08.05.1923
Sameinað þing: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (505)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Frsm. allshn. Nd. (Jón Þorláksson):

Jeg verð að segja, að jeg varð hálfhissa, er jeg heyrði hina löngu og alvarlegu ræðu hv. 2. þm. S.-M. (SHK) um jafnlítið atriði sem þessi brtt. er. Ástæðan til þess, að allsherjarnefnd Nd. vildi setja þetta ákvæði inn, var sú, að það var upphaflega í frv. frá hendi sjerfræðinganna, sem bjuggu það til. Önnur ástæða var sú, að nefndin leit svo á, að hjer sje að ræða um tilraun til þess að útrýma þessum sjúkdómum og koma í veg fyrir, að þeir verði hjer landlægir. Því er eðlilegt, að við göngum lengra en þær þjóðir, sem eru vonlausar um að geta losnað við þá með öllu. Þriðja ástæðan var sú, að nefndin áleit ósamræmi í því að leggja læknunum á herðar skyldu til þess að grenslast sem vandlegast eftir, af hverjum sjúklingurinn hafi smitast, en leggja enga skyldu á sjúklinginn að svara. Nefndin leit svo á, að af því að frv. gerir ráð fyrir leynd, þá gæti sjúklingurinn litið svo á, að sjer væri óheimilt að svara, ef það væri ekki boðið í lögunum. Mjer virtist koma fram hjá hv. 2. þm. S.-M. (SHK) misskilningur á því, hvað í ákvæðinu felst. Var á honum að heyra, að hann teldi sjúklinginn skyldan til þess að gefa skýrslu um allar holdlegar samfarir, og væri brotlegur, ef hann gæfi ranga skýrslu um það. Jeg gæti nú trúað, að skýrslan yrði löng hjá sumum, ef þetta væri meiningin, en meiningin er auðvitað sú, að sjúklingurinn á að gefa skýrslu um, af hverjum og hvenær hann hafi smitast, að svo miklu leyti sem hann veit það. Hv. þm. (SHK) kvað eigi von um góðan árangur, ef farið væri að rekast í þessu með lögregluvaldi. En það verður jafnt gert, ef með þarf, hvort sem þessi brtt. verður samþykt eða ekki. Það er rjett hjá háttv. þm., að læknirinn kemst lengra með lipurð og góðsemi en hótunum, og lögin girða heldur ekki fyrir það. Þetta ákvæði á einungis að sýna sjúklingnum, að honum ber að svara, og það kynni að hafa þau áhrif, að sá, sem ekki vill gefa upplýsingar í fyrstu, gerði það, ef honum er sýndur lagastafurinn. Ef ákvæðið kemur því til leiðar, að rjettar upplýsingar fást, þá er engum gerður órjettur með því. Þótt jeg sje ekki kunnugur löggjöf annara landa, þá veit jeg, að í útlendum hegningarlögum eru miklu víðtækari ákvæði um þetta, þar á meðal í Svíþjóð. Jeg hefi eytt fleiri orðum að þessu en jeg bjóst við að þurfa í upphafi, en jeg vona, að jeg hafi eytt þeim misskilningi, að hjer sje um verulega breytingu að ræða frá grundvelli þeim, sem stjfrv. var bygt á. Þetta ákvæði er aðeins hugsunarrjett útfylling á ákvæðum þess frv., og engum til meins.