04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (456)

134. mál, verslun með ópíum o.fl.

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Jeg hefi ekki margt að segja. Þetta frv. er stjórnarfrv. og hefir gengið gegnum háttv. Ed. nærri breytingalaust. Oss er skylt, í samræmi við ákvæði alþjóðafundar 1912 um ópíum o. fl., að setja hjer á landi lög um þetta efni, og þótt ekki sje hjer um misbrúkun að ræða í þessum efnum nú, svo kunnugt sje, er þó skylt að setja lög um þetta efni, af þeim ástæðum, sem fyr greinir. Auk þess má búast við, að misbrúkun þessara skaðlegu efna geti breiðst út hjer, og þá eiga lög eins og þessi að geta komið að haldi.