17.03.1923
Neðri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í D-deild Alþingistíðinda. (3404)

38. mál, Löggildingarstofan

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Þó að hv. fyrirspyrjandi (LH) hafi bætt við nokkrum spurningum, skal jeg fyrst halda mjer við fyrirspurnina á þskj. 38. Hún er eiginlega 2 spurningar: hve mikið löggildingarstofan hafi kostað ríkið á ári hverju og hve miklar aukatekjur hún hafi haft árlega af verslun sinni frá verslunum landsins.

Jeg skal taka það fram, að jeg hefi leitað til forstöðumanns löggildingarstofunnar og fengið hjá honum þessar tölur, er jeg skal nú lesa upp. Svarið verður að mestu leyti tölur, enda var spurt um tölur.

Fyrri liðnum, hve mikið löggildingarstofan hefir kostað landið árlega, svarar forstöðumaður á þessa leið; jeg sleppi að lesa upp aura og læt standa á heilum krónum:

Árið 1918 ... kr. 1868,

— 1919 ... —18684,

— 1920 .... — 7443,

— 1921 .... — 8191,

— 1922 .... — 6840,

og eru það laun forstöðumanns og ferðakostnaður.

2. liðnum, um aukatekjur löggildingarstofunnar, svarar hann þannig, og eru þá löggildingargjöld og eftirlitsgjöld talin með tekjum af verslun:

Árið 1919 ... kr. 6025,

— 1920... — 28461,

— 1921... — 23949,

— 1922... — 20558.

Þetta eru brúttótekjur löggildingarstofunnar. Kostnaður við mannahald, húsaleigu o. s. frv. ekki dregið frá, en þegar það er gert, færast þessar upphæðir eðlilega mikið niður.

Fyrirspurninni mundi ekki þykja nægilega svarað, þó að henni sje í raun og veru svarað bókstaflega með þessu, nema því aðeins, að dreginn sje frá kostnaðurinn við þessa stofnun og skýrt frá tekjuafgangi hennar eða halla á rekstrinum.

Jeg skal fyrst tilgreina kostnað við mannahald. Árið 1919 var hann 3601 kr., þar af á verkstæði 1500 kr., 1920 mannahald alls 17351 kr., þar af á verkstæði 8616 kr., 1921 20065 kr., þar af á verkstæði 8865 kr., og 1922 var mannahald 16455 kr., af því á verkstæði 6620 kr. Jeg skal geta þess, að jeg hefi fengið 3 skýrslur frá formanni löggildingarstofunnar og ber þeim ekki algerlega saman, en munurinn er ekki verulegur.

Nú geri jeg ráð fyrir, að menn vilji ef til vill heyra, hvernig verkstæðið hefir borið sig sjerstaklega. Árið 1919 var 177 kr. tap á því, en hagnaður varð nokkru meiri á rekstri löggildingarstofunnar, svo að tekjuafgangur varð af öllu samanlögðu 52 kr. Árið 1920 var hagnaður af verkstæðinu 2310 kr., en alls varð hann 14559 kr. Árið 1921 varð tekjuafgangur af verkstæði 1291 kr., en hagnaður af öllu samanlögðu 6584 kr. og loks árið 1922 varð 1465 kr. tap á verkstæðinu, en að öllu samanlögðu varð þó hagnaður á rekstrinum, sem nam 1793 kr. þennan tekjuafgang, eða þó öllu fremur 2000 kr., býst forstöðumaður við að geta greitt til ríkissjóðs, þar sem hann telur ekki þörf að auka starfrækslufjeð.

Hv. fyrirspyrjandi (LH) lagði fleiri spurningar fyrir mig, t. d. hve margir menn hefðu verið í þjónustu löggildingarstofunnar og hve mikil laun þeir hefðu hver um sig. Jeg get einnig skýrt frá þessu. Árið 1919 hafði hún 4 menn í þjónustu sinni, 1920 7 menn, þar af 4 á verkstæði, 1921 6 menn, þar af 3 á verkstæði, og 1922 7 menn, og voru 3 þeirra á verkstæði. Jeg skal ekki lesa upp nöfn þessara manna; þeir munu fáum kunnir hjer, enda tel jeg ekki rjett að fara að draga þá inn í þessar umræður. Jeg hirði heldur ekki um að sundurliða laun þeirra, en skal þó taka fram, að mjer þykir kaup sumra æðihátt. Einn maður hafði t. d. 1921 4800 kr. í laun, og er það hærra en greitt er í flestum skrifstofum, og það þó að menn hafi unnið lengi á sama stað. En hjer getur ekki verið um það að ræða, að launin sjeu svo há vegna langrar þjónustu. Og þessi laun eru einnig hærri heldur en t. d. í stjórnarráðinu.

Um húsaleiguna er það að segja, að jeg get að vísu gefið skýrslu um hana og annan kostnað, en sje ekki ástæðu til að sundurgreina þetta svo nákvæmlega, þar sem jeg hefi skýrt frá tekjum þessarar stofnunar, mannahaldi og kostnaði við það og tekjuafgangi. Þó mun jeg gera það, ef mönnum er mjög umhugað að vita þetta.

Það er í sjálfu sjer rjett, að hv. þingdeild fái að vita, hvort löggildingarstofan hafi gert nokkurt verulegt gagn. Mjer fanst það felast í fyrirspurninni, að mikið gagn stæði ekki af henni, og sama kom fram í ræðu hv. fyrirspyrjanda (LH). Þykir mjer rjett, að báðar hliðar málsins komi greinilega í ljós, kostnaðurinn við þessa stofnun og gagnsemi hennar.

Forstöðumaðurinn getur sem dæmi þess, að við fyrsta eftirlit á árunum 1919–1921 voru 63% af járnlóðum ónothæft, en við 2. eftirlit aðeins 29%. Fyrra eftirlitið náði um alt land, en hið seinna einungis hjer í Reykjavík, en forstöðumaður tekur það fram, að við fyrra eftirlitið voru mælitækin í Reykjavík engu betri en annarsstaðar á landinu, og sje því þessi samanburður eigi fjarri sanni. Af koparlóðum voru ónothæf við fyrra eftirlitið 26%, en 9% við hið síðara, kvarðar 48% ónothæfir í fyrra skiftið, en 19% í hið síðara, og af mælikerum 68% við fyrra eftirlitið, en einungis 13% við 2. eftirlit. Sýnir þetta ljóslega, að röngum mælitækjum hefir farið stórum fækkandi síðan löggildingarstofan tók til starfa.

Forstöðumaður tekur sömuleiðis fram, að engin vanþörf hafi verið á því að yfirlíta mæliáhöld manna, er stafi sjerstaklega af því, að menn máttu kaupa þau hvar sem þeir vildu, án nokkurs eftirlits, og því hafi svo margir haft algerlega óhæfar vogir. Jeg skal leyfa mjer að lesa upp kafla úr skýrslu hans um þetta atriði:

„Jeg á hjer einkanlega við eina gerð borðvoga, sem vigtuðu oft 14 til 14 pundi skakt á 5 pundum, þegar þær fóru að slitna, og jafnvel nýjar vógu meira eða minna skakt, ef þær voru eigi vel gerðar, sem oft vildi við brenna. Verst við þessar vogir var það, að sá, sem vóg á þær, gat ráðið því, að þær vægju ætíð honum í hag, hvort heldur hann seldi eða keypti. Reyndar munu fáir verslunarmenn hafa vitað þetta, og þeir, sem vissu, líklega heldur ekki fært sjer það í nyt. Löggildingarstofan hefir bannað notkun þessara borðvoga“.

Hann getur þess einnig, að „margar aðrar vogir, sem voru þó af brúkanlegri gerð, voru svo stirðar vegna slits, ryðs og skemda, að þær gátu naumast talist vogartæki“. Því hafi ekki getað verið um mikla nákvæmni að ræða með slíkum áhöldum, auk þess sem flest hafi verið vilhöll. Á þessu hefir verið ráðin mikil bót.

Jeg vona, að með þessu sje sýnt fram á, að þó að þessi stofnun hafi verið dýr — ef til vill óþarflega dýr — hafi hún samt gert gagn. Skal jeg bæta því við úr skýrslu forstöðumannsins, að um það bil er löggildingarstofan tók til , starfa, komu kvartanir frá Spánverjum, að saltfiskspakkarnir stæðu ekki rjetta vigt. Síðan hefir ekki borið á þessu, „svo að líklegt er, að ein orsökin, og það ef til vill aðalorsökin, til þessara umkvartana hafi verið sú, að notuð voru vond vogartæki“, segir í skýrslunni.

Að endingu skal jeg geta þess, að nú hefir verkstæðið verið lagt niður, þannig að það er nú rekið fyrir reikning þeirra manna, sem þar vinna.