04.05.1923
Efri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í D-deild Alþingistíðinda. (3471)
112. mál, hlutfallið milli eyðslu landssjóðs til starfsmannahalds og verklegra framkvæmda
Fjármálaráðherra (KIJ):
Jeg er sammála hv. fyrirspyrjanda (JJ) um, að það hefði mátt svara fyrirspurn þessari fyr. Það hefði meira að segja mátt svara henni strax eftir 2–3 daga, og svarið hefði þá orðið sama og nú, að fyrirspurnin er alt of yfirgripsmikil til þess, að hægt sje að svara henni ítarlega að þessu sinni. Einn af skrifstofustjórum stjórnarráðsins spurði einn alkunnan starfsmann, sem er þessum málum mikið kunnugur, hve langan tíma þyrfti til að búa sig undir að svara þessari fyrirspurn, og hann sagði, að einn maður mundi þurfa 5 mánuði. Jeg hygg nú, að þetta sje ofmælt, en það mun ekki of mikið í lagt, að einn maður þurfi tvo mánuði til þess. Hjer þarf að rannsaka landsreikningana fyrir 22 ár og taka hvert atriði í fjárlögunum til greina. Þótt fyrirspurnin sje ekki nema í 3 liðum, þá felast í hverjum lið margar aðrar fyrirspurnir, sem sjest, er menn athuga liðina. Þótt þetta sje að vísu merkilegt atriði fyrir hagfræði landsins. Þá hygg jeg, að það þurfi ekki svona ítarlega sundurliðun, sem hv. 5. landsk. þm. (JJ) gerir ráð fyrir. Það er ómögulegt að svara þessari spurningu ítarlega nú, en mun Verða hægt á næsta þingi, en þeirri gagnspurningu vil jeg beina til hv. 5. landsk. þm. (JJ), hvort hann geti ekki fallist á að takmarka þetta nokkuð og hafa sundurliðunina ekki svona ítarlega.
Annars stendur svo einkennilega á, að jeg get svarað fyrirspurninni nokkuð ítarlegar en aðrir, því jeg hefi sjerstaklega rannsakað þetta spursmál áður og samið ritgerð, sem út kom í Andvara 1917, er heitir: Fjárhagsstjórn Íslands 1875–1915. Þar hefi jeg sundurliðað það, er hv. fyrirspyrjandi spyr um, að nokkru leyti; þó ekki eins nákvæmlega og hann vill, því að jeg hefi tekið 10. hvert ár. Og jeg vil halda, að slík skýrsla komi að eins miklu gagni, þó að hún væri miðuð við annaðhvert ár, og jafnvel þó að hún væri miðuð við 5. hvert ár. En að minsta kosti verður hún að miðast við fjárhagstímabilið, sem sje tvö ár.
Jeg skal þá stuttlega minnast á skýrsluna í ritgerð minni, til þess að gefa fyrirspyrjanda svar að eins miklu leyti og jeg get að þessu sinni.
Útgjöldin voru 1905 áætluð 2250000 kr. og skiftast þannig niður:
Til Alþingis, umboðsstjórnar og
dómgæslu 15,2%
Til læknastjettarinnar ............... 10,6%
Til kirkju- og kenslumála ........ 13,6%
Til eftirlauna ..................... 4,8%
Eða alls til embættisstjettarinnar 44,2%
Til búnaðarframfara ................... 11,1%
Til fiskiveiða ...................... 1,4%
Til samgöngumála ................... 35,8%
Til vísinda og bókmenta ......... 4,4%
Afgangurinn gekk til ýmissa útgjalda. Það sjest því hjer, að embættismannastjettin hefir gleypt 44,2% af tekjum landsins. En 52,7% ganga til verklegra framkvæmda, vísinda og bókmenta.
Þá hleyp jeg yfir næstu 10 árin og kem að árinu 1915. Þá eru tekjurnar 4,5 milj. kr. Þær skiftast þannig:
Til Alþingis, umboðsstjórnar og
dómgæslu ...... 10,5%
Til læknastjettar......................... 10%
Til kirkju- og kenslumála ........... 16,2%
Til eftirlauna................................ 3,7 %
eða alls til embættisstjettarinnar 40,4%
Til búnaðar ......................... 5,6%
Til samgöngumála 30%
Til eflingar fiskiveiða ............. 1,8%
Til vísinda og bókmenta ........... 4,8%
Til verklegra fyrirtækja........... 3,3%
Til greiðslna af lánum .......... 10,9%
Alls 96,8%
Það sjest því á þessu yfirliti, að enn tekur embættismannastjettin 40,4% af tekjum ríkissjóðs. En til annara framfara, þar með taldar afborganir af lánum, fara 56,4%.
Þá eru fiskiveiðarnar ekki komnar lengra en svo, að til þeirra gengur aðeins 1,8%.
Jeg hefi þá í yfirliti þessu gert dálítið í áttina til að svara fyrirspyrjanda, þó að skýrsla þessi sje ekki eins sundurliðuð og hann vill, sem jeg tel ekki nauðsyn á vera, því að jeg hefi stiklað hjer á tíu árum.
Jeg býst þá ekki við að geta svarað hv. fyrirspyrjanda frekar nú, en vænti að fá að heyra frá honum, hvort hann ljeti sjer ekki nægja að fá skýrsluna þannig sundurliðaða, að hún væri einungis fyrir annaðhvert ár og ekki í eins mörgum liðum og hann ætlast til í fyrirspurn sinni.