17.04.1923
Neðri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (424)
83. mál, fræðsla barna
Magnús Jónsson:
Það er leitt að þurfa að þreyta háttv. deild með lengri umræðum um þetta mál. Það þyrfti í raun og veru að svara háttv. þm. Borgf. (PO) með langri ræðu, en jeg geri það nú ekki. Hann var eitthvað að tala um prestaveldi í þinginu. Því er nú svo varið, að hjer eiga aðeins 2 prestar sæti, svo að þessi ályktun háttv. þm. er ekki sjerstaklega sennileg. Jeg er áður búinn hjer í deildinni að kveða niður drauginn um gömlu tilskipunina um búsvitjanir o. fl. Þessi tilskipun var orðin fyrir löngu dauður bókstafur áður en fræðslulögin komu, svo að því leyti er það rjett, sem jeg hefi áður sagt, að fræðslulögin ljettu raunverulega engri byrði af prestunum. En með fræðslulögunum frá 1907 var einnig bókstafur þessarar tilskipunar numinn úr gildi. (PO). Það er ekki rjett). Jeg skal sýna fram á það. Það hefir verið minst á, að prestum bæri skylda til að fara 2 húsvitjunarferðir á ári. En ekki var talað mikið um það, þegar nýju lögin um fækkun prestakalla og samsteypu brauða voru á ferðinni hjer á Alþingi. Þá var ekki verið að gera mikið úr skyldustörfum presta. Hv. þm. þurfa ekki að bregða öðrum um tvíveðrungshátt og vindhanasnúning — þeir hafa það sjálfir í nógu ríkum mæli. Þá kvað hv. þm. Borgf. (PO) sjer mundu falla þungt, væri bændum ætlaðar þær hvatir að vilja ekki gegna kauplaust slíkum skyldum, sem prófdómarastarfið væri fyrir prestana. Hann gætir þess ekki, að þegar bændur eru prófdómarar, þá fá þeir kaup, en prestarnir ekki. (PO: (útúrsnúningur). Háttv. þm. taldi óhætt að fella þetta frv., því að prestarnir mundu gegna þessu starfi þrátt fyrir það; þeir væru svo greiðasamir og góðir. Já. það er náttúrlega ákaflega gott að varpa áhyggjum sínum upp á góðsemi prestanna. En þetta minnir dálítið á söguna um manninn, sem sendi strák til þess að slá annan mann kinnhest, og spurði svo, hvernig hann hefði tekið því. „Hann tók því vel, sagði strákurinn. „sláðu hann bara aftur“. Slíkt er strákaathæfi, en ekki þingmanna. Jeg mótmæli því, að þetta mál eigi upptök sín hjer í Revkjavík; hjer eru engar ástæður eða tilefni til þess, þar sem prestar hjer í bænum gegna engum prófdómarastörfum.
Þá er jeg kominn að eftirlitsskyldu presta með barnafræðslunni. Það er bert, að í fræðslulögunum frá 1907 eru tekin af öll tvímæli um þetta. Þar stendur í 33. gr.: „Yfirstjórn fræðslumála og umsjón hefir stjórnarráð Íslands. Sjer til aðstoðar hefir það skólafróðan mann, er ráðherra Íslands skipar“. En sjerstaklega sker 30. gr. úr um þetta, að eftirlitið sje tekið frá prestunum og fært yfir á fræðslunefndir. Þar segir svo: „Skólanefnd hefir umsjón og eftirlit með öllum barnafræðslumálum hjeraðs þess, er hún er skipuð fyrir“. Og í 31. gr.: „Fræðslunefnd hefir allar hinar sömu skyldur og skólanefnd“. Um vankunnandi börn innan 14 ára ber skólanefnd eða fræðslunefnd að gera ráðstafanir til, að lögð sje við þau meiri rækt en áður og að sjá þeim fyrir nægilegri tilsögn. Um undanþágur úrskurðar fræðslunefnd. Öll lög, sem áður hafa gilt um þetta efni, eru að sjálfsögðu afnumin, hvort sem það er fram tekið í fræðslulögunum eða ekki. Og hvar er svo mælt fyrir um þetta eftirlit presta? Hjer er verið að vekja upp gamlan draug frá miðri 18. öld. Þau ákvæði eru afnumin með fræðslulögunum, eins og búið er að sýna.
Þó að háttv. þdm. greiði atkv. móti frv., geta þeir ekki gert ráð fyrir, að þessi 18. aldar fjarstæða fái að rísa upp aftur.