23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1619 í B-deild Alþingistíðinda. (3509)

99. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Frsm. (Þorsteinn Jónsson):

Það sýnist ekki blása byrvænlega fyrir frv. þessu, er bæjarstjórn Reykjavíkur vill ekki, að málið gangi fram og 2 af hv. þm. Reykv. mótmæla því.

Hv. 2. þm. Reykv. (JB) taldi, að frv. færi í bága við hagsmuni Reykjavíkur. Jeg hjelt, að þetta mál væri fyrst og fremst fyrir Reykjavík. Auðvitað eru Reykjavík ekki beint rjettir peningar, þótt frv. þetta verði að lögum, en óbeint er það svo, þar sem ætlast er til, að aðrir kaupstaðir leggi líka fje fram til leikhússins og að leikhúsið verði reist hjer.

Auðvitað hefir alt landið gagn af þessu, því að leikhúsið mun verða nokkurskonar háskóli leiklistarinnar á landi hjer. Er löngun til að sýna sjónleika sem víðast á landinu altaf að aukast. Get jeg nefnt sem dæmi, að kona frammi í Eyjafirði hefir samið leikrit, sem hefir verið leikið þar í vetur 14 sinnum. Er nú verið að leika það á Akureyri og mun bráðlega verða leikið einnig út við Eyjafjörð.

Sýnir þetta, hversu mikil nauðsyn er á því að koma upp þjóðleikhúsi, sem sje til fyrirmyndar og leiðbeiningar fyrir leikendur og leikhús annarsstaðar á landinu. Að þessu leyti nyti alt landið góðs af leikhúsi í Reykjavík.

En vitanlega hefir Reykjavík best notin að því, því að almenningur utan af landi á sjaldan kost á að sjá leikið hjer. Er því einkennilegt, að mótspyrna gegn málinu skuli hafa komið hjeðan frá Reykjavíkurbæ eða stjórn hans. Er reynt að rökstyðja þessi mótmæli með því, að með þessu sje verið að taka fje frá barna- og gamalmennahælum. Vantar ekki, að notað sje það vopnið, sem haldið er að bíti best á háttv. þm.

Mundum við flm. heldur ekki hika við að taka frv. aftur, ef við hjeldum, að fátækum börnum eða gamalmennum mundi líða ver, ef það yrði samþykt. Reykvíkingar geta auðvitað einlægt sagt, að þeir hafi nóg að gera við skemtanaskattinn, þótt honum verði ekki varið til þjóðleikhúss, en annaðhvort er bærinn að þrotum kominn eða hann getur reist hælin, þótt þetta fje sje ekki til þess notað.

Það getur verið, að sumum virðist ekki mikil nauðsyn á að koma upp þjóðleikhúsi, einkum þeim, sem líta á leikhús sem skemtanastað, sem hafi fremur lítið gildi. En jeg lít svo á, að þjóðleikhús eigi að verða einskonar skóli fyrir leiklistina í þessu landi og að leiklistin hafi mjög víðtæk, fræðandi og örvandi áhrif á þjóðfjelagið alt. Jeg álít því þessu fje vera varið bæði til menningarbótar og andlegrar heilsubótar. Því miður geri jeg eigi ráð fyrir, að þetta frv. nái að ganga fram, er þingmenn þeirra kjördæma, er mest not mundu hafa þessarar stofnunar, mæla svo mjög á móti þessu. Jeg hafði fremur vænt mótmæla af hendi háttv. þm. Ak., Ísaf. o. fl. Jeg get ekki orðið við þeim tilmælum að taka málið af dagskrá, en læt arka að auðnu um það, hversu þessu máli reiðir af við atkvgr.