12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í D-deild Alþingistíðinda. (3461)

42. mál, ferðalög ráðherra

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Hæstv. forsrh. (SE) gat þess, að hann áliti, að rjett væri að fjármálaráðherra ætti að svara hinum fyrirspurnunum.

Er það rjett, að hann hjelt þessu fram á ráðherrafundi, en fyrv. fjrh. (MagnJ) var á annari skoðun og gerði heldur ekkert til þess að undirbúa sig undir að svara þeim.

Jeg skal engan dóm á leggja, hvor rjettara hefir, en verð að geta þess, að síðan jeg tók við fjármálunum, er svo stuttur tími og jeg hefi verið svo störfum hlaðinn, að mjer hefir ekki verið unt að afla þessara upplýsinga, þótt jeg hefði talið mjer það skylt. Er mjer um sumt þetta alls ókunnugt, t. d. um eftirlaun bankastjóranna. Jeg hefi grenslast eftir því, en ekki fengið um að vita, hver þau eru.

Jeg skal þá skýra stuttlega frá erindi og tilgangi þeirrar einu utanlandsfarar, sem jeg hefi farið síðan jeg varð ráðherra. Hún kostaði 3700 kr. og stóð í 8 vikur. Umboðslegir embættismenn Norðurlanda mynduðu með sjer fjelagsskap fyrir nokkrum árum og hjeldu fyrsta fund sinn í Kristjaníu 1920. Annar fundur var svo haldinn í Stokkhólmi í ágústmánuði síðastl. ár. Var boðið þangað miklum fjölda embættismanna víðsvegar að af Norðurlöndum. Sjerstaklega fjölmentu Finnar mjög til mótsins. Hafði þeim gengið nokkuð treglega að fá að vera þátttakendur og vera viðurkendir sem Norðurlandaþjóð, en þegar það var fengið, vildu þeir hafa þátttökuna sem veglegasta og sendu meðal annars einn ráðh. á fundinn. Það hafði talast svo til milli hæstv. forsrh. og hr. Jóns Krabbe, að hann sækti mót þetta fyrir Íslands hönd og flytti þar fyrirlestur um embættismannastjettina hjer. En þegar hann frjetti um viðbúnað Finnanna, þá símaði hann upp og mæltist eindregið til þess, að einhver ráðherranna færi þangað. Varð það svo að samkomulagi, að jeg færi þangað. Hafði jeg hina mestu ánægju af ferð þessari, því jeg varð þess alstaðar var, að þessar nánu frændþjóðir vorar höfðu fullan skilning um sjálfstæði vort, og Íslandi var gert jafnhátt undir höfði alstaðar. Blakti t. d. íslenski fáninn yfir hóteli því, er jeg bjó á, og við inngöngudyr ríkisdagsins sænska meðal fána hinna þjóðanna.

Þetta var nú aðaltilgangur fararinnar, en svo vakti það líka fyrir mjer að grenslast um kjöttollinn, sem norska ríkisþingið hafði þá nýlega samþykt. En þegar til kom, var sendiherra Sveinn Björnsson búinn að gera alt, sem þá var hægt að gera, í því máli.

Frá Stokkhólmi fór jeg til Hafnar og var þar dálitla stund. Sá jeg þá í íslenskum blöðum, að steinolíueinkasalan, sem stjórnin hafði þá alveg nýlega tekið í sínar hendur, var gerð mjög að umtalsefni og mikilli „kritik“ beint til mín út af því máli.

Jeg taldi því nauðsynlegt að kynna mjer fjelag það, er við hafði verið samið, og fór því til London í þessu skyni. Sá jeg allan útbúnað fjelags þessa og sannfærðist fljótt um, að það var svo voldugt og ábyggilegt, að engin hætta var á því, að það uppfylti ekki allar sínar skuldbindingar. Fór jeg svo til Kaupmannahafnar aftur og þaðan áleiðis til Íslands um Kristjaníu, aðallega til þess að grenslast um ýmislegt viðvíkjandi járnbrautarmálinu. Hafði þá norski verkfræðingurinn, Sverre Möller, verið hjer uppi til að athuga um járnbrautarlagningu.

Vildi jeg aðallega kynna mjer það, hvort og að hve miklu leyti væri farið að nota bílvagna í stað járnbrauta. Átti jeg tal um þetta við vegamálastjóra Noregs, og sagði hann mjer, að í Ameríku og jafnvel í Noregi væri sú stefna upptekin að hætta að nota „lokal“ járnbrautir, en nota bíla í staðinn. Hefði þetta þá kosti, að lagning veganna væri ódýrari en járnbraut, og vagnarnir einnig ódýrari en járnbrautarvagnar. Þar fekk jeg ýmsar góðar upplýsingar þessu viðvíkjandi, en þar eð járnbrautarmálið er enn ekki komið svo langt, að það verði lagt fyrir þingið að þessu sinni, verður þetta að bíða þess tíma, en þess mun varla lengi að bíða, og þá vona jeg, að þessar upplýsingar geti komið að haldi. Hefi jeg þá gert grein erindis míns.