05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í D-deild Alþingistíðinda. (3445)
108. mál, ullariðnaðarmálið
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Mjer kom upphaf ræðu hv. fyrirspyrjanda (EE) dálítið kynlega fyrir, þar sem hann var að álasa mjer fyrir það, hve svar mitt kæmi seint. Fyrirspurninni var útbýtt 26. mars, og gat jeg ekki svarað henni fyr en jeg hafði fengið skýrslu frá ullariðnaðarnefndinni. Sú skýrsla kom 31. mars, og fáum dögum síðar tilkynti jeg hæstv. forseta, að jeg væri reiðubúinn að svara fyrirspurninni. Það er því ekki mjer að kenna, heldur málafjöldanum á þingi, að fyrirspurninni hefir ekki verið svarað fyr en þetta. Að öðru leyti má taka það fram, að þessi fyrirspurn er nú orðin óþörf í raun og veru. Hv. fyrirspyrjandi (EE) hefir að ýmsu leyti svarað henni sjálfur í umræðunum um fjárlögin.
Ullariðnaðarnefndin skýrir svo frá, að á árunum 1910–1914 hafi útflutt ull numið að meðaltali tæpri 1 miljón kg., eða um 11/2 milj. kr. á ári, en það sje að verðmæti 1/3 hluti allra útfluttra landsafurða og um 1/12 hluti alls útflutnings landsins á þeim árum.
Í landinu sjálfu hefir verið unnið úr talsverðri ull. Árið 1921 vann verksmiðjan á Álafossi úr 53500 kg. af ull og Gefjun á Akureyri úr 51500 kg., og er þar með talin kembd og lopuð ull. Í heimahúsum gerir nefndin ráð fyrir, að unnið hafi verið úr 20000 kg. Innanlands hefir því verið unnið úr 125000 kg. af ull árið 1921, en það er 1/9 af allri ullarframleiðslu í meðalári. Útflutningur ullarvarnings hefir mjög rjenað. Það er einungis frá Akureyri, sem nokkuð er flutt út að ráði, enda er það kunnugt, að öll tóvinna stendur með mestum blóma í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu.
Árið 1921 voru vefnaðarvörur fluttar inn fyrir kr. 2670000. Hefir nefndinni talist svo til, að í stað að minsta kosti 40% af þessum innflutta vefnaði hefði mátt nota íslenskar vefnaðarvörur. ef innlendur ullariðnaður væri í góðu lagi. Við það mundu sparast um 1100000 kr., miðað við núverandi innflutning, og þyrfti til þess 100000–150000 kg af ull.
Að þessu athuguðu telur nefndin sjálfsagt að auka ullariðnaðinn með því að efla heimilisiðnað. Þó kveður nefndin heimilisiðnaðinn ekki geta fullnægt dúkaþörf landsmanna, og sje því ullarverksmiðjuiðnaður nauðsynlegur í landinu sjálfu. Ætlar nefndin ódýrast og best að sameina kembi-, lopa- og spunavjelar við fullkomna ullarverksmiðju, en hafa þær ekki sjerstæðar.
Þá telur nefndin sjálfsagt að vinna fyrir útflutningi íslenskra ullarafurða, jafnframt því að fullnægja sem best innanlandsþörfunum. Með ötulli rannsókn og tilraunum sjeu allar líkur til, að talsverður markaður fáist erlendis fyrir slíkar afurðir.
Kostnaðinn við að koma á fót kembi- og lopavjelum telur nefndin hjer um bil 130000 kr., miðað við að vjelarnar sjeu aðeins tvöfaldar, það er að segja 2 vjelar, er taki við hvor af annari. Þessa staði kveður nefndin heppilegasta: Við Bjarnarstaðalæk í Austur-Húnavatnssýslu, við Langalæk hjá Mýrum í Dýrafirði, við Reykjafoss í Ölfusi, í Reykjavík og í Seyðisfjarðarkaupstað.
Þá tekur nefndin fram, að flestur verksmiðjurekstur borgi sig þeim mun betur, sem hann sje í stærri stíl, og eigi það einkum við um ullariðnað. Sje því heppilegast að hafa verksmiðjurnar einungis 2, aðra á Suðurlandi, en hina á Norðurlandi. Stærðin þyrfti ekki að vera hin sama á báðum stöðunum. Nefndin telur Gefjuni betur útbúna en Álafossverksmiðjuna; þar sje alt fremur í afturför og á fallanda fæti. En þessar verksmiðjur fullnægi ekki þörf landsmanna, og sje því brýn nauðsyn á að koma á fót fullkominni nýtísku ullarverksmiðju. Ætlar nefndin heppilegast, að slík verksmiðja yrði sett á Suðurlandi, og bendir á 3 staði: í Reykjavík, í nágrenni Reykjavíkur, og í þriðja lagi við Reykjafoss í Ölfusi, ef járnbraut kæmi austur.
Reykjavík telur nefndin það til gildis, að samgöngur og flutningar yrðu þar greiðastir og ódýrastir. Þar þyrfti ekki að reisa verkamannabústaði og þar fæst raforka til rekstrar. Aftur sje Reykjavík dýr, þegar litið sje til verkalaunanna og skattgreiðslu. En lóð fengist sennilega ódýr í landi bæjarins. Í nágrenninu við Reykjavík væri Álafoss heppilegastur. Þar fáist heitt vatn til upphitunar úr hverunum í nágrenninu, þar mætti fá verkamönnum landskika til ræktunar, verkakaup sje þar lægra og vistin hollari verkamönnum. Aftur þyrfti að rífa þar gömlu verksmiðjuna og reisa sjerstakt hús fyrir verkamennina.
Stærð verksmiðjunnar vill nefndin miða við 20 vefstóla, 3–4 kembivjelar og 4 spunavjelar. Mætti byrja með færri vjelum, en húsið ætti að miða við þetta. Slík verksmiðja ætti að geta unnið dúka úr 170000 kg. af ull árlega og lopað úr 50–100 þús. kg. Þessi verksmiðja ætti að geta, ásamt klæðaverksmiðjunni á Akureyri, fullnægt kembingar-, lopa- og spunaþörf landsmanna, fullnægt klæðaþörf þeirra, að svo miklu leyti sem það verður gert með íslenskum ullarvefnaði, og í þriðja lagi unnið garn, teppi og dúka til útflutnings, í litlum stíl að vísu, en nægilega mikið til þess að fá reynslu erlendis.
Nefndin áætlar stofnkostnað við slíka verksmiðju um 1850000 kr., auk kostnaðar við að reisa verkamannahús. Skýtur þetta dálítið skökku við það, sem jeg sagði um daginn í fjárlagaumræðunum. Þar nefndi jeg 1200000 kr., og hafði þá tölu eftir manni, er hafði átt tal um þetta við erlendan verksmiðjueiganda. Starfsmenn gerir nefndin ráð fyrir að verði 50–60.
Nefndin telur heppilegast, að fyrirtækið sje hlutafjelag, er ríkissjóður ætti hluta í. Það var einnig skoðun hins erlenda verksmiðjueiganda, er lagði til, að ríkissjóður legði fram þriðjung.
Aðalniðurstaða nefndarinnar er því sú, að rjett sje að koma upp öflugri og fullkominni klæðaverksmiðju með alt að 20 vefstólum og nægum kembivjelum. Sú verksmiðja ætti að vera í Reykjavík eða nágrenni við hana. Sje um fleiri verksmiðjur að ræða, er bent á Vestdalseyri við Seyðisfjörð og Búðareyri í Reyðarfirði.
Jeg hefi þá skýrt stuttlega frá störfum og tillögum ullariðnaðarnefndarinnar, og hygg jeg, að það muni nægja, enda liggur útdráttur úr skýrslu nefndarinnar frammi, til sýnis hv. þm.
Þá er spurt um, hvað stjórnin hyggist fyrir í þessu máli. Í þessu atriði verður stjórnin sama sem jeg, því að jeg hefi ekki borið mig saman við hæstv. forsrh. (SE) um málið. Eftir að hafa íhugað álit nefndarinnar, hefi jeg fallist á, að ráðlegast sje að stofna eina verksmiðju. Jeg geri ekki ráð fyrir, að verksmiðjan á Akureyri verði lögð niður; hún er einkafyrirtæki og hefir gefið góðan arð síðastliðið ár. Hins vegar er þess ekki að vænta, að þessi verksmiðja geti orðið svo fullkomin, að hún geti fullnægt þörfum alls landsins. En með aðstoð hennar ætti það að vera auðvelt einni verksmiðju á Suðurlandi. Fleiri verksmiðjum sje jeg ekki ástæðu til að koma á fót, auk þess, sem engar líkur eru til, að fje fáist til þess í náinni framtíð.
Jeg get svo látið máli mínu lokið, og vænti þess, að þetta fullnægi hv. fyrirspyrjanda (EE).