16.04.1923
Sameinað þing: 3. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í D-deild Alþingistíðinda. (3373)

132. mál, setning og veiting læknisembætta

Flm. (Hákon Kristófersson):

Jeg hefi borið fram tillögu á þskj. 300 ásamt með hv. 5. landsk. þm. (JJ). Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um, hvað í till. felst, en nái hún fram að ganga, ætlast jeg til, að hæstv. stjórn taki tillit til hennar, eftir því sem við verður komið. Aðaltilgangur till. og vatill. á þskj. 361 er að koma í veg fyrir, ef kostur er, að þeir læknar sjeu settir eða skipaðir í embætti, sem hlutaðeigandi hjeraðsbúum er þvert um geð að taka við. Það er ekki að ástæðulausu, að einmitt jeg er flm. slíkrar till., því vitanlegt er, að nú á næstunni verða skipaðir læknar í tveim hjeruðum í mínu kjördæmi, og stendur mjer ekki á sama, hvernig menn hljóta þau embætti.

Till. þessi hefir sætt allhörðum dómum, og finst mjer undraverð sú dirfska og fáviska að halda því fram, að með henni sje farið fram á, að læknar skuli kosnir, svo jeg leyfi mjer að hafa sömu ummæli um andmæli þau, sem tillagan hefir sætt, og andmælendur hafa haft um till. Meina jeg hjer prófessor Guðmund Hannesson. Verð jeg að mótmæla þessum skilningi, enda hefir okkur flm. ekki komið slíkt til hugar. Eru og til ákveðin lagafyrirmæli um, að veitingarvaldið sje hjá konungi í þessu efni.

Tilgangurinn með till. er sá, að fá álit hins háa Alþingis um, hvort ekki væri rjett, ef óskir kæmu frá hjeraðsbúum, að taka tillit til þeirra, þegar um veitingu læknisembætta er að ræða. Jafnaðarlega munu engar óskir fram koma í þessa átt, en komi þær fram, er rjettmætt, að þær sjeu teknar til greina og ekki þrengt þeim mönnum upp á hjeraðsbúa, sem þeir vilja ekkert hafa með að gera. Gengur dirfsku næst að halda því fram, að það sje ósanngjörn krafa, að hjeraðsbúar fái íhlutunarrjett um það, hverjir verði læknar þeirra, sem þeir framvegis eiga að búa við og eiga oft svo mikið undir. Athugandi er, að hjer er aðeins um íhlutunarrjett að ræða; stjórnin verður ekki skyld að fara að óskum hjeraðsbúa, þó að till. verði samþykt, fremur en áður. En ekki er það á rjettlætis eða sanngirnisgrundvelli bygt, ef hið háa Alþingi sjer sjer ekki fært að samþykkja till.

Þessi till. hefir komið því til leiðar, að brjef hefir borist til þingsins frá Guðmundi prófessor Hannessyni f. h. Læknafjelags Íslands. Jeg fæ ekki skilið, hvað fjelag þetta getur haft út á till. að setja. Þó að vitanlegt sje, að sá embættismannahringur sje fast tengdur saman að ýmsu leyti, gat jeg ekki búist við, að viðkomandi embættismenn teldu gengið á hluta sinn með þessari till., og þar af leiðandi teldu þess enga þörf að hreyfa mótmælum hvað þetta snertir.

Með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að taka til athugunar nokkur atriði brjefsins, þar stendur meðal annars:

„Vjer göngum að því vísu, að tillögumönnunum gangi það til að tryggja hjeruðunum betri lækna en nú gerist. Hversu hjeraðsbúar eiga að geta dæmt um læknishæfileika manna, sem þeir venjulega þekkja lítið eða ekki, er oss óskiljanlegt. Þeim hefir tekist misjafnlega og oft illa að velja presta sína, og miklu erfiðara er fyrir þá að velja lækni“.

Að vísu er mjög skiljanlegt, að landlæknir í flestum tilfellum geti best dæmt um umsækjendur, og er víst viðurkent að alment hafi menn verið ánægðir með skipun læknisembætta undanfarið. Óánægja hefir ekki átt sjer stað nema í slíkum tilfellum, sem jeg hefi á minst, þegar hjeraðsbúar hafa mælt með öðrum en embættið hlaut.

Menn rekur minni til, að nýlega var skipað í læknisembætti, einmitt í tíð Guðmundar Hannessonar sem settslandlæknis. Umsækjendur voru nokkrir og kom til kasta landlæknis að „instilla“ einhvern. En niðurstaðan varð sú, að hann treysti sjer ekki að gera upp á milli umsækjenda, og hafði stjórnin því óbundnar hendur. Vitanlega kom þetta af því, að allir voru svo góðir.

Vitanlega getur brugðið til beggja vona með íhlutunarrjett hjeraðsbúa, en jeg verð að halda því fram, að þó að ábendingar frá þeim kynnu að mistakast, þá eiga þeir þó altaf mest á hættu sjálfir, þar sem það kemur niður á þeim, ef valið mishepnast. Þar af leiðandi er þeim óhægra en annars að vera óánægðir með viðkomandi embættismann.

Mistök hafa átt sjer stað við val presta — það er mikið rjett —, en mjer er spurn: Hvar og á hvaða sviðum mannlífsins eru ekki mistök? Mistök hafa komið fyrir í vali embættismanna í flestum stjettum, jafnvel prófessora. Þá segir þessi sami heiðursmaður, að reynslan hafi sýnt, að hjeraðsbúar kysu helst unga menn sem lækna. Jeg vildi spyrja, hvaðan honum kæmi þessi vitneskja. Mjer vitanlega hafa hjeraðsbúar að jafnaði ekki verið spurðir til ráða, þá er þeim hefir verið fenginn nýr læknir. Annars sje jeg ekkert að því, þó að t. d. hin afskektari hjeruð kysu einkum unga menn og hæfari til ferðalaga.

Að gera ráð fyrir, að gripið verði til undirróðurs, eins og brjefritarinn gerir, er óhæfilegt, og furðar mig á, að svo mætur maður skuli skjalfesta slíka yfirlýsingu. Þá gerir sami heiðursmaður ráð fyrir, að oft yrðu það lökustu og ófyrirleitnustu læknarnir, sem notuðu þetta ráð, og oft með góðum árangri. Hjer slær hann föstu, að ófyrirleitni gangi best í alþýðu manna. En jeg þekki alþýðumenn svo vel, að jeg þori að fullyrða, að þessi óskaplega spá mun ekki rætast. Jeg vil leggja áherslu á, að jeg tel víst, að hjeraðsbúar muni ekki hefja andblástur gegn læknum, sem þeir gætu ekki sýnt fram á með rökum, að væru óhæfir. Mjer er ekki kunnugt um, að menn sjeu yfirleitt gjarnir á að traðka rjetti einstaklinga að ófyrirsynju, en svo er gert, ef ráðist er á valinkunna heiðursmenn, sem ekkert er út á að setja. Svo virðist, sem brjefritari slái því föstu, að till. fari fram á kosningu lækna, en, eins og jeg hefi áður tekið fram, er það rangur skilningur á till., og er þar með hnekt þeirri mótbáru hans, að till. geti leitt til þess, að óhægara yrði fyrir lækna í lakari embættum að skifta um.

Þá getur hv. brjefritari þess, að ef till. yrði samþykt, myndi opnast leið fyrir menn að komast í embætti með tilstyrk frænda sinna. Vil jeg mótmæla að á þessu sje hætta. En í þessu sambandi vildi jeg spyrja, hvort menn viti þess ekki dæmi, að veitingar embætta hafi farið eftir frændstyrk, eða þá eftir því, hvort viðkomandi hafi verið vel sjeður á hinum svokölluðu hærri stöðum. Þyrfti sennilega ekki að fara í grafgötur eftir svo sem einu eða tveimur dæmum, eða jafnvel fleirum. Það er langt frá því, að jeg telji framfarir að sem flestum kosningum, eins og brjefritari getur til. Hjer er um engar kosningar að ræða — og framfarir tel jeg, að íhlutunarrjettur þeirra, sem mest eiga á hættu við skipun embætta, yrði ekki algerlega fótum troðinn. þá heldur brjefritari því fram, að ef kjósa eigi hjeraðslækni í Reykjavík, þurfi að skipa nýjan prófessor við háskólann. Þessa klausu skil jeg ekki og fæ ekki sjeð, að hún standi í nokkru sambandi við till. Má því sannarlega segja um þetta atriði, og reyndar fleiri í brjefinu, að þau sjeu reglulega vanhugsuð, og gegnir furðu, að þau skuli koma úr þessari átt.

Í niðurlagi brjefsins segir, að hjú og verkamenn sjeu spurð ráða um kjör sín og kaup, þegar þau eru ráðin. Hjer er enn ólíku saman að jafna, og er óþarfi að slá því fram, að nái till. fram að ganga, megi bjóða læknum þá kosti, er þeir vilji ekki ganga að. Hefir mjer vitanlega slík óhæfa engum til hugar komið, og enda hvergi hægt að sjá slíkt af till. Aðaltilgangurinn með till. er sá, að ef mistök yrðu á skipun í læknisembætti, þá væri hjeraðsbúum heimilt að bera fram óskir sínar við stjórnina og hún tæki rökstuddar tillögur þeirra til greina. Býst jeg við, að hjer á landi sjeu í embættum margir þeir menn, sem brýn nauðsyn bæri til að víkja frá, ef hag einstaklinga og þjóðarinnar á að vera sæmilega borgið.

„Þeir eru nú ekki margir“, segir einn hv. þm. En ef dæmi finnast, má vitna til þeirra. Og spá mín er, að þess verði ekki langt að bíða, að hjeraðsbúar fái heimild til að reka af höndum sjer óhæfa embættismenn, sem jeg leyfi mjer að fullyrða, að eru þó nokkuð margir. En það má með sanni segja, að það er ekki svo hart á því tekið, þó að embættismenn sjeu ekki einu sinni óhæfir, heldur skaðlegir sem slíkir.

Jeg hefi nú gert grein fyrir, hvað fyrir okkur vakir með þessari þáltill., og fer ekki frekari orðum um hana að sinni, nema jeg verði neyddur til að koma inn á atriði, sem jeg kæri mig ógjarnan um að minnast á. Jeg tel ósanngjarnt og óviðeigandi, að till. sje talin móðgun við nokkurn. Hún á að tryggja, eftir því sem föng eru á, að hjeruðin þurfi ekki að taka við þeim læknum, sem þau kæra sig ekkert um. Hjer er aðeins um tillögurjett að ræða, sem stjórnin gæti að vísu haft að engu, en sem í langflestum tilfellum yrði ekki notaður.