02.05.1923
Neðri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (374)
92. mál, hlunnindi
Frsm. minni hl. (Magnús Kristjánsson):
Jeg á hjer brtt. á þskj. 510. Álít jeg, að ekki þurfi langt mál til að skýra þær, því þær eru svo auðsjáanlega til mikilla bóta. Vonast jeg eftir, að allir háttv. þingmenn hafi komist að raun um, að ágóðahlutinn, sem bankinn fær, er alt of hár, í hlutfalli við þau hlunnindi, sem ætlast er til að ríkið veiti honum. Mjer finst, að þessum rjettindaveislum, sem bankinn á að fá, eigi að fylgja einhverjar skyldur, og þær geta ekki vægari verið en farið er fram á hjer í brtt. mínum. Jeg vil biðja háttv. þdm. að gæta vel að því, að búið er að tryggja bankann fullkomlega að öllu leyti, áður en farið er að reikna tillagið í ríkissjóð, þar sem búið er að draga frá fyrir fyrningu bankahúss og áhalda, fyrir varasjóðstillagi, tapi öllu og vexti til hluthafa. Er með þessu fyllilega sjeð fyrir hagsmunum bankans, og getur því ekki komið til mála að veita hluthöfum 95% af þeim arði, sem þá er eftir, en láta ríkissjóð einungis fá 5%. Ætla jeg ekki að fjölyrða frekar um þetta: það er svo augsýnilegt, að of mikið er að ætla hluthöfum 95% af arðinum eftir að búið er að taka alt nauðsynlegt frá, að í brtt. er einungis farið fram á sjálfsagða hækkun. Jeg geri ráð fyrir, að háttv. þm muni iðrast þess síðar, ef þeir samþykkja ekki tillögur mínar og frv. nær fram að ganga óbreytt. Hinar brtt. skýra sig sjálfar, enda eru þær ekki stórvægilegar. Það er þá fyrst, að í staðinn fyrir 1/2 ár til hlutaútboðs innanlands komi 1 ár. Þetta er til þess að fleiri geti átt kost á að kaupa hluti hjer innanlands, því vel getur staðið svo á, að menn geti það ekki, ef tíminn er ekki hafður nema ár.
Þriðja brtt. er gagnleg fyrir bankann og mundi auka traust hans bæði inn á við og út á við.
Skal jeg svo ekki fjölyrða frekar um þetta, nema mótmæli komi fram gegn þessum tillögum mínum.
Þá ætla jeg aðeins að minnast á brtt. frá háttv. þm. Mýra. (PÞ) á þskj. 517. Hún gengur út á sama og 1. brtt. mín, en fer það styttra, að í hana vantar það, sem jeg tel aðalatriðið, nefnilega að ágóði til ríkissjóðs hækki til muna, þegar gróði bankaus er orðinn mjög mikill og skiftir hundruðum þúsunda. Þessi brtt. er því ófullnægjandi. enda þótt hún sje í góðu skyni gerð, en mínar till. eru miklu aðgengilegri.