26.03.1923
Neðri deild: 29. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í D-deild Alþingistíðinda. (3414)
41. mál, landhelgi og landhelgisgæsla
Bjarni Jónsson:
Mjer þótti vænt um að heyra, að hæstv. forsrh. (SE) vildi ekki fara fram á meiri strandvarnir hjá Dönum en þeim er skylt að inna af hendi samkvæmt sambandslögunum.
Það hefir verið litið ýmsum augum á tillögur mínar í þessu máli, og skal ekki um það fengist. En auðvitað þykir mjer gott, þegar menn nú snúast á sveif með þeim. Knútur Berlin hefir sent okkur Einari Arnórssyni, íslensku nefndarmönnunum, þakkir fyrir að hlífa Dönum við fjárútlátum til strandvarna hjer við land og fyrir að vera þar snjallari dönsku nefndarmönnunum og nærgætnari í garð Dana.
Jeg hefi viljað hafa hreina reikninga og fara fram á það við Dani, sem við eigum að lögum, eins og ákveðið var, en ekki heimta meira. Jeg býst við, að ef krafið væri aukafjárframlaga, kæmu fram ný skilyrði, t. d. um að Danir rjeðu yfir íslenskum landvörnum, meðan fjárframlögin væru meiri en lög ákveða, og að eftirlitið yrði alt undir flotamálastjórn erlends ríkis. Það er eðlilegt, að á móti bón komi skilyrði og nýjar kröfur, og því er rjett að gefa ekki ástæðu til, að fram komi kröfur, sem betur væru óuppfyltar.
Mjer þykir vænt um, að hv. þm. virðast hallast að mínu máli, þar eð jeg er settur á þann stað, sem öldur brotna fyrst í þessu máli. Jeg vil segja, að ef við eigum að fara að leitast við að færa út landhelgissviðið, teldi jeg rjettara, að íslenska stjórnin notaði sjer heimild þá, sem felst í 7. gr. sambandslaganna, 2. málsgrein, til þess að senda mann utan, því að útlendingar geta aldrei samið eins vel fyrir okkar hönd og við sjálfir. Annars hefir áður verið leitað hófanna um þessi mál, löngu áður en fundurinn var haldinn á Akranesi, t. d. þegar Magnús Stephensen landshöfðingi samdi við Englendinga um að loka Faxaflóa og fiskimiðum þar, gegn því að leyfa landhelgina fyrir söndunum eystra. Það er nauðsynjamál að loka ýmsum góðum miðum, og vil jeg benda á, að skoskir firðir eru lokaðir fyrir Bretum sjálfum, þótt þeir verði að vera opnir fyrir öðrum. Ef þetta tækist, að fá friðun á miðum innan annesja hjer við land, þá verða þau tvö stórveldin um þessar ráðstafanir.