22.03.1923
Neðri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (350)
21. mál, ríkisskuldabréf
Jón Þorláksson:
Mjer fanst efnið í síðustu ræðu hæstv. fjármálaráðherra vera í fám orðum það, að vjer værum nú svo djúpt sokknir í skuldir, að vjer mundum eiga nóg með að afborga þær næstu 25 árin, og yrðum þess vegna að taka afborganalaus lán þetta tímabil. En sje svo sem hann segir, þá held jeg því fram, að vjer megum engin ný lán taka fyrri en vjer erum vaxnir því að greiða afborganir einnig af þeim. Háttv. 1. þm. Skagf. (MG) gerði of mikið úr því, hvaða skilning hann og nefndin hefðu lagt í lögin, án þess að taka tillit til þess, hvað í sjálfum lögunum stendur. Þetta eru nefnilega engin heimildarlög, eins og helst hefði mátt ætla eftir ummælum hans. Og það er miklu nær miljón en hundrað þúsundum það fje, sem nú fer árlega til verklegra framkvæmda, sem heimilað er að kosta með lánsfje, og altaf verið að auka þetta. Það eru því staðlausir stafir, að þær lántökur, sem frv. fjallar um. mundu ekki nema meira en svo sem 100 þús. kr. árlega. Vjer vitum ekkert um það, og lögin gefa enga ástæðu til, að slíkur skilningur sje lagður í þau.