13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í D-deild Alþingistíðinda. (3364)

53. mál, sjómælingar

Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Þessi till. er ekki nýr gestur hjer á þingi; var hún flutt hjer bæði á þinginu 1914 og því síðasta, en jeg tók hana þá aftur sökum þess, að hæstv. atvrh. tók þá vel í málið og kvaðst mundu gera það sem hægt væri í málinu, þótt engin till. yrði samþykt. Nú hefir enn ekki orðið úr framkvæmdum, og því er nú þessi till. flutt enn á ný, eftir ósk skipstjórafjelagsins „Bylgjan“ á Ísafirði.

Svo hagar til, að norðan Horns til Reykjarfjarðar er fiskiauðugt mjög. Stunda þar smærri vjelbátar fiski, en mjög er þar skerjótt og ilt athafna, nema fyrir nákunnuga.

Skelli á norðanveður, eru næstu hafnir á Ingólfsfirði og Hólmavík, en ef Þaralátursfjörður væri mældur upp, yrði þar einhver öruggasta höfn á landinu. Hefir oft orðið tjón af því að leið þessi hefir ekki verið mæld; má minna á slysin 1898 og 1901.

Vænti jeg, að hæstv. atvrh. athugi þetta og gefi upplýsingar um, hvað gert hefir verið í málinu.