12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í D-deild Alþingistíðinda. (3462)

42. mál, ferðalög ráðherra

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Jeg hefði óskað, að hæstv. forsrh. (SE) hefði svarað nokkuð ítarlegar, en taka vil jeg það fram, honum til heiðurs, að hann hefir svarað því sæmilega, er honum sjálfum viðkom. En annars var nokkuð erfitt að átta sig á skýrslu hans við hraðan yfirlestur, en hún kemur nú í þingtíðindum og verður kjósendum kunn.

Vil jeg svo fara nokkrum orðum um einstaka liði hennar.

Það var ekki samkvæmt efni og formi fyrirspurnarinnar, að mörgum ferðum væri blandað saman í skýrslunni. Jeg vildi komast eftir því, hvað hver einstök ferð hefði kostað og hvert gagn hefði að orðið.

En svo jeg víki nokkrum almennum orðum að þeim fyrirspurnum, sem fram hafa komið, skal jeg geta þess, að ef það væri rjett hjá hæstv. forsrh. (SE), að fyrv. fjrh. (MagnJ) hefði átt að svara fyrirspurn, þá átti hæstv. forsrh. að knýja hann til þess sem sinn undirmann. Annars er það ekki vafamál, að hæstv. forsrh. hefir átt að svara til saka.um, hvernig farið var með fje bankans í launagreiðslum, þar sem hann sjálfur hafði framkvæmt verknaðinn. Og sumt í spurningunum var þess eðlis, að það gat enginn svarað því nema hæstv. forsrh., þar sem það hefir verið ákveðið á bankaráðsfundum, að enginn mætti vita um það, sem þar gerðist, og því auðvitað ekki heldur fjármálaráðherra. Hefir nú líka hæstv. núverandi fjrh. (KIJ) sagt, að honum væri ókunnugt um ýmislegt, er að bankanum laut, og er það ekki nema eðlilegt, er hæstv. forsrh. og samstarfsmenn hans hafa komið sjer saman um að halda öllu leyndu.

Þetta innsigli óleyfilegrar leyndar vildi jeg brjóta. Þjóðin, sem borgar ágóðahlutann, 8% vöxtu, eftirlaunin og fleira, á fulla heimtingu á því að vita um allar þessar ráðstafanir. Er hæstv. forsrh. skilyrðislaust skyldur til að svara þessu og upplýsa um leyndarmál þess hrings, sem hann er formaður í. Það er ekki rjett hjá hæstv. forsrh. (SE), að það megi ekki beina þessari spurningu til formanns bankaráðsins. Það á einmitt að beina henni til hans. Hann er kosinn af þjóðinni til þessa trúnaðarstarfs, og hann er þar hennar vegna en ekki sín.

Það eru þessar upplýsingar, sem hefir verið vanrækt að koma með, og þetta er einn af veiku þáttunum hjá hæstv. forsrh. (SE), og það veldur mjer hrygðar, að svo skuli vera, jafnheilbrigðar skoðanir og þessi maður hefir um ýms önnur mál. En hjer hefir hann brugðist vonum sinna fyrv. stuðningsmanna. Hefi jeg viljað taka þetta fram alment, því nú er síðasta úrræðið á þessu þingi.

Jeg var ekki ánægður með svör hæstv. forsrh. (SE) um hlutaeignina í Íslandsbanka. Mun íslenskum kjósendum ekki finnast þessi spurning jafnfávísleg sem hæstv. forsrh. (SE) og hv. 4. landsk. þm. (JM). Hafa landsmenn fylgst með þessu með hinni mestu eftirtekt, og óánægjan eykst, er reynt er til að fela hið sanna. 1907 lýsti hæstarjettardómari Lárus H. Bjarnason, sem þá var þingmaður, því yfir á þingi, að margir þáverandi þm. mundu eiga hluti í bankanum. Var þessu ekki mótmælt, og sýnist þá hafa verið auðvelt að fá upplýsingar um þetta. Nú er reynt að vinda þessu á bug með því að segja, að flest brjefin sjeu handhafabrjef og þau, sem eru nafnbrjef, gangi kaupum og sölum. Jeg held nú samt, að það sje ekki erfitt að fá vitneskju um þetta, því jeg hefi fengið hana óbeðið. Hafa 2 dómarar, búsettir utan Reykjavíkur, sagt mjer, að þeir ættu hlutafje þar, annar 20 þús. og hinn nokkrar þúsundir, og var þó annar þeirra ekkert kunnur mjer. Mundi ekki hafa þurft meira en senda mönnum þessum brjef og biðja þá um skýrslu, sökum þess að hlutaeign þeirra þætti máli skifta.

Er það auðsætt, að það skiftir ekki svo litlu máli, hvort alþingismenn eru hluthafar, þegar greiða á atkvæði um ýms mál, er bankann varða.

Sýnist ekki nema rjett, að þeir láti hjá líða að greiða atkvæði um öll hagsmunamál bankans. Sama má segja um dómara. Það sýnist sjálfsagt, enda slegið föstu í hæstarjettarlögunum, að dómarar dæmi ekki í þeim málum, er þá sjálfa getur varðað, og eigi því að víkja sæti. Það er því mjög ranglátt gagnvart þjóðinni að svara ekki þessum fyrirspurnum, og það er einnig mjög óþægilegt fyrir þá menn, er þarna eiga hlut að máli, þ. e. dómarana. Má geta þess, að nú er fyrir hæstarjetti mál milli Íslandsbanka og landssjóðs. Getur það munað landið alt að 100 þús. kr., hversu sá dómur verður.

Þá kem jeg að efni fyrirspurnarinnar. Skal jeg ekki víkja mikið að einstökum ferðum, aðeins fara nokkuð inn á tvær, sem skera sig út úr. Eru það 2 ferðir hv. 4. landsk. þm., fyrv. forsrh. (JM), önnur til útlanda og hin eftirlitsferð til Eyjafjarðar. Mintist hann hennar ekkert í afsökunarræðu sinni. Geri jeg þetta sjerstaklega sökum þess, hve þessi hv. þm. varð æstur, er á þetta var minst. Var líkast því, sem væri verið að brenna hann lifandi á báli.

Jeg skal þegar taka það fram, að jeg tek ekki hátíðlega þau mótmæli, að ekki megi tala um nein útgjöld landssjóðs, enda þótt búið sje að samþykkja þau og nokkuð umliðið síðan þau gerðust. Eykur það ekki traustið á trúnaðarmönnum þjóðarinnar, er þeir reyna að fela sig á bak við elli gamalla reikninga.

En viðvíkjandi fjáraukalögunum er það að segja, að allmargir hv. þm. lögðu áherslu á það í gær að komast burtu, og gat jeg því ekki komist hjá því að sleppa því að minnast á ýms atriði, sem jeg annars hefði viljað drepa á, til þess að lengja ekki umræður, svo að þm. yrðu af skipsferðinni. En þessi meiningamunur milli mín og hv. 4. landsk. þm. (JM) er mestmegnis um söguleg atriði, og getur því oft komið til umræðu milli okkar en á þingum. Við eigum alllangt eftir enn af kjörtíma okkar, ef hepni er með, alt að 7 árum. Hefi jeg því hugsað mjer að geyma margt, sem jeg þá gæti rætt við hann síðar. Jeg greiddi atkvæði á móti fjáraukalögunum fyrir 1920–21, vegna þess, að jeg álít, að til mála gæti komið, að þau yrðu athuguð fyrir landsdómi. (JM: Það er rjett leið og vel þingleg, og hefi jeg ekkert við það að athuga). Þessi hv. þm. (JM) hefir enga ástæðu til að frýja mjer hugar; jeg þori vel að sækja þessi mál hvar sem er, og því hefi jeg lagst svo á móti þessum fjáraukalögum, að jeg sá ekki ástæðu til að afgreiða þau hjer, en taldi hins vegar líklegt, að þeim mætti koma á annan vettvang og fá þau athuguð þar. Mjer er það ekki gleðiefni, að þessar umræður um fjáraukalögin hafa vakið mikla eftirtekt bæði í blöðunum og víðsvegar annarsstaðar. Hafa þegar margir menn skrifað mjer utan af landi og beðið mig um að útvega sjer þetta fjáraukalagafrumvarp. (SHK: Þeir hafa líklega lesið Tímann, en vilja nú fá að sjá heimildir hans). Já, þetta mun rjett vera; þeir hafa lesið Tímann, en því miður er jeg viss um, að þegar þeir fá frumheimildina, verði áfellisdómurinn á fyrverandi stjórn enn þá þyngri.

Jeg tek þá til samanburðar ferð hæstv. atvrh. (KIJ) í 2 mánuði um Bergen, Kristjaníu, Stokkhólm og London. Kostnaður eftir skýrslu forsætisráðherra nú í dag er 3700 krónur. En hv. 4. landsk. þm. (JM) fer 1920 öllu styttri ferð um London, Bergen og til Kaupmannahafnar, og eyðir þá meira en 9 þús. kr. Er því styttri ferðin alt að því helmingi dýrari. Það skal að vísu strax játað, að nokkru munaði á því, að það var dálítið dýrara að ferðast 1920 en nú í haust, en þó eigi svo, að þessu nemi eða neinu í þá átt. Eftir því sem jeg hefi getað athugað tölurnar viðvíkjandi ferð hæstv. forsrh. (SE), álít jeg, að þar sje miklu fremur stilt í hóf; þær ferðir eru ekki ódýrar, en þó ekki dýrar svo úr hófi keyri. Jeg hefi og nokkra reynslu í ferðalögum sjálfur, enda þótt jeg hafi aldrei ferðast sem ráðherra, og ferðareikningi hæstv. atvrh. (KIJ) finst mjer vera mjög stilt í hóf. Hefir þar verið ferðast sem sæmilegt var stjórnanda eigi ríkara lands en Íslands. Það var aðeins til athlægis, þegar sendimenn og kaupmenn frá Íslandi komu til New York og leigðu á Hotel Astor forðum. Er miður líklegt, að þeim hafi tekist að „imponera“ Ameríkumenn með fjáreyðslu, eða vjer álitnir meiri menn eftir en áður, fyrir heimskulegt yfirlæti.

Það er þessi 9 þús. kr. ferð hv. 4. landsk. þm. (JM), sem hann vildi reyna að verja gagnvart þjóðinni, enda grípa þessar umræður hann furðu ónotalega, eins og hann hefði ekki góða samvisku. Hefi jeg heyrt margt talað um þá ferð. Jeg vil nú fá að heyra, hverju hann hefir til að svara um nokkra liði í þessum 9 þús. kr. reikningi, sem ekki ætti að vera fordæmi fyrir aðra ráðherra.

Það eru þá þessir 12 dagar, sem hann dvaldi í London og kostuðu um 150 sterlingspund. Reiknað eftir meðalgengi á pundinu, eru það um 3 þús. kr., sem þarna hafa eyðst. Þegar jeg var á ferð í London sama sumarið, varð jeg eigi var við, að erfitt væri fyrir ferðamenn að fá þar herbergi í gistihúsum. En hitt rengi jeg eigi, að hann hafi eytt þessu þar, og verð því að telja framferði hans óspilun í meira lagi. Þá kostaði ferðin frá London til Edinborgar 17 sterlingspund. Jeg hefi að vísu aldrei ferðast nema á 3. farrými þá leið, en hygg, að 1. farrými kosti á þessari leið um 5 sterlingspund, svo þetta mun vera liðlega þrefalt við það, sem þörf var á. Á ferðinni frá London um Newcastle til Bergen eyðir hann 12 hundruð krónum. Jeg fór um þessa sömu staði sama sumarið, og reyndist mjer þetta dýrasti kafli ferðarinnar, sem kostaði mig um 200 kr. En hvernig er hægt að fara að eyða 1000 krónum í viðbót milli Kaupmannahafnar og London, veit jeg eigi, nema fyrir menn, sem hegða sjer eins og síldargrósserar.

Þetta voru tveir fyrstu liðirnir, 3 þús. kr. +12 hundruð. Þá finst mjer það og laglega gert í Kaupmannahöfn að eyða á einum mánuði um 4 þús. kr., en þeir, sem aldrei hafa verið ráðherrar, skilja þetta ef til vill ekki. Jeg þekki til manns, sem var erindreki í Kaupmannahöfn 1920, og sagði hann, að það kostaði sig þá um 1000 kr. á mánuði að vera þar á þessháttar ferðalagi. Þessi ferð hv. 4. landsk. þm. (JM) sker sig því út úr öllum öðrum slíkum ferðum. Mjer dettur ekki í hug að tortryggja það, að hann hafi eytt öllu þessu og að hann hafi gefið sannan reikning, en jeg vildi aðeins með þessum umræðum fá það upplýst, hvernig ætlast er til, að stjórnendur þessarar þjóðar eigi að hegða sjer á ferðalögum erlendis. Vjer erum í engu þessu sambærilegir við stórþjóðirnar; efnahagur okkar hefir aldrei verið í neinu hlutfalli við þeirra efnahag. Það, sem getur farið vel á indverskum prins, á ekki við íslenskan ráðherra.

Það er ein ferð hv. 4. landsk. þm. (JM) enn eftir ótalin, er hann fór hjer norður til Eyjafjarðar landveg, og kostaði yfir þúsund kr. Þó voru honum lagðir til af landinu hestar til ferðarinnar — konungshestar svonefndir. Þetta er rándýr ferð, svo að firnindi má telja.

Árið 1920 hefir sálarfræðislega skoðað verið ilt ár. Stjórnin leyfði sjer þá margt, sem var í ósamræmi við hag þjóðarinnar. Þess vegna eru þessi dæmi, sem hjer er rætt um, góð til þess að skýra, hversu mikið undrunarefni það varð þjóðinni, er fjáraukalögin 1920–21 voru birt. Almenningi hefir eigi enn orðið vel ljóst, í hve miklu gullaldargengi stjórnendur vorir hafa þá lifað.

Oft hefir heyrst minst á enn aðra eyðslu, sem mjer er eigi vel ljóst, fremur en öðrum, hvernig hefir getað átt sjer stað. Það er það, hvernig hægt var að eyða um 175 þús. kr. til læknisbústaðar á Vífilsstöðum — eitt einasta hús —, og svo þetta, að þar á eftir var varið 20 þús. kr. til þess að breyta gamla læknisbústaðnum í barnahæli. Jeg þykist vita, að lagaheimild hefir verið til þess að byggja þetta, en jeg held því fram, að þarna hafi ekki verið viðhöfð sú gætni fyrir hönd ríkissjóðs, sem einstaklingar viðhafa um sinn eiginn hag. Bestu menn hafa undrast það, hvernig stóð á því, að farið var að eyða öllu þessu í læknisbústaðinn, þegar svo þurfti 20 þús. kr. til þess að breyta gamla læknisbústaðnum í barnahæli. Það hefði að öllum líkindum verið hyggilegra að byggja heldur sjerstakt barnahæli, en láta læknisbústaðinn nægja með viðgerð.

Jeg veit, að við nánari athugun mun hv. 4. landsk. þm. (JM) átta sig á því, að þetta er alment mál, að borgararnir spyrji um það, hvernig trúnaðarmenn þjóðarinnar verji sínu pundi; en fyrir mjer er það aðalatriðið að slá því föstu, að enginn forsætisráðherra leyfi sjer að halda því fram, að hann geti haft heimulegheit gagnvart þinginu sem bankaráðsmaður. Vænti jeg, að þjóðin mótmæli því atferli hans kröftuglega.

Í öðru lagi vildi jeg, að það kæmi aldrei fyrir, að nokkur einstakur ráðherra, eða opinber starfsmaður, færi eins út úr samræmi við hið „normala“ með eyðslufje sitt, eins og hv. 4. landsk. þm. (JM) gerði á því herrans ári 1920. Jeg held, að landsstjórninni hjer hafi stigið nokkuð til höfuðs völdin og titlarnir árið 1920.

Hv. 4. landsk. þm. (JM) talar um ofsóknir á sig í blöðunum, og segir þó, að þær hafi lyft sjer upp á við. Já, ef til vill í augum kaupmannaliðsins og brennivínsmanna. En að öðru leyti hygg jeg, að komi það fyrir hann að taka við völdum aftur í þessu landi, þá muni hann, fyrir þessi mín hógværu orð í dag, geta orðið betri og nýtari ráðherra en hann var áður, og við nánari athugun mun hann verða mjer þakklátur fyrir það, sem jeg hefi gert fyrir hann í þessu máli.