14.04.1923
Efri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í B-deild Alþingistíðinda. (492)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Frsm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Háttv. Nd. hefir gert nokkrar breytingar við frv. þetta eins og það var afgreitt hjeðan. Brtt. háttv. allshn. Nd. liggja hjer fyrir á þskj. 208. Eru sumar þeirra aðeins orðabreytingar, sem telja má til bóta, svo sem 1. og 2. brtt. Aftur er 3. brtt., sem er við 5. gr., efnisbreyting. Í frv. eins og það fór frá þessari hv. deild er gert ráð fyrir því, að borgun til sjerfræðinga fyrir þessar lækningar skuli fara eftir gjaldskrá hjeraðslækna. En nú hefir háttv. Nd. fært það til sama máls og það var upphaflega í stjórnarfrv. og ákveðið, að borgun til þeirra skuli fara eftir því, sem ráðherra ákveði með ráði landlæknis. — Allsherjarnefnd hjer, og jafnframt háttv. deild, gerði það af sparnaðarástæðum að ákveða sjerfræðingum eigi meira fyrir þessa ókeypis læknishjálp en eftir gjaldskrá hjeraðslækna, og við það tel jeg, að vel hefði mátt una. En sökum þess, að jeg held, að menn noti svo lítið þessa ókeypis læknishjálp, get jeg ekki verið að gera þetta atriði að kappsmáli við hv. Nd., þar sem líka sjúklingar þessir eru tiltölulega fáir, og yrðu því ekki margir, sem notuðu leyfið. Getur þetta því tæplega leitt til mikils kostnaðar.

Um 4. brtt. er lítið að segja, því að hún skiftir svo litlu máli, og 5. brtt. er aðeins orðabreyting. Er það því 6. brtt., sem jeg vil dálítið athuga, því jeg tel hana skifta töluverðu máli. Í frv., eins og það var afgreitt hjeðan, segir svo fyrir, að þegar læknir taki sjúkling til meðferðar, sem smitast hafi hjer á landi, þá skuli hann grenslast eftir, af hverjum sjúklingurinn hafi smitast. En háttv. Nd. vill gera það að skyldu fyrir sjúklinginn að láta lækninum í tje allar upplýsingar um það. Á þetta hefir nefndin ekki getað fallist, og flytur því brtt. á þskj. 303. um að fella þetta skylduákvæði niður.

Það er vitanlega alveg sjálfsagt, að þegar læknir hefir sjúkling undir höndum, þá grenslast hann eftir, hvar sjúklingurinn hafi smitast, og það gerir hver samviskusamur læknir með lipurð og kurteisi. En ef gera á þetta að skyldu fyrir sjúklinginn, þá liggja við viðurlög, ef ekki er rjett skýrt frá. En það er viðurkent af læknum, sem fengist hafa við að lækna þessa sjúkdóma, að mjög varlega verði að fara eftir þeim upplýsingum, sem sjúklingarnir venjulega gefa, því að algengt er, að þeir segi ekki rjett frá um tímann, sem þeir hafi smitast, — færa hann venjulega lengra aftur. Sannast því oft latneska setningin: „Quivis syphiliticus mendax“, að syfilissjúklingum hætti ávalt við að segja ósatt. Þessi regla er þó ekki án undantekninga, en regla þó, og með líkum rjetti mætti segja: „Quivis gonorrhoicus mendax“.

Þar sem nú hjer er um viðurlög að ræða, og jafnframt að fólk, sem talið er, að valdið hafi smitun, skuli leggja inn á spítala, getur það valdið óþægindum, fyrst og fremst fyrir leyndina, sem fyrir er skipuð um þessa sjúklinga, og einnig bakað heilbrigðu fólki og alsaklausu ýms óþægindi.

Nefndin leggur því til, að þetta skylduákvæði sje felt niður.

Ef brtt. nefndarinnar verður samþykt, þá leiðir þar af, að fella þarf niður orðið „10“ í 17. gr. frv. Nefndinni hefir sjest yfir að koma með brtt. um þetta, en hefir orðað það við hæstv. forseta. hvort ekki mætti laga það í skrifstofunni. ef brtt. á þskj. 303 verður samþykt.

Um 7. brtt. á þskj. 208 er lítið að segja. Við litum svo á, að það væri nóg, að tilkynningin komi til prests eða lögreglustjóra. En hjer er gert ráð fyrir, að tilkynna skuli báðum. Þetta virðist svo lítið atriði, að ekki sje ástæða til að deila um það.

Hefi jeg svo ekki fleira að segja um þetta mál, en vona, að háttv. deild geti fallist á frv. og brtt.