21.03.1923
Neðri deild: 25. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (553)
24. mál, fjáraukalög 1922
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Mjer kom það dálítið undarlega fyrir við fyrri hluta þessarar umr. um daginn, þegar hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) fór að senda mjer skæting út af margra ára gömlu máli, er kemur þessu frv. harla lítið við. Það var út af kostnaði við kirkjugarðinn í Reykjavík, að hann kvaðst verða að rifja upp gamlar syndir stjórnarinnar; kvað hann almælt, að jeg hefði mestu um það ráðið, að nýja túnið var keypt og lagt til kirkjugarðs. Þetta kom mjer kynlega fyrir, því að sú ásökun er á engum rökum bygð. Að vísu var um nokkurn tíma meðan jeg var landritari talað um kaup á Nýjatúni til stækkunar á kirkjugarðinum, en jeg var því mótfallinn, og bar það helst til, að mjer þótti verðið of hátt.
Saga þessa máls frá byrjun er annars sú, að í árslok 1916 ritaði sóknarnefndin í Reykjavík stjórnarráðinu og taldi æskilegt, að keypt yrði landspilda, áföst við kirkjugarðinn, til þess að stækka hann, annaðhvort hluti af Nýjatúni, vestur af kirkjugarðinum, eða þá svæði á Melunum suður af kirkjugarðinum. Segir sóknarnefndin, að sig gildi einu, hvor spildan sje keypt, en leggur áherslu á, að hún sje áföst við kirkjugarðinn, eða þá sem næst honum. Á þetta fyrsta skjal í málinu skrifaði jeg svohljóðandi áritun:
„Jeg verð eins og sóknarnefndin að leggja til, að þessi lóð verði keypt undir kirkjugarð.“
Þetta er alt og sumt, sem jeg hefi lagt til málsins. Áður um sumarið hafði verið samið við eigendur lóðanna, sem voru nokkuð margir; voru þeir allkröfuharðir, en þó hafði náðst samkomulag um, hvað kaupa ætti og við hvaða verði. En eftir að fyrnefnt erindi sóknarnefndar hafði borist stjórnarráðinu var hjeraðslækni og borgarstjóra skrifað um málið, og var álit hjeraðslæknis um málið komið áður en jeg fór frá í ársbyrjun 1917, og taldi hann Nýjatún að ýmsu leyti óhæft til kirkjugarðs; jarðvegurinn væri ekki nógu djúpur. Næsta sumar var málið á sífeldu flakki milli stjórnarráðsins og borgarstjóra, og var einkanlega deilt um götulagningar. Loks var gerður samningur um þetta mál í ársbyrjun 1918. dags. 17. janúar. ári eftir að jeg fór úr landsstjórninni, og svo á jeg að eiga alla sök á þessum kaupum.
Jeg vona, að hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) sjái nú, að hann hefir hafið freklega árás á mig að ástæðulausu, og að hann dragi nú í land og geri mjer afsökun fyrir það. Jeg þykist vita, að hann hafi heyrt eitthvert slúður um þetta mál, en menn verða að vera varkárir að trúa slíku, og sjerstaklega að bera ekki fram á þingi það, sem þeir vita engar sönnur á.
Þegar stjórnin afrjeð að kaupa þennan blett, sjest það á skjölum málsins, að hún hefir skýrt bæjarstjórninni frá því og getið þess, að það væri eftir tillögum sóknarnefndar og í samráði við biskup. Þessir aðiljar, er málið tók mest til, voru sammála í þessu efni, og stjórninni því vorkunn, þótt hún færi að ráði þeirra, en þeir bera þá alla sökina, ef hún er nokkur. En mjer voru úrslit málsins algerlega óviðkomandi, eins og jeg hefi nú sýnt fram á.