09.03.1923
Efri deild: 13. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (472)
18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum
Jónas Jónsson:
Það er aðeins örstutt athugasemd. Jeg sagði aldrei, að landlæknir hefði verið á móti slíku frv., en hitt kemur vel heim við orð mín, að þetta mál var hjer til athugunar í fyrra, og þá vildi hann ekki ýta undir að koma því á framfæri. Um afstöðu Læknafjelagsins ætla jeg að tala nánar við 3. umr., og jeg hygg, að töluverður hluti fjelagsmanna sje á annari skoðun en hjer hefir verið látið í veðri vaka.
Þeir háttv. þm., sem hafa talað um fræðsluna, hafa tekið hana í þrengri merkingu en jeg vil gera. Það þýðir lítið að fræða t. d. berklaveikan mann um eðli berkla og verkanir. Það er orðið of seint. Það, sem gera þarf, er að vekja almennan óhug á þessum sjúkdómum, gera unga fólkið hrætt við þá, til þess að það reyni frekar að forðast þá. Lítill bæklingur niður í lyfjakistli eða í búð einhvers bóksala hefir lítil áhrif í þessa átt. Það þarf að ná til fjöldans með öðrum og veigameiri aðferðum. Það þarf að mæta þessum sjúkdómi á þeim vettvangi, þar sem stór og mikilvæg mál eru rædd, í blaðagreinum, tímaritum, ræðum, fyrirlestrum og skólum. Þá og þá fyrst er hægt að vænta einhvers árangurs.