið, og vil jeg því gera nokkra grein fyrir því. Að því leyti sem gengið ákvarðast af mismuni á innflutningi og útflutningi í landinu — og er lækkandi — þá dregur það úr innflutningi vara, en örvar útflutninginn. Skal jeg skýra það nánar, enda þótt það sje viðurkent lögmál, og nefna einstök dæmi.
Flestir innflytjendur (kaupmenn) hafa yfir einhverri takmarkaðri fjárhæð að ráða til vörukaupa, annaðhvort eignarfje eða lánsfje. Því lægra sem gengið er, því minna vörumagn geta þeir fengið fyrir sitt takmarkaða fje. Þeir þurfa ekki að minka veltumagn sitt að krónutali, en vöruveltan, og þar með innflutningur hvers eins, verður minni vegna lággengisins. Hjer við bætist annað, sem hv. samþm. minn (JB) rjettilega benti á í öðru sambandi. Þegar gengi íslensku krónunnar er lágt, fara menn mjög varlega í það að nota lánstraust sitt erlendis til vöruinnflutnings. Og þannig verkar lággengið í þá átt að draga úr innflutningnum. Fleiri dæmi þessu lík mætti nefna. Og þá ekki síður hin, sem sýna, hvernig lággengið örvar framleiðslu á útflutningsvörum. Rekstrarkostnaður þeirra, sem framleiða vörur til útflutnings, skiftist í ýmsa liði. Nokkuð af honum er fólgið í kaupum á útlendum vörum; móti því verða þeir að láta jafnmikið vörumagn af framleiðslu sinni, og hefir gengi innlenda gjaldeyrisins engin áhrif á þann hluta kostnaðarins. En að því er innlenda kostnaðinn snertir, þá þýðir lággengið blátt áfram það, að framleiðendur fá afslátt af tilkostnaðinum, sem gengislækkuninni svarar. Fyrst og fremst á rentum og afborgunum af öllu lánsfje, og því næst einnig á öllum verkalaunum, að minsta kosti í bili, þangað til verkakaupið hefir aftur tekið tilsvarandi breytingum við gengislækkunina. Þetta á sjer stað, ef framleiðendurnir fá sjálfir að njóta hins háa verðs í krónutali fyrir gjaldeyri þann, er til fellur við sölu afurða þeirra, og það er almennast hjer á landi. Lággengið gerir því framleiðslu á útflutningsvörum arðvænni en ella mundi vera, og örvar hana þar með.
Þegar nú lággengi krónunnar hefir þessi tvennskonar áhrif, sem bent hefir verið á, annars vegar að auka útflutninginn og hins vegar að draga úr innflutningi vara, verður ályktunin sú, að viðskiftalífið notar þessa leið sjálfu sjer til lækningar.
Menn miða oftast verð íslenskrar krónu við sterlingspund, en gæta þess eigi ávalt, að verð sterlingspundsins sjálfs hefir verið breytilegt að undanförnu. Þannig hækkaði það um 10% á móti gulli eða Bandaríkjadollar á árinu 1922. Menn verða því að fara varlega í það að fullyrða, að íslensk króna fari lækkandi, þótt verð sterlingspundsins hækki að krónutali. Verðið kr. 28,50 fyrir sterlingspund nú samsvarar 26 kr. í ársbyrjun 1922.
Í umræðunum hefir öðruhvoru verið vikið að hagsmunum einstaklinga og stjetta í sambandi við þetta mál, og get jeg þá sagt, að staða mín í þjóðfjelaginu er þannig, að lággengi krónu er tap fyrir mig; á því sama við um mig í því efni og þá stjett, sem hv. samþm. minn (JB) ber sjerstaklega fyrir brjósti. En jeg hefi talið mjer skylt að líta á málið með þjóðarhaginn fyrir augum og athuga einnig, hvað framleiðendum sje fyrir bestu, ef þeir eru menn til að láta hagnaðinn af vörusölunni á erlendum markaði renna í sinn vasa. Og það eru þeir yfirleitt færir um.
það er áreiðanlega rangt hjá hv. samþm. mínum (JB), að hagnaðurinn af gjaldeyrisversluninni hafi farið til fárra millimanna, en ekki gengið til framleiðenda sjálfra. Að minsta kosti er það vitanlegt um fiskinn, að framleiðendur hafa notið hagnaðarins af lággenginu við sölu hans, þar eð þeir geta oftast valið um að selja í krónum eða sterlingspundum.
Sú ályktun, sem jeg dreg af þessu, er á þá leið, að varhugavert sje að gera tilraunir til þess, að gengismunurinn fái ekki að njóta sín eða koma fram í þjóðlífinu eins og hann er í raun og sannleika. Gengið var óeðlilegt hjer í bönkunum fyrir áramótin síðustu og ekkert í sambandi við þáverandi ástand í landinu. Þeir, sem höfðu erlendan gjaldeyri í höndum, gátu selt hann hærra verði en gefið var fyrir hann í bönkunum. þetta ástand gat ekki haldist til lengdar og endaði með því, að bankarnir neyddust til að hækka verðið á erlendum gjaldeyri upp í gangverð.
Sem dæmi þess, hvílíkar fjarstæður geta komið fyrir, þegar slíkt á sjer stað, skal jeg nefna, að pósthúsið þarf á erlendum gjaldeyri að halda til greiðslu póstávísana, er það selur á önnur lönd. Þar hefir verið tekin upp sú regla að afgreiða ekki svo stórar upphæðir, að líkindi sjeu til, að nota eigi til verslunarviðskifta, heldur einungis smáupphæðir, sem mönnum er þægilegast að senda á þann hátt. Þennan gjaldeyri keypti póstmeistari í bönkunum við venjulegu gangverði. Nú varð svo hart um erlenda mynt í bönkunum síðastliðið haust, að þeir gátu ekki selt pósthúsinu fjeð, sem það þurfti á að halda. Póstmeistari varð því að leita á hinn almenna markað, það er til þeirra manna, sem mest hafa undir höndum af erlendum gjaldeyri, og varð þar að sæta hærra verði, kaupa t. d. sterlingspund á 28 kr. til kr. 28,50. Þetta var skömmu fyrir síðastliðin áramót, á sama tíma, sem Landsbankinn seldi það litla, sem hann ljet af höndum, fyrir 26 kr. Ýmsir fastir viðskiftamenn bankans gátu þá herjað út úr honum smáupphæðir í enskri mynt fyrir þetta verð, og fóru sumir þeirra rakleiðis yfir í pósthús og seldu póstmeistara sterlingspundin á kr. 28,50. Annað eins og þetta hlýtur að koma fyrir, þegar farið er að þvinga gjaldeyrismálið inn á óeðlilega braut.
Menn mega ekki ætla, að almenningur njóti hagnaðarins af lágu verði erlends gjaldeyris í bönkunum, þegar hann er þar af svo skornum skamti, að kaupmenn geta annan daginn fengið þar örfá sterlingspund fyrir 26 kr., en verða hinn daginn að kaupa þau af útflytjendum fyrir kr. 28,50. Þeir verðleggja vörur sínar eftir hinu hærra pundsverðinu, þó að þeir geti stundum herjað út nokkur pund með lægra gengi. En meðan svo er, geta framleiðendur heldur ekki treyst því, að þeir muni síðar, t. d. eftir missiri, geta selt gjaldeyri sinn fyrir hið sama háa verð, sem þá gildir, og nær þetta því ekki þeim tilgangi að örva framleiðendurna.
Skilyrðin fyrir því, að gengismunurinn fái að koma fram, er frjáls og óhindruð gjaldeyrisverslun; annars fáum við ekki nema ókostina af honum. Því er jeg samþykkur ráðstöfunum til að rjetta við gengið, ef gerðar eru á þann hátt, að grípa inn í viðskiftalíf þjóðarinnar og reyna að lækna meinin, sem þar eru og valda gengismuninum. Jeg geri ráð fyrir, að við stefnum að því að koma krónunni í jafngengi með því að rjetta gengið við smátt og smátt, en ekki á þann hátt, sem gera verður þegar í óefni er komið, sem sje með því að fella peningana í gildi fyrir fult og alt.
En þó að reynt sje að bæta gengið með því að grípa inn í sjálft líf viðskiftanna, er hægt að gera það á misjafnlega heppilegan hátt. Þannig má t. d. fara að, að gengið rjetti við í svip, og skapa þó um leið nýjar líkur fyrir gengisfalli. Og af því að í þáltill. er gert ráð fyrir ráðstöfunum í þá átt að „koma fyrir sem föstum lánum þeim gömlum skuldum, sem nú stuðla að gengislækkuninni“, skal jeg strax taka fram, að einnig í þessu efni verður að gæta mikillar varúðar. Kvartað hefir verið undan því — og með rjettu — að mikið sje hjer um lausaskuldir, er erlendir kaupsýslumenn eiga hjer, mest í bönkunum, og fallnar eru í gjalddaga, og hafi þessar skuldir haldið genginu niðri. Liggur því nærri að koma skuldunum svo fyrir, að þetta framboð lækki ekki krónuna. En hjer þarf að fara varlega. Hygg jeg vel ráðið að gera ekki mun meira í þessu efni en gert hefir verið hingað til. Fje þetta er eign erlendra kaupsýslumanna, sem lánað hafa íslenskum innflytjendum vörur. Meðan þeir eiga hjer stórfje fast, er vitanlegt, að þeir verða varkárari en áður um vörulán. Þetta hefir eitt með öðru dregið úr innflutningi á þeim tíma, sem mest þurfti. Jeg vil ekki segja með þessu, að menn megi ekki festa skuldirnar, en það verður að gera með varúð og gætni, svo að skuldheimtumenn freistist ekki til að setja fje sitt aftur í hreyfingu með því að lána hingað vörur á nýjan leik, því að hjer eru nógir menn, sem vilja taka vörur að láni til þess að flytja inn og selja hjer í landi. Menn verða því að gæta þess vel, að gera engar þær ráðstafanir, er miða að því að auka innflutning eða draga úr framleiðslunni, og gera þar með leiðina til jafngengis erfiðari og torsóttari heldur en vera myndi, ef málið fengi frjálsan og óhindraðan gang.