27.03.1923
Neðri deild: 30. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (486)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Forsætisráðherra (SE):

Jeg þakka allsherjarnefnd fyrir meðferðina á þessu frv. Mitt álit er. að breytingarnar, sem hún hefir gert, sjeu allar til bóta. Sjerstaklega get jeg tekið fram viðvíkjandi á, gr. frv., að þegar breytingar þær, er háttv. Ed. gerði á henni, voru þar til umræðu, var jeg þeim mótfallinn og taldi óheppilegt að binda gjald til sjerfræðinga við gjaldskrá hjeraðslækna. Síðan hefi jeg átt tal við einstaka menn úr þeirri hv. deild, og ætla jeg, að það verði eigi frv. að falli hjer, þótt breytt verði samkvæmt brtt. hv. allshn. háttv. frsm. (JÞ): gat þess, að ákvæðið í 6. gr., um að efnahagsvottorð sjúklinga skuli fylgja reikningi til landlæknis. muni hafa komist í frv. fyrir misgáning. Svo er þó ekki. Var rætt um þetta atriði í háttv. Ed. meðal annars. Álít jeg, að sama megi segja um brtt. við þessa grein, sem um brtt. við 5, gr., að hv. Ed. muni eigi fella frv., þótt hún nái hjer fram að ganga.

Þá skal jeg aðeins minnast á brtt. við 10. gr. Þar er það nýmæli, að sjúklingum skuli skylt að láta lækninum í tje upplýsingar um, hvar þeir hafi tekið sjúkdóminn. Jeg fæ ekki betur sjeð en að þessi breyting sje ekki til skemda.

Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en leyfa mjer að mæla með því, að allar brtt. hv. allshn. verði samþyktar.