22.03.1923
Neðri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í B-deild Alþingistíðinda. (349)

21. mál, ríkisskuldabréf

Magnús Guðmundsson:

Mig langar til að gera stutta grein fyrir því, hvers vegna jeg gekk inn á þetta frv. Ástæðan var sú, að eins og mönnum er kunnugt, þá bíða ýms hjeruð eftir framkvæmd mannvirkja, sem heimiluð hafa verið, en vantar fje til. Nú má vel vera, að hlutaðeigandi hjerað vilji sjálft leggja fram fjeð og geti það, en slík fyrirtæki í einstakri sýslu eða hjeraði mundu naumast kosta meira en 50–60 þús. kr. Að gefa út mörg skuldabrjef fyrir þessu og láta draga út á t. d. 25 árum er of mikil fyrirhöfn og ópraktiskt. Hvað því viðvíkur, að renturnar af þessum lánum komi til að verða þungbærar, ef brjefin yrðu ekki dregin út smám saman, þá býst jeg við, að það verði ekki svo hræðilegt sem látið hefir verið af. Það þarf ekki að gera ráð fyrir, að brjef seljist árlega í þessum tilgangi fyrir meira en 100000 kr. til jafnaðar. Það verður eftir 25 ár 21/2 miljón kr. Að því athuguðu verður ekki sjeð, að það sje neitt mikilvægt, þó byrjað verði ekki að afborga lánin fyr en eftir 25 ár, þegar fjeð er notað til slíkra framkvæmda sem brúa, vega o. fl. Að þetta sje hættubraut, fæ jeg ekki skilið; stjórnin hefir miklu fremur hemil á sjer með þessu. Raunar játa jeg, að það sje hæpið, eins og hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) sagði, að draga svona lengi afborganir af lánum, en þess ber að gæta, að þau lán sem hjer er um að ræða, eru í rauninni svo smá, að þau geta aldrei orðið þungur baggi á þjóðinni.

Nefndin samþykti þetta frv. með það fyrir augum, að lánin gengju til framkvæmda mannvirkjum, sem heimild væri fyrir. En til stórlána til dýrari fyrirtækja, svo sem til járnbrautarlagningar. þyrfti auðvitað sjerstaka heimild.