17.04.1923
Neðri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (418)
83. mál, fræðsla barna
Pjetur Ottesen:
Jeg vil biðja menn að athuga það vel, að með fræðslulögunum frá 1907 er það svo í framkvæmdinni, að ljett er af prestunum miklu starfi. En eigi að síður hvílir ennþá á þeim skylda að hafa eftirlit með fræðslu barna í prestakalli sínu. Er því engin fjarstæða, þótt þeim sje gert að skyldu að vera prófdómarar, og það endurgjaldslaust. Hverjum samviskusömum presti á að sjálfsögðu að vera sönn ánægja í því og finna það skyldu sína að forsóma ekkert tækifæri, sem gefst, til þess að kynnast námi og andlegum þroska barnanna í prestakalli sínu. Jeg tel því enga ástæðu til þess að breyta lögunum frá í fyrra og taka þetta tækifæri frá prestunum, þar sem ekkert hefir komið fram síðan, sem upplýsir, að það sje nauðsynlegt. Jeg tel ekki, þótt háttv. þm. N.-Ísf. (SSt) væri að tala um kostnaðinn, sem hann hefði af því að þurfa að prófa, því að óvíða hagar eins til og hjá honum, þar sem hann býr á afskektri eyju. Er því í sjálfu sjer ekkert undarlegt, þó að hann gæti gefið hjer svo og svo háan kostnaðarreikning við barnaprófin. En þann veg hagar óvíða til, og yfirleitt er þetta þannig, að prestar þurfa litlu eða engu beinlínis til að kosta við prófin.
Annars var það gleðilegt að heyra á hv. þingmanni (SSt), að prestarnir óska sjálfir að hafa barnaprófin. Vona jeg því, að þeir sýni það í verkinu, með því að gera það án þess að fara fram á ferðakostnað af ríkinu.