09.05.1923
Neðri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í D-deild Alþingistíðinda. (3439)
62. mál, steinolíueinkasalan
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Jeg býst ekki við því, að málið hafi grætt mikið á þeim umr., sem fram hafa farið hjer síðan kl. 5. Því öll atriðin pro og contra var búið að taka fram áður. Jeg skal því ekki lengja umr., en aðeins víkja stuttlega að nokkrum atriðum.
Hv. þm. Barð. (HK) var að tala um það, að sjer þætti það miður, að jeg skyldi hallast að einkaverslun ríkisins. Hann mætti þó vita, að þetta er ekki nýtilkomið. Fyrir 10 árum samdi jeg mörg frv. í þessa átt, ásamt 4 mætum mönnum, og á einn af þeim enn sæti á þingi, tveir voru kaupmenn og einn nú kominn undir græna torfu. Jeg var þó ekki og er ekki á þeirri skoðun, að landið eigi að taka að sjer alla verslun, þótt sú tillaga hafi líka komið fram, og það frá einhverjum gáfaðasta bónda, sem setið hefir á þingi. Jeg hefi tilgreint í þessu efni kol og salt, og jeg skal játa það, að mjer flaug það í hug um daginn, þegar Austfirðir voru alveg saltlausir í hlaðafla, að landið þyrfti að taka saltsöluna að sjer líka.
Það hefir verið talað um það, að jeg hefði átt að tilkynna þingmönnum þennan samning. Má vera, en jeg bjóst altaf við því, meðal annars af blaðaumræðum um málið, að það kæmi fyrir á þinginu, og þá mundi hægt að upplýsa alt, enda hefi jeg nú í meira en mánuð verið reiðubúinn að svara þessari fyrirspurn og vænst þess daglega, að hún kæmi á dagskrá; svo það er ekki mjer að kenna, að það hefir dregist. Samningurinn verður nú lagður fram í skrifstofunni, svo þingmenn geti sjeð hann. Jeg skal geta þess í því sambandi, að jeg hefi orðið þess var, að þýðingin er ekki vel nákvæm á 2–3 stöðum, og mun jeg láta leiðrjetta það.
Hv. þm. Ísaf. (JAJ) þótti hagnaðurinn af olíunni of mikill og meiri en sanngjarnt væri fiskiveiðanna vegna. Ákvæði laganna um „hæfilega“ álagningu eru nokkuð teygjanleg, og þetta getur altaf verið álitamál, þó að mjer finnist eðlilegt, að nokkur hagnaður sje, enda lagði frsm. málsins á þingi 1917 mikla áherslu einmitt á þetta atriði.
Hv. 1. þm. Reykv. (JakM) þarf jeg ekki miklu að svara. Hann sagði, að menn úr stuðningsflokki mínum, Framsóknarflokknum, hefðu ætlað sjer að koma einkaverslun fram á síðasta þingi, en ekki treyst sjer til þess, þegar til kom. Um þetta er mjer alveg ókunnugt, en þetta er harla ótrúlegt, þar sem full heimild var til. Hann tók það enn fremur fram, að í þessu máli hefði mjer staðið voði frá báðum hliðum, frá Framsóknarflokknum, ef jeg hefði ekki tekið einkaverslun, og hins vegar frá þinginu, en jeg hefði heldur kosið að beygja mig undir flokksagann en þingviljann. Hann verður að halda um þetta hvað hann vill; jeg vil aðeins taka það fram, að mjer er ókunnugt um aðstöðu flokksins gegn mjer, hefði verslunin ekki verið tekin, en hins vegar hafði jeg fulla ástæðu til að ætla, að þingið mundi finna að þessu, eða einstakir þingmenn, en jeg var ekkert hræddur við það, eins og jeg vona, að umræðurnar sýni.
Hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) talaði um það, að svo óheppilega hefði tekist til, að stjórn Bandaríkjanna hefði orðið áskynja um þetta mál. Jeg sje nú ekki, að þetta sje neinn galdur, þótt hún fengi vitneskju um þetta. Fjelagið hjer símar auðvitað strax danska fjelaginu um samninginn. Það símar Standard Oil og Standard Oil hefir víst nóg ráð til þess að koma þessu á framfæri við stjórnina, svo þetta er alt ofureðlilegt. En það er hreinn misskilningur, að ullartollurinn standi í nokkru sambandi við þetta mál. Sú staðhæfing er alveg á borð við það, sem haldið hefir verið fram, ástæðulaust, um samband kjöttollsins norska og Spánarsamninganna íslensku. Í því máli er það nú upplýst, að Ísland er þar hvergi nefnt í umræðunum á þingi. Og um ullartollinn er það að segja, að hann komst á um áramótin 1921–22, eða um 8 mánuðum áður en enski samningurinn var gerður. Og á brjefi frá danska sendiherranum í Washington má sjá, að hann veit ekkert um samninginn fyr en löngu eftir að ullartollshækkunin er komin á.
Þá hefir þess enn fremur verið getið hjer — jeg veit ekki, hvort það er í aðfinsluskyni —, að jeg hafi talað um þetta mál við forstjóra D. D. P. A. í Kaupmannahöfn. Jeg þarf ekki að segja annað um það en þetta, að forstjórinn beiddist þess að mega tala við mig, og leyfði jeg honum það og taldi það sjálfsagða kurteisi; eða ætlast hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) til, að jeg sýndi honum ókurteisi?
Það hefir líka verið sagt, að steinolíufjelagið hjer væri algerlega ánægt með málið, eins og því væri nú komið. Það er alveg ágætt; en hví er þá altaf verið að bera það fyrir brjósti? Mjer hefir nú samt sem áður heyrst annað á framkvæmdarstjóra fjelagsins hjer.
Get jeg svo lokið máli mínu um fyrirspurnina með þeirri athugasemd, að minst hefir verið um hana sjálfa rætt, því þessar umræður sanna, að það er fremur landsverslunin en landsstjórnin, sem ýmsir þm. hafa viljað ná sjer niðri á.