09.05.1923
Neðri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í D-deild Alþingistíðinda. (3441)

62. mál, steinolíueinkasalan

Jón Þorláksson:

Með því að hv. þm. Ak. (MK) hefir tekið orð mín svo, að þau hafi átt að vera aðdróttun um það, að afstaða hans í þessu máli lyti persónulegum hagsmunum hans, þá vil jeg taka það fram, að mjer dettur ekki í hug að drótta neinu slíku að honum. Um leið vil jeg svo skjóta því fram, að fróður maður hefir nýlega fullyrt við mig, að ullartollurinn í Bandaríkjunum hafi gengið í gildi 1. janúar 1923.