22.02.1923
Efri deild: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í B-deild Alþingistíðinda. (462)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Forsætisráðherra (SE):

Þetta frv. er samið að tilhlutun Læknafjelags Íslands, og tel jeg lofsvert, að fjelagið skuli hafa beitt sjer fyrir þetta þýðingarmikla heilbrigðismál. Sjúkdómar þeir, er hjer ræðir um, eru í stórbæjum annarsstaðar hin mesta landplága, og svo mjög kveður að því, að tíundi hver maður er sýktur. Hjer á landi hefir þessara sjúkdóma lítið gætt til þessa, en eins og athugasemdirnar við frv. bera með sjer, eru þeir þó fremur að útbreiðast, og er því hin mesta nauðsyn á að veita þessum óhappagesti viðnám eins fljótt og unt er, og ekki síst af því, að sjúkdómar þessir eru mjög oft valdir að úrkynjun ættanna.

Í frv. eru sett ýms ákvæði til þess að varna útbreiðslu sjúkdóma þessara og auka þekkingu á þeim. Sjeð er fjelitlum mönnum fyrir ókeypis læknishjálp og ókeypis sjúkravist, og það á að færa skrá yfir sjúklingana, en um leið ákveðið, að leynd sje höfð á þeim, svo hræðslan við að almenningur viti um, hverjir sjúkir eru, aftri mönnum ekki frá að fara til læknis.

Jeg vona, að háttv. deild taki vel í málið og láti það fá greiðan gang. Að endingu vil jeg leggja til, að málinu verði, að lokinni umræðunni, vísað til allshn.