14.04.1923
Efri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (493)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Jónas Jónsson:

Það er eflaust þýðingarlaust að fara inn á umræður um þetta mál nú, þó að háttv. Nd. hafi breytt því til hins verra, sjerstaklega að því leyti, að borgun til sjerfræðinga fyrir þessar lækningar skuli vera hærri en til hjeraðslækna og fara eftir ónákvæmum taxta. (Forsh. SE: Hann á að vera ákveðinn). Annars hygg jeg, að þessi hlið, landssjóðsborgunin handa sjerfræðingum, hafi átt allverulegan þátt í samningu þessa frumvarps.

Síðan mál þetta var til umræðu hjer, hefi jeg haft tækifæri til að tala við einn af merkustu læknum þessa lands, Steingrím Matthíasson, um það atriði að fræða almenning um þetta mál, sem jeg fjekk litla áheyrn með síðast. Sagði Steingrímur, að í Þýskalandi væri fræðsla um þessa sjúkdóma veitt í kvikmyndahúsum, til þess að vara fólk við þeim og hvetja jafnframt til að leita til læknis. Jeg vona því, að hv. deildarmenn trúi Steingrími, þó að þeir trúi mjer ekki, að fræðsluleiðin sje besta leiðin í þessu máli. Og jeg mun greiða atkvæði á móti þessu frv., eins og jeg gerði áður, því að jeg býst ekki við, að sú stefna að lækna á alþjóðarkostnað, án fræðslu. geti komið að nokkru liði.