24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (359)

92. mál, hlunnindi

Jón Baldvinsson:

Jeg býst nú raunar við, að margir menn í landinu sjeu þeirrar skoðunar, að við þurfum að fá peninga inn í landið. Og þessi skoðun mun aðallega sprottin af þeirri tregðu, sem á því hefir verið að fá peningalán hjá hinum starfandi lánsstofnunum hjer. En þegar farið er að tala um að stofna hjer nýjan banka, eins og frv. það, sem hjer liggur fyrir, ráðgerir, þá liggur mest að spyrja, hvernig honum sje ætlað að starfa og á hvaða sviði. Þess er hvergi getið í frv. eða aths. við það.

Þegar Íslandsbanki var stofnaður, var honum sett sjerstakt hlutverk, sem sje að styðja atvinnuvegina og verslun landsins. Ef það er til þess ætlast, að þessi nýi banki eigi að vera verslunarbanki, þá veit jeg ekki, hvort hans er brýn þörf. Jeg veit ekki, hvort nokkur tregða hefir verið á fje handa þeim, sem starfa að verslunarrekstri og bankarnir hafa treyst til að fara með fjeð.

Hitt er annað mál, að bankarnir hafa ekki þorað að lána fje í vafasamt verslunarbrask; enda eru litlar líkur til, að þeir, sem bankarnir trúa ekki fyrir fje, muni fremur finna náð hjá þessum nýja banka Jeg sje því áreiðanlega, að ekki muni brýn þörf fyrir hann sem verslunarbanka. Og um lán til sjávarútvegsins mun einnig hið sama gilda. Bankarnir munu veita þeim fyrirtækjum rekstrarfje, sem þeir treysta. En þá er eftir ein tegund lána, sem er tilfinnanleg þörf á, og það eru fasteignalán, sem lítill kostur hefir verið að fá undanfarin ár,

Alþingi hefir, 1921, afgreitt lög um stofnun slíks banka. En hann er ekki farinn að taka til starfa og bólar ekkert á honum. Á þessu sviði er þörfin áreiðanlega brýn, þar sem vitanlegt er, að bankarnir hafa algerlega kipt að sjer hendinni um lánveitingar til húsabygginga, og sama gildir um lán til bænda; þeir fá ekki fje út á jarðir sínar. Þeir, sem ráðast í húsabyggingar, þurfa nú að notast við dýr víxillán, og þá er ekki von á, að húsaleigan geti orðið lág. Þessi ókjör auka dýrtíðina í landinu.

Veðdeild Landsbankans er sama sem hætt útlánum. Og bændur þeir, sem vildu bæta jarðir sínar og húsakynni sín, mundu mjög þurfa slíkra bankalána við. Að slík hentug, löng lán hafa ekki fengist um langan tíma, hefir átt stóran þátt í því að auka atvinnuleysið og dýrtíðina í landinu. Ætlar þessi fyrirhugaði banki að veita fasteignaveðslán? Það gæti breytt afstöðu minni til þessa máls, enda þótt slíkt megi kaupa of dýru verði. En þó mundi jeg þá skoða huga minn um málið. En mjer virðist liggja nær að láta þann banka taka til starfa, sem búið er að stofna með lögum og ætlað er að starfa í þessu skyni.

Um rjettindi þau, sem krafist er stofnuninni til handa, hefi jeg það að segja, að þau eru mikil, þó að þau sjeu í aths. við frv. ekki talin meiri en aðrir bankar hafi nú. Jeg hygg, að rjettindin sjeu að sumu leyti meiri en Íslandsbanki fjekk í byrjun. Hann hafði þá ekki rjett til að taka við sparisjóðsfje. Þá heimild fjekk hann seinna hjá landsstjórninni, og var talið mjög vafasamt, að stjórnin hefði getað veitt bankanum þau hlunnindi. Það var farið í kringum lögin og kallað „innlánsfje“, en ekki sparisjóðsfje. En það er rjett, Íslandsbanki fjekk seðlaútgáfurjettinn, en þann rjett er nú búið að taka af honum.

Eitt er það, sem gott væri að fá upplýsingar um við þessa umræðu, en það er, hversu mikið fje væntanlegir leyfishafar hafa fram að bjóða, og að öðru leyti hvernig það skiftist. Það fje, sem tekið yrði úr sparisjóðsdeildum hinna bankanna hjer og flutt í þennan nýja banka, eykur ekki peningamagnið í landinu og verður engin viðbót, þótt það sje fært til. En það stofnfje, sem frá útlöndum kann að koma, bætist við fjárveltuna í landinu.

En ef nú svo er, að Landsbankinn hafi nægilegt lánstraust erlendis, þá væri betra og eðlilegra, að hann notaði þetta lánstraust sitt til þess að fá það erlenda fje, sem við þurfum á að halda.

Að fje það, sem kemur inn í landið með stofnun hins nýja banka, verði til þess að bæta gengi íslensku krónunnar, fer auðvitað eftir því, hversu mikið það verður. En vel má þess gæta, að það verða útlendir menn, sem hirða hagnaðinn af fjenu, og þeir peningar fara aftur út úr landinu.

En þó skal því ekki neitað, að fjeð getur haft áhrif til bóta í þessu efni í bili.

Sjerrjettindin, sem þessari fyrirhuguðu bankastofnun eru ætluð, eru eins og áður getur jafnvel meiri en farið var fram á fyrir Íslandsbanka í upphafi. Þau eru hvorki meiri nje minni en undanþága frá þremur gildandi lögum, þ. e. tekjuskattslögunum. hlutafjelagalögunum og sveitastjórnarlögunum; og getur vel verið, að um undanþágur frá fleiri lögum sje að ræða. T. d. mætti hugsa sjer, að ætlunin væri, að bankinn sje undanþeginn því að greiða lögboðin gjöld af húseignum, sem hann kann að eignast; svo fast er að orði kveðið í frv. um undanþágu frá hverskonar gjöldum. Jeg veit ekki, hvað háttv. flm. ætlast til, að þessi rjettindi nái langt. En eftir frv. mætti vel búast við því, ef bankinn eignaðist hús hjer í Reykjavík, að hann þættist undanþeginn slíkum gjöldum, þótt lögmælt sjeu.

Þá er að líta á þær tryggingar, sem bankanum er ætlað að setja fyrir meðferð sinni á sparisjóðsfje.

Það getur ekki talist mikil trygging, er sett er fyrir því, þótt 1/10 hluti þess skuli trygður með verðbrjefum. Sú trygging nær skamt, ef illa fer. Ríkinu er heldur enginn umráðarjettur ætlaður yfir bankanum. Það var þó svo með Íslandsbanka í byrjun, að ríkinu var að minsta kosti í orði trygður fullkominn umráðarjettur yfir honum. Og þó að þetta hafi raunar gefist miður vel í framkvæmdinni, þá er það ekki lögunum að kenna, heldur þeim mönnum, sem með það vald hafa farið. Hjer er ekki slíku að heilsa; hjer liggur eftirlitið frá ríkisins hálfu í rjettinum til að kjósa einn endurskoðanda af þremur, sem auðvitað fær engu ráðið, nema bankinn sjálfur vilji góðfúslega taka till. hans til greina. Líka er í frv. og athugasemdunum mjög óljóst kveðið á um það, hvernig stjórn bankans skuli háttað. Að vísu er gert ráð fyrir, að meiri hluti bankastjórnarinnar sje íslenskir menn, búsettir á Íslandi, en það er þó ekki vel ljóst, hvorki í frv. Sjálfu nje í aths., því að þar er gert ráð fyrir, að bankaráð hafi stjórn bankans á hendi, og á það að hafa daglegt eða nær daglegt eftirlit með því, sem gert er. En eftir þeim skilningi, sem menn hjer leggja í bankaráð, þá er þetta ekki vel tryggilegt, og að minsta kosti er bankaráð Íslandsbanka kunnugt að því að hafa ekki fylgst sjerstaklega vel með athöfnum bankans. En alt er þetta á huldu í frv.

Jeg sje því ekki, að öllu athuguðu, hvernig bankinn getur farið fram á þessi miklu hlunnindi, og verð að telja algerlega rangt af Alþingi að fara að samþykkja slík heimildarlög sem þessi. Þótt ef til vill sje alveg nauðsynlegt fyrir okkur að fá fje inn í landið, þá má samt kaupa það of dýrt, og svo er með þessi rjettindin; svo stórfeld eru þau. Það er líka lítt hugsanlegt, að ríkissjóður hafi nokkurn arð af fyrirtækinu, en það á hinn bóginn laust við allar skyldur og skatta til ríkis og bæjarfjelags. Og þótt ríkissjóður mætti gera ráð fyrir að fá einhvern tíma tekjur af bankanum, sem svara 10–12 þús. kr., þá er varla fyrir þeirri tekjuvon að gangast, því hjer er sveitarsjóður og ríkissjóður sviftur tekjum af starfandi fyrirtæki með útlendu fje og fyrirtækinu veitt hlunnindi til að starfa hjer fram yfir innlend fyrirtæki. Að öllu þessu athuguðu geri jeg ekki ráð fyrir, að geta ljeð frv. fylgi mitt, og býst varla við því, að þær upplýsingar komi í málinu, sem breyti skoðun minni á því nokkuð til muna.