17.03.1923
Neðri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í D-deild Alþingistíðinda. (3403)
38. mál, Löggildingarstofan
Fyrirspyrjandi (Lárus Helgason):
Þar sem mjer er kunnugt um, að fjöldi landsmanna hefir verið óánægður með löggildingarstofuna frá byrjun og þar sem óánægja þessi mun frekar hafa aukist en minkað í seinni tíð, fanst mjer rjettmætt, að Alþingi fengi nú sem glegsta skýrslu um, hvað stofnun þessi hefir kostað landsmenn. Um starfrækslu hennar þarf ekki að fjölyrða. Landsmönnum er hún svo kunn; hún hefir þótt óhagfeld og dýr. Til þess nú að fá það rjetta fram, vildi jeg leyfa mjer að beina eftirfarandi spurningum til hæstv. atvrh. (KIJ) í framhaldi af fyrirspurn minni til hæstv. stjórnar á þskj. 38:
1. Hve miklu fje var varið úr ríkissjóði til stofnunar löggildingarstofunnar?
2. Hve marga menn hefir hún haft hvert ár um sig í þjónustu sinni, hverja og með hvað háum launum?
3. Hvað hefir hún kostað landsmenn árlega (hvert ár fyrir sig), þar með talið húsnæði, ljós og hiti og allur annar kostnaður?
4. Hve hár er kostnaðurinn samanlagður öll árin frá byrjun?
Þessum spurningum mínum vænti jeg, að hæstv. atvrh. (KIJ) svari svo nákvæmlega, sem honum er unt. Komi það þá fram, sem mig og fjölda manna hefir grunað, að hjer sje um of dýra og of umfangsmikla stofnun að ræða, þá er sjálfsagt að leggja hana niður sem fyrst, og mun jeg ásamt öðrum hv. þm. koma með frv., er gerir gagngerða breytingu í þessu efni.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta. Hæstv. atvrh. (KIJ) gefur væntanlega greið svör við spurningum mínum, og að þeim svörum loknum hefi jeg þá tækifæri til að ræða nánar um þetta mál.