26.03.1923
Neðri deild: 29. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í D-deild Alþingistíðinda. (3419)

41. mál, landhelgi og landhelgisgæsla

Sigurður Stefánsson:

Jeg hefi hlustað á ræður hv. þm. Barð. (HK) og hæstv. fjrh. (MagnJ) og hefir skilist á svörunum, að ekki sje alt með feldu og að þessi umræddi sjóður — landhelgissjóðurinn — er geymdur alt öðruvísi en lög standa til. Í lögunum frá 11. nóv. 1913 stendur, að fje þetta skuli geyma í Landsbankanum. En jeg skildi það á ræðu hæstv. fjrh. (MagnJ), að þetta fje væri runnið í ríkissjóðinn, sem er alveg gagnstætt lögunum. Hæstv. ráðh. (MagnJ) segir engin lög vera brotin með þessu. Þetta er þó gagnstætt því, sem lögin mæla fyrir, og eru lögin því eins greinilega brotin eins og nokkur lög hafa nokkurntíma brotin verið. (Fjrh. MagnJ: það stendur hvergi, hve nær eigi að leggja fjeð í sjóðinn). Það eru bara hártoganir og útúrsnúningur, ef öðru er haldið fram. Það væri ekki talinn góður fjárhaldsmaður, sem eigi geymdi betur fje skjólstæðings síns.

Hæstv. fjrh. (MagnJ) taldi þetta fyrirkomulag sjálfsagt, til þess að ríkissjóður þyrfti ekki að taka lán. Þetta er hreinasta fjarstæða, og getur dregið til þess, að landhelgissjóðurinn verður alls ekki til taks, þegar til hans þarf að taka til þess, sem hann er ætlaður. Nema þá með því, að ríkissjóður taki lán til þess að endurgreiða þetta fje, sem ranglega hefir verið eytt í ríkisins þarfir. Hjer er því farið að eins og óskilvísir fjárhaldsmenn gera, sem ekki hafa fjeð til, sem þeim er trúað fyrir, þegar þeir eiga að svara því út. Jeg leyfi mjer því að draga það í efa, að þetta fje sje eins handbært og haldið er fram, ef til þarf að taka. Það er orðið uppetið eyðslufje, í stað þess að vera geymt á tryggum stað, nema Landsbankinn sje orðinn ótrygg stofnun.