09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

92. mál, hlunnindi

Frsm. meiri hl. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Vjer höfum nú heyrt ræðu hv. 5. landsk. þm. (JJ) á móti þessu máli. Aðalrökin, er hann færði gegn því, eru þau, að eigi sje nein sönnun fyrir því, að peningar fáist til bankans. Jeg reyndi í fyrri ræðu minni að gera grein fyrir því, af hverju þessi rök væru eigi mikils virði. Get jeg að mestu leyti vísað til þess, sem jeg sagði þá. Mjer virðist eðlilegt, að eigi sje hægt að segja með fullri vissu, hvort peningar fáist til þessa fyrirtækis eða eigi, því að það er eigi hægt að meta, hvers virði fyrirtækið er, fyr en menn vita, hver hlunnindi eru í boði og hversu mikið stofnunin á að greiða í ríkissjóð af væntanleglun ársarði. Það hefir mjer vitanlega aldrei komið til mála, að fjármálamenn, sem það nafn bera með rjettu, ábyrgist fje til bankastofnunar áður en þeir vita skilmála ríkisins fyrir stofnuninni. Svo var það einnig um Íslandsbanka. Þegar hann var stofnaður, var engin vissa fyrir peningum til hans. Háttv. þm. mintist á tvö fyrirtæki, sem Alþingi hefði veitt heimild til, og kvað það hafa verið þinginu til vansa. Jeg get eigi sjeð, að Alþingi hafi verið neinn vansi að því, en hitt sje jeg, að það er mikill munur á því að veita þær „koncessionir“ eða þessa. Jeg get eigi skilið þá röksemdaleiðslu hv. þm., er hann fer mörgum orðum um þá hættu, sem af því stafi, ef sjerleyfið verði framselt, og talar í því sambandi um þó miljón króna gróða, en hins vegar er hann hræddur um, að eigi sje hægt að fá peninga handa bankanum. Virðist mjer, sem hjer sje heldur ósamræmi í rökfærslunni hjá hv. þm. Að sjálfsögðu er götu-„autoritetstrú“ hv. þm. honum til mikils heiðurs nú sem endranær. Virðist honum það óræk sönnun þess, að fyrirtæki þetta sje hið hættulegasta, að einhver maður hefir hætt við að fylgja því, ef rjett er þá með farið. Fyrir mjer er það engin sönnun, og það jafnvel ekki, þó að einn af bankastjórum Landsbankans segi, að það sje varhugavert að veita þannig sjerleyfi út í bláinn. Enn þá hafa eigi komið fram þau rök á móti máli þessu, sem ástæða er fyrir þessa háttv. deild að taka til greina.