19.03.1923
Neðri deild: 23. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (550)
24. mál, fjáraukalög 1922
Forsætisráðherra (SE):
Jeg ætla ekki að fara að ræða um neina sjerstaka liði í þessu frv., þar eð þetta mál snertir aðallega hæstv. fjrh. (MagnJ), og skal því vera stuttorður. Jeg dreg enga dul á, að fjárveitinganefnd á drjúgan þátt í því, að stjórnin hefir um ýmsar fjárveitingar aðeins farið til hennar, og má í því sambandi nefna, að ýmsir þingmenn úr fjárveitinganefnd hafa heimilað, að stjórnin færi eftir tillögum nefndarinnar, og átalið, þegar stjórnin hefir ekki gert það.
Eins hefir nefndin oft sent stjórninni heila runu af meðmælum. Jeg er því fyllilega sammála, að breytt sje frá þessari óheppilegu venju, sem komst á á stríðstímunum. En mjer finst, að háttv. frsm. (MP) hefði ekki þurft að tala í slíkum prjedikunartón, þar sem háttv. fjvn. hefir ekki hreinni samvisku en þetta í málinu.
Um sendiherrann get jeg sagt það, að jeg vissi ekkert um þetta, fyr en jeg kom til Kaupmannahafnar, að hann var að hugsa um að segja af sjer. Áleit jeg ekki rjett að láta hann fara frá, og er háttv. nefnd mjer sammála, að slíkur maður, sem sendiherrann er, megi alls ekki missast. Auk þessa hefir hann lagt mikið í sölurnar; fyrir utan kaupið á þessu húsi sínu hefir hann greitt þúsundir úr sínum eigin vasa, stöðu sinnar vegna. er launin hrukku eigi til.
Þá eru þessar aflaskýrslur: um þær get jeg sagt það, að í stjórnarráðinu er sjerstakur maður, sem hefir það á hendi að safna þeim saman og senda þær, og verður þetta haft svo framvegis.
Um brimbrjótinn er það að segja, að eftir skýrslum, sem stjórninni bárust þótti verkið vera í veði, ef framhaldið yrði ekki gert. Hefði stjórnin því neitað um fjárupphæðina, þá mundu skemdirnar hafa verið kendar því. Mjer er nær að halda, að hvaða stjórn sem var hefði tekið eins í málið og núverandi stjórn.