25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1979 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
Afgreiðsla þingmála
Magnús Guðmundsson:
Mjer kemur það undarlega fyrir, að verið er að finna að seinni afgreiðslu hjá allshn. og nefndum yfirleitt, þegar svo mikið berst að af málum, að ómögulegt er að komast yfir þau vegna hinna löngu þingfunda. Síst er þetta viðeigandi um allshn., sem hefir til meðferðar hjer um bil helming allra mála, sem fyrir þingdeildina leggjast, og er ekki von, að hún taki því vel. Jeg veit ekki heldur betur en að fyrir deildinni liggi mikilvæg mál, sem langt er síðan nefndarálitum var skilað í, svo að það brestur vissulega ekki verkefni fyrir deildina, heldur tíma til að afgreiða málin í henni. Og á því eiga nefndir enga sök.