27.03.1923
Neðri deild: 30. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum
Frsm. (Jón Þorláksson):
Þetta frv. var upphaflega lagt fyrir háttv. Ed. af hæstv. stjórn. Voru þar gerðar á því allmiklar breytingar, sem einkum gengu í þá átt að draga úr kostnaði ríkissjóðs frá því, er gert var ráð fyrir í frv. eins og það kom fyrst frá hæstv. stjórn.
Allshn. hefir nú haft frv. til meðferðar, eftir að það kom úr háttv. efri deild, og hefir nefndin að mestu leyti fallist á það, með þeim breytingum, er á voru komnar, er það kom hingað í deildina.
Eitt atriði er þó á kostnaðarhlið málins, sem nefndin hefir ekki getað fallist á. Í stjórnarfrv. var svo ákveðið, að í þeim stöðum, er sjúklingunum yrði vísað til sjerfræðings, skyldi gjald til hans ákveðið af ráðherra með ráði landlæknis, Það var svo breytt í háttv. efri deild á þá leið, að borgun til sjerfræðinganna skyldi greidd eftir gjaldskrá hjeraðslækna, og greiðir ríkissjóður þetta gjald fyrir þá sjúklinga, er eigi hafa efni á að greiða læknishjálpina sjálfir.
Nefndin hefir orðið samdóma um það að ekki geti komið til mála að gjalda sjerfræðingum eftir þeirri gjaldskrá, er hjeraðslæknum er goldið eftir. Það er ekki við því að búast, að sjerfræðingur, sem ekki fær nein föst laun, geti unað við þá gjaldskrá, er hjeraðslæknum er sett, því hjeraðslæknarnir fá aðallaunin fyrir verk sín úr ríkissjóði í hinum föstu launum, en hitt eru einungis litlar aukatekjur. Sjerstaklega gæti þetta ekki gengið hjer í Reykjavík, þar sem dýrtíðin er mest, en þó er svo háttað læknaskipun hjer, að miklum hluta sjúklinganna mundi verða vísað til sjerfræðings. Ef nú ætti að binda hann við gjaldskrá hjeraðslækna, yrði hann óhjákvæmilega að fá styrk úr ríkissjóði, eins og nú er ástatt með nokkra aðra læknasjerfræðinga. Hjá þessu vildi nefndin komast, og tekur því aftur upp ákvæðið úr stjórnarfrv., að ráðherra ákveði gjaldið með ráði landlæknis. Hyggur nefndin, að ríkissjóður verði ekki harðara úti með þessu móti en þótt hin leiðin hefði verið valin. Að öðru leyti eru breytingar þær, er nefndin gerði, smávægilegar. Sumt er einungis til að leiðrjetta mál á frv.
Í 6. grein hefir nefndin leyft sjer að breyta einu atriði, sem að öllum líkindum hefir komist í frv. fyrir misgáning; það ákvæði er alls ekki samrýmanlegt þeirri leynd um nafn sjúklingsins, sem verða á annars samkvæmt frv.
Á 10. grein hefir nefndin gert efnisbreytingu, þar sem hún vill leggja skyldu á sjúklingana að skýra læknum frá, hvar þeir hafi tekið sjúkdóminn. Samkvæmt stjórnarfrv. er læknum skylt að grenslast eftir þessu, en sjúklingum ekki gert að skyldu að skýra frá því, svo að þeir geta, sjer að vítalausu, neitað að gefa upplýsingar um það. Þetta telur nefndin ekki geta staðist, því að með því yrði erfiðlega náð þeim aðaltilgangi frv. að girða fyrir sjúkdóma þessa og útrýma þeim, svo að þeir verði hjer eigi landlægir, og farið svo, að ein og sama manneskjan sýkti hvern af öðrum, án þess að læknar fengju vitneskju um hana. Ef til vill dettur einhverjum í hug sú mótbára gegn þessu, að sjúklingar yrðu tregari að leita til læknis, ef þessi skylda hvíldi á þeim. Nefndin athugaði þetta rækilega og gat eigi sjeð, að það skifti nokkru máli fyrir sjúklinginn, þótt hann segði frá, hvar hann hefði sýkst, þegar slík leynd er á þessu, að það fer ekki lengra en til læknisins, það mætti ef til vill segja, að þetta ákvæði yrði þýðingarlítið því að ef sjúklingurinn neitaði að skýra frá þessu, þá væri ekki hægt að þröngva honum til þess. En það kann að hafa áhrif, ef læknirinn bendir sjúklingnum á, að þetta sje lagaskylda, því menn hlýða þó fremur því sem þeir vita að eru lög, heldur en brjóta það. Það mætti jafnvel gera ráð fyrir, að einhverjir sjúklingar myndu ekki telja sjer heimilt að segja til þessa, sökum þeirrar þagnarskyldu, sem lögin að öðru leyti krefjast um þessi mál, ef það er ekki beint fram tekið.
Nefndin vonar. að háttv. deild fallist á þetta, og eins að sektir samkvæmt 17. gr. verði látnar ná til þessarar greinar.