09.05.1923
Neðri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í D-deild Alþingistíðinda. (3440)

62. mál, steinolíueinkasalan

Magnús Kristjánsson:

Jeg verð að neita mjer um þá ánægju að svara andmælendum mínum á þann hátt, sem mjer er skapi næst, og mun því vera mjög varkár og hógvær í orðum.

Hv. þm. Ísaf. (JAJ) er víst tvívegis búinn að taka fram sömu fjarstæðuna um óhæfilegan gróða landsverslunarinnar á olíunni og möguleikana á betri viðskiftum annarsstaðar. Honum er þó fullkunnugt, að gróðinn er ca. 6 kr. á tunnu, og getur það varla talist of mikið, eins og nú er ástatt og þegar óvíst er um, hvernig innheimtan gengur. Annars víkur þessum ákúrum út af gróða landsverslunarinnar dálítið undarlega við hjá þeim mönnum, sem aldrei amast við því, þó að einkafyrirtæki taki 3–4 sinnum meiri gróða. Um það, að betri kaup hafi verið hægt að fá annarsstaðar, þarf jeg ekki að tala, eða það, hverskonar tegundir þar hafi þá verið um að ræða, því olíurnar eiga ekki saman nema nafnið, eins og þessum hv. þm. (JAJ) ætti að vera kunnugt. Þessi ódýra olíutegund, sem hann gat um, er alls ekki sambærileg við þær tegundir, sem landsverslun hefir haft til sölu.

Þá kem jeg að hv. 3. þm. Reykv. (JÞ). Hann talaði um það, að við mættum ekki styggja stórveldin Já, mikill er þessi ótti orðinn, ef við megum nú ekkert gera, nema spyrja öll heimsins stórveldi um leyfi. Þá er niðurlæging okkar orðin fullkomin, og þetta megum við aldrei samþykkja, hvorki í orði nje verki.

Sami hv. þm. (JÞ) talaði einnig um það, að alveg hefði verið gengið fram hjá olíufjelaginu hjer í þessu máli. Þetta er þó ekki alveg rjett. Jeg veit, að í maí síðastl. var fjelaginu kunnugt um það, hvað til stóð, og samningurinn var ekki gerður fyr en í ágúst, svo að fjelagið gat gert tilboð, ef það hefði viljað, en engin skylda bar til þess að knjekrjúpa því til þess að það vildi sýna það lítillæti að gera boð í þessi viðskifti. Annars skal jeg ekki mikið víkja að þessum hv. þm. (JÞ), því hann er nú dauður, enda býst jeg ekki við, að hann verði betri viðskiftis dauður en lifandi. Það virðist í fljótu bragði nokkuð erfitt að finna samræmi í orðum hv. 3. þm. Reykv. (JÞ). Fyrst harmar hann mjög og átelur, að Hinu ísl. steinolíufjelagi hafi ekki verið gefinn kostur á þessum viðskiftum, en skömmu síðar lætur hann í ljós ánægju sína yfir þessu, því nú sje fjelagið orðið ánægt með sitt hlutskifti, hvað þetta snertir.

Hins vegar get jeg giskað á, af hverju fjelagið sje orðið svo ánægt með hlutskifti sitt. Það er líklega af því, að það er nýorðið fullsatt af gróðanum, og þeir menn, sem veitt hafa því forstöðu. Þeir kæra sig nú ekki um meiri peninga, en eru líklega farnir að hugsa eitthvað fyrir sálu sinni. Sjeu þeir nú orðnir ánægðir, þá er þetta einna líklegasta skýringin.

Þá var hv. þm. (JÞ) með einhverjar dylgjur um það, að jeg væri að reyna að friða mína samvisku. Jeg hefi ekki þjáðst mikið af þesskonar óþægindum um dagana, sem menn kalla samviskubit. Hvort það er af því, að jeg hefi gleymt samviskunni á hillunni heima, eins og sagt var forðum, skal jeg láta ósagt. En hafi átt að liggja í þessum orðum hv. þm. (JÞ) aðdróttanir um það, að jeg væri hjer að berjast fyrir persónulegum hagsmunum mínum, þá getur þar ekki verið um annað en vísvitandi róg að ræða.

Að endingu skal jeg svo geta þess, að hv. þm. (JÞ) kvaðst hafa litla trú á því, að af mjer eða minni stjórnmálastefnu myndi mikið gott leiða fyrir þetta land. Þessu svara jeg ekki öðru en því, að jeg ber að vissu leyti nokkurt traust til þessa hv. þm., því hann hefir margsýnt það, að hann er fær um að gæta sinna eigin hagsmuna, hvað sem öðru líður. En hitt er ekki þar með sagt, að hann hafi reynst öðrum eins þarfur. Að minsta kosti hefi jeg þá trú, að þessi landsfrægi áætlanameistari og Flóaáveituforstjóri verði landinu aldrei til eins mikilla þrifa og hann hefir orðið sjálfum sjer.